18.03.1937
Neðri deild: 21. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (155)
13. mál, Kreppulánasjóður
*Pétur Ottesen:
Ég vil byrja á því að þakka flm. brtt. á þskj. 99 fyrir þessa till., því með henni er mælt með þeim óskum, sem ég bar fram, þegar þetta mál var hér til umr. síðast. Ég gerði þá grein fyrir því, að aðstaðan fyrir sum sveitarfél. a. m. k. hefði breytzt og væri að breytast, og fullkomin ástæða væri til þess, að þau sveitarfélög, sem nýir erfiðleikar hefðu skapað þröngar kringumstæður, ættu athvarf hjá þessum sjóði. Og mér skilst, að fyrir þessu sé séð samkv. brtt. á þskj. 99. Ég vil því leggja henni mitt lið, og ég vænti þess, að sú brtt. nái fram að ganga.
Ég held, að það sé alveg fullkomin þörf á því, að þetta mál verði afgr. á þeim grundvelli, að fleiri sveitarfélög en enn hafa fengið leiðréttingu sinna mála í gegnum starfsemi kreppulánasjóðs, geti átt kost á að fá samskonar aðstöðu þar.