27.02.1937
Neðri deild: 11. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í C-deild Alþingistíðinda. (1536)
36. mál, vinnudeilur
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Ég held, að það væri tvímælalaust ákaflega mikið glapræði, ef mjög væri hrapað að því að setja löggjöf um þetta efni. Það geta allir verið sammála um það, að ef löggjöf er sett um þetta efni gegn vilja verkalýðssamtakanna, þá yrði það meira til ills en til góðs. Þess vegna tel ég sjálfsagt, að áður en löggjöf þessa efnis er sett, sé hún undirbúin svo vel sem föng eru á og jafnframt leitað um hana álits félagsskapar verkalýðsins í landinu, til þess að tryggja það að hann hafi fengið á henni hinn rétta skilning.
Mér skildist á 1. flm. þessa máls, hv. þm. Snæf., að hann teldi það mæla með þessu frv., sem hér liggur fyrir, að það væri í höfuðatriðum sniðið eftir löggjöf Norðurlandaþjóðanna, og eins og hann orðaði það, þá væru allir ábyrgir stjórnmálaflokkar á Norðurlöndum sammála um þá löggjöf. Ég hygg, að þetta sé of freklega til orða tekið. Ég veit ekki betur en að þessi löggjöf á Norðurlöndum sé frumsmíð og að henni sé breyt frá ári til árs. Fyrir fáum vikum voru felld úr vinnulöggjöf Dana hin svokölluðu tugthúslög, sem höfðu gilt frá því 1926 eða 1927, og ég veit ekki betur heldur en í Svíþjóð hafi setið n. á rökstólum í mörg ár til þess að athuga þessi mál og gera till. til endurbóta, þar sem reynslan hefir sýnt, að endurbóta væri þörf. Ég hygg því, að nauðsynlegt sé að athuga þetta mál vel, áður en svona löggjöf er sett, þar sem við höfum ekkert að byggja á hjá okkur í þessu efni, því að það eina, sem liggur fyrir þessu máli viðkomandi eru lögin um sáttasemjara ríkisins. Auk þess er að því að gæta, að það er fjarri öllum sanni, hversu góð og fullkomin sem löggjöf Norðurlandaþjóðanna er í þessu efni, að ætla að taka hana upp nokkurnveginn óbreytta. Atvinnuhættir og atvinnulíf er að mörgu leyti frábrugðið þar og hér, a. m. k. sérstaklega að því er snertir Danmörku og Svíþjóð. Meiri hluti þeirra, sem þessi lög ná til þar, vinna í föstum iðngreinum eða a. m. k. atvinnugreinum, þar sem vinna er miklu fastari heldur en hjá okkur. Hjá okkur er mest um lausavinnu í bæjum og þorpum og hjá sjómönnum, sem ýmist eru ráðnir upp á hlut eða kaup á stærri og smærri skipum.
T. d. hefir réttilega verið á það bent af hv. 2. þm. Reykv., að þótt hönnuð sé verksvipting af hálfu atvinnurekanda, þá er erfitt að fá úr
því skorið, hvenær um slíkt sé að ræða, t. d. ef togaraútgerðarfélög koma sér saman um að hætta að gera út, en telja það ekki heppilegt að kalla það verksviptingu. Vitanlega verkar það á mennina, sem eiga að starfa á skipunum, alveg eins og verksvipting, en dómstóllinn kemst ekki þar að, a. m. k. ekki að óbreyttum þessum lögum.
Ég hefi að sjálfsögðu ekkert á móti því, að þessu máli verði vísað til n. og það athugað sem bezt, en ég vil mælast til þess, að það verði ekki afgr. frá þinginu, fyrr en fyrir liggur álit frá þeirri mþn., sem nú starfar að undirbúningi svona löggjafar, Ég get sagt það án þess að fullyrða — þó að ég álíti, að miklar líkur bendi í þá átt —, að það sé ekki trúlegt, að hægt sé að ljúka undirbúningi þessa máls svo fljótt, að hægt verði að koma því í gegn á þessu þingi. Ég álít rangt af hæstv. Alþingi að hrapa að þessu máli, og verði slík löggjöf sett gegn vilja verkalýðsins, verður hún frekar til ills en til góðs.