27.02.1937
Neðri deild: 11. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í C-deild Alþingistíðinda. (1535)
36. mál, vinnudeilur
*Héðinn Valdimarsson:
Ég verð að segja það, að ég er ekki betur að mér um málefni Alþfl. en það, að mér er ekki kunnugt um neina deilu, sem eigi sér stað innan Alþfl. (JakM: Þá er að læra betur.), svo að orð hv. þm. Snæf. koma mér undarlega fyrir sjónir.
Ég hefi sagt það, að ég ætli ekki að ræða einstök atriði frv. að neinu verulegu ráði við þessa umr., en ég veit, að hv. flm. eru því vel kunnugir, að verkalýðurinn í landinu er fjandsamlegur þessu frv. eins og það liggur fyrir, og það mun ekki vera hægt að fá samþykkt í einu einasta verkalýðsfélagi með þessu frv. Það mun því þykja óréttmætt af Alþingi að setja löggjöf um þetta efni, sem verkalýðurinn væri alveg á móti. Hitt er annað mál, að það væri sjálfsagt hægt að útbúa löggjöf, sem verkalýðurinn gæti verið ánægður með, en það er ekki að búast við, að löggjöf, sem kemur frá þessum mönnum, eigi vinsældum að fagna.
Hv. 1. flm. var að tala um jafnrétti, sem fælist í frv., um verkföll og verksviptingu. Hvaða jafnrétti er það? Það er bannað að gera verkfall nema með fyrirvara, en það er ekki bannað að gera verksviptingu, það er aðeins bannað að kalla það verksviptingu. T. d, ef togaraeigendur leggja togurunum, vegna þess að þeir vilja fá lækkað kaupið, þá segjast þeir bara ætla að hætta að gera út, en í raun og veru er það verksvipting, þó að það heiti ekki því nafni. Á þennan hátt kemur ójöfnuður á milli aðilja á ýmsan hátt. Það er eins og ég drap lauslega á í fyrri ræðu minni, að með þessu frv. er verið að auka rétt vinnuveitendafélaganna, því að satt að segja er hann ekki svo mikill sem stendur, en ef þetta frv. yrði að lögum, fengju vinnuveitendafélög miklu meiri rétt, en að því er snertir verkalýðsfélögin, gengur það út á að takmarka rétt þeirra. Hinsvegar væri eðlilegt að taka vinnulöggjöf til rækilegrar athugunar, ekki aðeins hvenær ætti að gera verkföll, heldur hvernig hægt er að tryggja afkomu verkamanna yfirleitt, t. d. um 8 st. vinnutíma o. s. frv. Vinnulöggjöf hefir verið tekin upp á þennan hátt í mörgum löndum með fullu samþykki verkalýðsfélaganna. Annars geri ég ráð fyrir, að þetta mál fái sína meðferð í n., og þá verði líka tekið til athugunar, að hve miklu leyti verður hægt að leggja til grundvallar þá rannsókn, sem mþn., sem skipuð var til að rannsaka þetta mál, hefir innt af hendi. En ég fyrir mitt leyti álít, að bezt sé að haga málinu þannig, að það verði ekki til lykta leitt, nema verkalýðsfélögin fái að segja sitt álit um það, eins og nú er farið að leita til annara atvinnustétta með löggjöf, er þær snertir, t. d. eins og kjötsölulögin og mjólkurlögin voru borin undir bændur. Þannig á að fara með verkamennina, til þess að þessi mikli fjöldi þjóðarinnar verði ekki borinn ofurliði.