26.02.1937
Neðri deild: 10. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í C-deild Alþingistíðinda. (1523)

30. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

*Flm. (Ólafur Thors):

Þetta frv. hefir nú verið flutt á tveimur síðustu Alþ., og var í þau skipti gerð ýtarleg grein fyrir því. Hygg ég því, að ástæðulaust sé að þessu sinni að fara að rekja svo nokkru nemi, þau grundvallarrök, sem flm. þess styðjast við.

Það er svo kunnugt, að hver einasti maður, sem komin er til vits og ára, hvað þá heldur hv. þm., veit, að sjávarútvegurinn á við mjög bágan fjárhag og þröngan að búa. Hitt er vitað líka, að það er a. m. k. óvíða — og ég held jafnvel hvergi — að útflutningur nokkurs lands sé skattlagður, nema hér á Íslandi. Ennfremur hefir Alþ. með l. frá þinginu 1934 gengið inn á þá braut að afnema útflutningsgjald af nokkrum hluta af útflutningsvörum landsmanna, nefnilega landbúnaðarafurðum. Því var þá þegar hreyft, að ef lagt væri inn á þessa braut, þá mundu eðlilega rísa kröfur um það, að útflutningsgjaldinu yrði einnig létt af sjávarafurðum. Því var þá haldið fram, og það mun reynast satt, að til langframa muni ekki verða hægt að standa í gegn þeirri kröfu. Hvorki útvegsmenn, bændur eða aðrar stéttir landsfólksins munu álíta það eðlilegt, að létt sé þessu gjaldi af landbúnaðarafurðum, en jafnframt heimtað af sjávarafurðum, þegar það er upplýst, að sjávarútvegurinn gengur jafnvel verr en landbúnaðurinn, og er óþarfi að fjölyrða um það.

Ég veit nú, að þau rök, sem hér verða færð gegn þessu frv., munu verða þau sömu og áður, að ríkissjóður megi ekki við því að missa þessar tekjur. Það á náttúrlega við talsvert að styðjast. En það verður jafnan svo um öll frv. og allar samþ., sem fyrir Alþ. liggja, að deilt er um það, eða a. m. k. að sitt sýnist hverjum um það, hvað leggja beri mesta áherzlu á. Það vita nú allir hv. þdm., að fjárl. fara hækkandi ár frá ári; sumpart mun sú hækkun vera vegna eðlilegra ástæðna, t. d. þess, að fólki fjölgar í landinu. En sumpart stafar hækkunin af því, að nýir gjaldaliðir bætast við. Að þessu sinni ætla ég ekki að ræða um það, hversu nauðsynleg þessi nýju útgjöld eru. En ég hygg, að ég fari með margra manna mál, þegar ég held því fram, að þau séu í sjálfu sér hvorki þjóðinni nauðsynleg né gagnleg, heldur hitt, að þau séu svo óbærileg, að heita megi, að þau séu að sliga framleiðendurna.

Ég hlýddi á síðari hluta útvarpserindis, sem nú alveg nýskeð var flutt í umboði n. þeirrar, sem í daglegu tali nefnist Rauðka. — Ég vil biðja hæstv. forseta að afsaka þetta nafn; ég á nefnilega við skipulagsnefnd atvinnumála. — Hr. Arnór Sigurjónsson flutti þetta erindi, og skýrði hann svo frá, að það væri sameiginleg krafa skipulagsn., að útflutningsgjaldinu yrði létt af sjávarafurðunum. Ýmislegt annað gat hann um í erindinu, sem var til stuðnings okkar máli, flm. þessa frv., sem ég sé samt ekki ástæðu til að ræða nú. Hinsvegar var og ýmislegt í erindinu, sem ég taldi ekki rétt, eða var a. m. k. ekki samkvæmt minni skoðun. Ef nú svo er komið, að skipulagsn. atvinnumála, sem er alveg flokkslega skipuð, einskonar flokksnefnd stjórnarflokkanna, telur, að brýna nauðsyn beri til að létta þessu gjaldi af sjávarútveginum, og ef n. kveður jafnákveðið og sterkt að orði um það eins og Arnór Sigurjónsson, þá leyfi ég mér nú að vænta þess, að þetta frv. fái að ganga greiðlegar gegnum þingið heldur en raun ber vitni um afgreiðslu þessa máls á undanförnum Alþ. Ég dreg ekki í efa, að góður hugur margra hv. þm. hafi fylgt máli þessu á undanförnum Alþ., enda þótt hv. þm. hafi ekki séð sér fært að vera með því. En ég hygg, að sívaxandi þrengingar útvegsins ættu að geta riðið þann baggamun, sem áður hefir verið á um tilhneigingar manna, annarsvegar til þess að fylgja þessu máli og hinsvegar spekt við þær flokkslegu ákvarðanir að vera andvígur þessu máli. — Ég vænti, segi ég, að sívaxandi þrengingar útvegsins megi nú ríða þennan baggamun. Þess vegna geri ég mér von um, að skipulagsn. atvinnumála telji svo brýna og óumflýjanlega nauðsyn, að gjald þetta verði afnumið.

Skal ég svo ekki láta frv. fylgja fleiri orð af því að mál þetta er margrætt hér á Alþ. og efni frv. og aðstæður öllum þingheimi kunnar. — Legg ég til, að frv. þetta verði, að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og sjútvn.