03.03.1937
Neðri deild: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í C-deild Alþingistíðinda. (1554)

39. mál, atvinnubótavinna og kennsla ungra manna

*Bjarni Bjarnason:

Ég lít svo á, að ekki sé ástæða til eltast við það, þó að einstaka þm. sendi flokkum hnútur, sem ekki skipta neinu máli. Hinsvegar verður það að vera einkamál hv. þm., hvað þeir geta lagt sig niður við. — Það kom fram hjá hv. 11. landsk. þetta, að við framsóknarmenn hefðum verið undirlægjur jafnaðarmanna í þessu máli. Þetta er aðeins endurtekning á því, sem blöð þessa hv. þm. hafa tönnlazt á ár eftir ár og við höfum ekki eytt tíma eða blaðarúmi til að svara. En af því að þetta er nú vakið upp hér, þá vildi ég benda hv. 11. landsk. á það, að í Vísi getur hann lesið um það, hvernig jafnaðarmenn séu undirlægjur okkar framsóknarmanna, en í Morgunblaðinu, og þó einkum í vikuútgáfu þess, Ísafold, sem send er út um sveitirnar, getur hann í flestum blöðum lesið um það, að við framsóknarmenn séum svo og svo miklar undirlægjur jafnaðarmanna.

Það neitar því enginn að innan vébanda þess máls, sem hér liggur fyrir, eru ýms merkileg atriði, sem nauðsyn er á, að sé íhuguð. En þetta mál hefir fram að þessu verið algerlega vanhugsað af flm. þess, og sennilega af þingheimi yfirleitt. Þetta leyfi ég mér að fullyrða, eftir að hafa hlustað á umr. um þetta mál og eftir að hafa átt sæti í n. hér í Nd., sem hafði málið til meðferðar. Það var af þessum ástæðum, sem ég var andvígur málinu á þingi í fyrra. Mér þótti málið of vanhugsað og vildi láta athuga það betur. Ég held, að það sé ekki of djúpt tekið í árinni hjá mér, að sú hlið þessa máls, sem að bóklega náminu sneri, hefði verið mjög framkvæmanleg í sambandi við gagnfræðaskólana. Það er búið að leggja svo mikið fé til þeirra mála, og er árlega veitt, að búast hefði mátt við, að eitthvað hefði mátt styðjast við einmitt þá skóla til þess að leysa þessa hlið vandræðanna. Eins og menn sjá, liggja hér fyrir 2 frv. um þetta sama efni. Annað heitir frv. til l. um atvinnubótavinnu og kennslu ungra manna, en hitt heitir frv. til l. um ráðstafanir vegna atvinnulausra unglinga. Hv. sjálfstæðismenn, sem í fyrra voru á móti frv. hv. 9. landsk., koma nú með hið fyrra frv., sem að vísu er nokkru fyllra en frv. hv. 9. landsk. var, en þó á engan hátt svo, að þeir hefðu ekki getað stutt frv. hv. 9. landsk. og breytt því í það form, sem þeim líkaði. Þetta sýnir það ljóslega, að þeir flokkar, sem mest ráða í kaupstöðum, eru að keppast um að leysa þetta mál; þeir vilja báðir hafa heiðurinn af því. Hvað er þá eðlilegra en að við, sem vitum, að við höfum minna fylgi í kaupstöðunum, viljum lofa þeim að bítast um þetta mál, og reyna fyrst um sinn að sjá, hvort þeir eru menn til þess að leysa það. Ég skal fúslega játa það, að ég vildi verða til þess að ljá góðum till. í atvinnubótamálinu fylgi mitt. En ég tel sem sagt heppilegast að lofa þessum flokkum, sem mest fylgi hafa í bæjunum, að spreyta sig á að leysa þetta vandamál, sem fyrst og fremst er mál kaupstaðanna.