03.03.1937
Neðri deild: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í C-deild Alþingistíðinda. (1550)

39. mál, atvinnubótavinna og kennsla ungra manna

*Thor Thors:

Þar sem ég er einn af flm. þessa máls og átti þátt í undirbúningi þess, þá vil ég leiðrétta ýmislegt, sem fram hefir komið í þessum umræðum.

Það er ekki ástæða fyrir Alþfl. að fagna sinnaskiptum sjálfstæðismanna í þessum efnum, þetta er annað mál en það, sem hv. 9. landsk. hefir borið fram. Að vísu er hans frv. um sama efni, en það er miklu losaralegra og óákveðnara en þetta frv., og má marka það á því, að ýmsir hv. þm. sem eru þessu frv. fylgjandi, hafa greitt atkv. gegn frv. hv. 9. landsk. Þetta frv. er byggt á þeirri reynslu, sem skapazt hefir hér í Reykjavík undanfarin ár og meiri hluti bæjarstjórnar Reykjavíkur átti frumkvæðið að, eins og hv. flm. tók fram. Það hefir sýnt sig að það, sem gert hefir verið í þessu máli, enda þótt það hafi verið of lítið, hefir haft mjög heilla-vænleg áhrif bæði á þá, sem þessa hafa orðið aðnjótandi, og eins má segja fyrir bæjarfélögin og þjóðfélagið í heild, enda hefir þjóðin ekki látið þetta mál fara fram hjá sér. Hver þjóð hefir tekið þetta mikla vandamál til meðferðar og skipað því með löggjöf. Allar hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa gert það á undanförnum árum.

Það þarf ekki að segja mörg orð um þetta í viðbót við það, sem hv. 1. flm. hefir þegar tekið fram. Það er öllum kunnugt, að atvinnuleysi meðal ungra manna er eitthvert hættulegasta atvinnuleysið fyrir þjóðfélagið. Þetta frv. er eiginlega meir borið fram til þess að koma málinu á stað hér á þinginu, heldur en sem endanleg tilhögun í málinu. Ég vil segja, að mér finnst nauðsynlegt, að inn í þetta frv. sé tekin heimild fyrir kauptún víða um land til þess að reka slíka atvinnubótavinnu, eins og frv. gerir ráð fyrir, að kaupstöðum sé heimilað. Enda þótt mest hætta stafi af atvinnuleysi unglinga, þar sem fjölmennt er, sérstaklega hér í Reykjavík, þá er það vitað mál, að einnig í kauptúnum landsins stafa vandræði af því, að unglingarnir hafa ekkert fyrir stafni. Jafnaðarmenn halda því fram, að hér sé ekki um nýtt mál að ræða, því að þetta hafi þegar verið framkvæmt. Þetta er rétt að því leyti, að þetta frv. er byggt á þeirri reynslu, sem fengizt hefir hér í Reykjavík, en með frv. er öðrum kaupstöðum borið sama framlag úr ríkissjóði og Reykjavík hefir fengið.

Hv. þm. Hafnf. segir, að hér sé um að ræða afturför, því að Hafnarfjörður hafi lagt fram miklu meira fé í þessu skyni heldur en gert sé ráð fyrir í frv. Hv. þm. Hafnf. veit vel, að Hafnarfjörður getur lagt allt það fé fram, sem hann vill, þó að þetta frv. nái fram að ganga, því að það skyldar aðeins ríkissjóð til þess að leggja fram ákveðið tillag. Núna er ríkissjóður ekki skyldur til þess, og það er því undir velvild ráðh. komið, hvort lagt er fram fé úr ríkissjóði á móti, en ef þetta frv. nær fram að ganga, er ríkisstj. skyldug til að leggja fram þetta ákveðna tillag, sem frv. nefnir. Ef Hafnarfjörður vill verja 100000 kr. í þessu skyni, þá er það frjálst fyrir bæjarstjórnina þar, en ríkissjóður hefir ekki aðra og frekari skyldu en að leggja fram það framlag, sem ákveðið er í 6. gr. frv., en hinsvegar get ég verið hv. þm. Hafnf. sammála um, að það er a. m. k. athugandi, hvort þetta framlag, sem frv. ráðgerir, er ekki of lítið, og ég vil vænta þess, að sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, taki það til athugunar, og sérstaklega vil ég benda á, að þetta framlag, sem miðað er við 1 kr. á hvern íbúa, er of lágt í kauptúnunum. Í kauptúnum með 500 íbúa, og þau eru nokkur, sem hafa þann íbúafjölda, er of lágt að leggja aðeins 500 kr. fram í þessu skyni.

Og ég vildi með tilliti til þess, sem ég hefi áður sagt, beina því til hv. menntmn., sem væntanlega fær frv. til meðferðar, að hún athugi, hvort ekki sé nauðsyn á að hækka þetta framlag.