27.02.1937
Neðri deild: 11. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í C-deild Alþingistíðinda. (1532)
36. mál, vinnudeilur
*Héðinn Valdimarsson:
Það er vitanlegt, af hvaða rótum þetta frv. er runnið. Það er aðeins framhald af þeim tilraunum að hindra samtakamátt Alþfl., sem Íhaldsflokkurinn alltaf hefir verið að framkvæma. Þetta frv. hefir svo sem áður komið fram, en það má segja að það sé nú með meinlausara móti. En það er flutt fyrir Vinnuveitendafélag Íslands, samið frá sjónarmiði vinnuveitenda, og því er ekki að búast við, að fulltrúar Alþfl. samþykki það eins og það liggur fyrir. Frv. þetta var rætt á síðasta þingi, og hefi ég engu við það að bæta, sem við alþýðuflokksmenn lögðum þá til þessa máls. Síðan hefir verið haldið flokksþing fyrir Alþýðusamband Íslands, — þetta félag, sem telur um 12 þús. manns, meirihlutann af öllum vinnulýð í landinu, a, m. k. við sjóinn, þær samþykktir, sem alþýðuþingið gerði um þetta mál, voru þess efnis, að því aðeins væri rétt að setja á vinnulöggjöf, að hún tryggði betur rétt og aðstöðu verkamannanna en nú er. Þingið taldi þó rétt að setja mþn. til þess að athuga þetta mál, eins og nú hefir verið gert af hæstv. atvmrh. Í þessari n. eru Guðmundur Guðmundsson lögfræðingur, Sigurjón Á. Ólafsson alþm., Gísli Guðmundsson alþm. og Ragnar Ólafsson lögfræðingur. Þessi n. hefir starfað síðan og viðað að sér allmiklu af gögnum um þessi mál, og ekki eingöngu frá Norðurlöndum, heldur frá ýmsum öðrum löndum, t. d. Englandi og frá alþjóðavinnumálaskrifstofunni í Geneva. Það er því ekki að búast við, að málið sé leyst af hendi í fljótum hasti. Það er í raun og veru ekki það smámál, að það sé nægilegt að setja sig niður og þýða svo og svo mikinn bálk úr dönskum lögum og bæta smámunum inn í, eins og virðist hafa vakað fyrir flm. þessa frv. Það verður að taka þá sérstöku staðhætti, sem hér eru á Íslandi, til greina og athuga þann mikla mun, að hér á landi hefir mestur hluti þeirra, sem í verklýðsfélögum er, aðeins lausavinnu, í staðinn fyrir að meirihluti verkalýðsins í nágrannalöndunum, þar sem svona löggjöf er sett, vinnur í verksmiðjum. Þess vegna verður að samræma þessa löggjöf íslenzkum staðháttum.
Þess hefir verið vænzt af verklýðsfélögunum, að Alþingi fari ekki að setja slík lög, nema þau séu vandlega athuguð áður og þessari stétt manna gefist kostur á að athuga þá löggjöf, áður en gengið er frá henni, eins og gert hefir verið með löggjöf, er snertir aðrar atvinnustéttir, t. d. bændur. Fulltrúum verkamanna og verkamönnum finnst rétt, að þeir setji verð á sína vinnu, — séu ekki skyldaðir til þess að vinna með öðrum kjörum en þeir eru ánægðir með. Verkfallsrétturinn er einn helgasti réttur verkamannsins í landinu, og hann mun aldrei þola, að hann sé af honum tekinn.
Við alþýðuflokksmenn munum að sjálfsögðu athuga þetta frv. eins og það liggur fyrir, en leggjum aðallega upp úr því, að sú n., sem starfar að þessu máli, geti lokið störfum; þá verður þetta mál tekið til vandlegrar athugunar.
Það hefir verið vikið að því af blöðum sjálfstæðismanna, að þeir ættu engan fulltrúa í þessari n. En mér finnst það ástæðulaust, þar sem þetta frv. er borið fram af þeim sem þeirra skoðun í málinu, og varla við því að búast, að þeir telji ástæðu til þess að vera í n. til þess að koma með önnur sjónarmið heldur en þeir þegar eru búnir að koma með.