03.03.1937
Neðri deild: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í C-deild Alþingistíðinda. (1544)
39. mál, atvinnubótavinna og kennsla ungra manna
*Flm. (Gunnar Thoroddsen):
Ég get auðvitað ekki annað en lýst yfir ánægju minni yfir undirtektum hv. 1. landsk., en hinsvegar þykir mér nauðsynlegt að gera nokkra aths. út af hans málflutningi. Hann vill eigna Alþýðusambandinu frumkvæði þessa máls. Ég vil benda hv. þm. á það, að á fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar fyrir árið 1935, sem var samin í árslok árið 1934, er sett 3000 kr. fjárveiting til þess að halda námskeið fyrir atvinnulausa, fátæka unglinga. Þetta var framkvæmt á þessu ári, og þær einu framkvæmdir, sem gerðar hafa verið í þessum efnum her í bæ, eru einmitt gerðar af bæjarstjórn Reykjavíkur, svo að það er ljóst, að það er bæjarstjórn Reykjavíkur, sem átti frumkvæðið að öllum framkvæmdum í þessu máli. Þess vegna er það óþarfi hjá hv. 1. landsk., að vera að tala um það, að þess megi vænta, að Sjálfstfl. fylgi þessu máli, því að hann hefir þegar frá upphafi. sérstaklega í bæjarstjórn Reykjavíkur, sýnt, að hann hefir verið fylgjandi þessu máli, og ekki aðeins það, heldur hefir hann haft forgöngu í málinu, eins og ég tók fram áðan.
Að því er snertir frv. hv. 9. landsk., þá er það satt, að á þinginu 1935, m. ö. o. eftir að þessi heimild var sett í fjárhagsáætlun Reykjavíkur, flutti þessi hv. þm. frv. um námskeið fyrir atvinnulausa unglinga. Frv. var vísað til menntamn., sem ég átti þá sæti í. N. klofnaði, og hv. 9. landsk., hv. þm. V.-Ísf. og ég vorum sammála um að mæla með þessu frv., en einhvernveginn orsakaðist það þannig af hálfu stjórnarflokkanna, að þeir tryggðu málinu ekki framgang á þinginu, svo að þetta frv. hv. 9. landsk. var fellt við 2. umr. Án þess að ég vilji bera fram ásakanir í garð hv. 9. landsk., sem flutti þetta mál og ég ætla af fullum heilindum, þá verð ég að láta í ljós undrun mína yfir því, að hann, hv. 1. landsk., og aðrir hv. þm. Alþfl. skyldu ekki búa betur um hnútana en svo, að þeirra eigin samherjar gætu lagzt á málið og drepið það við 2. umr.
Ég vil svo að endingu taka undir ósk hv. 1. landsk., að þetta frv., sem flutt er af okkur fjórum sjálfstæðismönnum, og frv. hv. 9. landsk., sem samið er af sambandi íslenzkra barnakennara, geti orðið grundvöllur að einhverjum ráðstöfunum til úrbóta fyrir atvinnuleysi unglinga, en mér þótti rétt að gera þessar aths. og undirstrika það, að fyrstu framkvæmdir þessa máls voru, einmitt gerðar af hálfu sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjavíkur.