03.03.1937
Neðri deild: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (1563)
42. mál, atvinnulausir unglingar
*Flm. (Sigurður Einarsson):
Í grg. þessa frv. er skýrt frá því, hvernig það er til orðið. N. frá fulltrúaþingi sambands íslenzkra barnakennara hefir samið frv. í öllum aðalatriðum ásamt forseta U. M. F. Í. Þó er frv. ekki flutt eins og það kom úr höndum n., heldur gerði ég lítilsháttar breyt. á því, sem ég sé ekki ástæðu til að gera grein fyrir sérstaklega.
Frv. er á þá leið, að skylt skuli að skrá tvisvar á ári alla unglinga innan tvítugs aldurs í öllum kaupstöðum og þorpum landsins. Þessi skráning er ætlazt til, að fari fram vegna þess, að enginn kostur er að vita með vissu, hverjir, hve margir eða hvar þeir eru, sem þessu frv. er ætlað að ná til, nema þessi skráning fari fram.
Í 2. gr. frv. er kveðið á um, að 14–20 ára unglingum, sem hafa ekki atvinnu, skuli gefinn kostur á viðfangsefnum af hálfu hins opinbera og á kostnað ríkis og bæjar- eða sveitarfélaga. Svo er nánara um það ákveðið í frv., að hver unglingur skuli fá kennslu og undirbúning undir það starf, sem hann er líklegastur til. Ég vil fullvissa hv. þm. um það, að n., sem samdi frv., lagði mikla vinnu í að athuga, hverjar starfstegundir gætu hér komið til mála, og hefir svo komið sér saman um að benda á þá starfsliði, sem í frv. standa. Í fyrsta lagi er hér talað um opinbera skóla. Erlendis er það víða svo, bæði í Danmörku og víðar, að mönnum, sem ella yrðu styrkþurfar, er gefinn kostur á að verja þeim styrk, sem þeir annars yrðu óhjákvæmilega að fá, til náms í opinberum skólum. T. d. taka lýðháskólar á Norðurlöndum þannig hópa af atvinnulausum mönnum. — Þá er næsti liður, sem gerir ráð fyrir sjálfboðavinnu að framkvæmdum til almenningsheilla. Er það hugsað þannig, að unglingum sé gefinn kostur á að vinna þjóðnýt störf, sem vitað er, að ekki yrðu framkvæmd að öðrum kosti og ekki tekin fyrir eða komið áleiðis fyrir fé, sem varið er til framkvæmda. Þá er þriðji liðurinn, að fólk fái að nema handavinnu eða smáiðnað, sem gæti síðar orðið því að gagni, ekki eingöngu við hvaða starf sem er, heldur einnig að sú kunnátta gæti skapað því atvinnu í þeirri grein. Þá er verklegt sjómennskunám eða nám við búnaðarskóla. Það er hugsað þannig, að þegar frv. kæmi til framkvæmda, yrði komið upp vinnustöðvum fyrir handavinnu og smáiðnað, svo og skólaverstöðvum. Er fyrst og fremst höfð í huga skólaverstöð við Faxaflóa. Hjá öðrum þjóðum er mikil reynsla fengin um slíkt verklegt nám. T. d. eru víða sjóskátar; það eru skátar, sem temja sig við ýmis nytjastörf á sjó. Þá er gert ráð fyrir að koma upp kennslubúum í grennd við þá staði, þar sem starfa á samkvæmt þessum l. Þar gætu æskumenn unnið landbúnaðarvinnu, sem oft gæti orðið þeim eftir á til lífsframfæris.
Þegar litið er á þennan ramma, sem dreginn er um fyrirhugaðar framkvæmdir, þá sést, að það er ekki lítið, sem gert er ráð fyrir, að gera þurfi og gera skuli. Það er svo mikið, að bæði þeim, sem sömdu þetta frv., og eins mér, sem flyt það, er fullljóst, að það þýðir ekki að snara slíku frv. inn í þingið og ætlast til, að ríkissjóður taki á sig þann kostnað, sem leiðir af framkvæmd þess, ofan á önnur útgjöld, sem við vitum, að ráðstafað er til annara þarfa og ekki þar á bætandi. Ég held, að svo framarlega sem taka á á þessu máli með alvöru, þá verði um leið og gert er ráð fyrir þessum útgjöldum, að benda á tekjuöflun á móti. Nú er í 3. gr. bent á tekjuöflunarleiðir. Er þar lagt til, að stofnaður verði sjóður til þess að standa straum af þessum ráðstöfunum. Gert er ráð fyrir því í fyrsta lagi, að sjóðurinn fái ? af því fé, sem ríki og bæir veita til atvinnubóta. Þetta er ekki sett út í loftið. Þó að ekki liggi fyrir fulltæmandi skýrsla um atvinnuleysi ungra manna, þá er það rökstuddur grunur þeirra manna, sem samið hafa frv., að þegar litið er á heildarupphæð atvinnubótafjárins, þá mætti sanngjarnlega veita ? af því til atvinnubóta handa unglingum. Þess er einnig að gæta, að með þeim ráðstöfunum, sem hér er gert ráð fyrir, er leitazt við að gera að nýtum starfsmönnum unglinga, sem annars mætti gera ráð fyrir, að yrðu atvinnulausir áfram. Og hversu mikill hagur þjóðinni er að því, að komið sé í veg fyrir, að starfsvilji og starfskraftar fari forgörðum, þarf ekki mörg orð um. — Þá er b-liðurinn, sem ég get búizt við, að mæti andstöðu, og það ekki að ástæðulausu. Það er svo mælt fyrir, að ¼% af atvinnutekjum þeirra manna, sem hafa yfir 3000 kr. atvinnutekjur á ári, skuli verja í þessu skyni. Hér er um nýjan skatt að ræða; og það þýðir ekkert að vera að nefna það öðru nafni. Nú er þetta vitanlega mál, sem liggur fyrir til athugunar. Eigum við að ráðast á atvinnutekjur manna til þess að hrinda þessu máli áleiðis, eða eigum við að haga því einhvernveginn öðruvísi? Ég er tilbúinn að taka öllum vinsamlegum upplýsingum og bendingum. Ég álít, að þetta eigi að vera eitt af því, sem n., sem um málið fjallar, eigi að taka til rækilegrar athugunar, og síðan taka fullnaðarákvörðun um það. Þetta er ekki sett þarna af því, að flm. og höfundum frv. sé ekki alveg ljóst, að nú þegar sé mikið lagt á tekjur manna. Það er bara þetta, að þegar ný þörf kallar að, sem menn ekki með neinu móti sjá sér fært að fullnægja með því fé, sem fyrir hendi er, þá verður að meta það, hvort þessi þörf sé það rík, að rétt sé að leggja nýjar álögur á menn til þess að bæta úr þeirri þörf. Og ég álít, að hér sé svo rík þörf, að atvinnutekjur manna eigi ekki að vera friðhelgar, þegar afla skal fjár í þessu skyni. — Þá er gert ráð fyrir, að lagt sé 10 aura stimpilgjald á alla aðgöngumiða að kvikmyndasýningum og dansskemmtunum á þeim stöðum, sem starfsemi vegna atvinnulausra unglinga fer fram á. Þetta mundi verða langstærsta tekjugreinin. Það er nú að vísu svo, að kvikmyndasýningar eru einhverjar alþýðlegustu skemmtanir. En enginn vafi er á því, að kvikmyndasýningar verða aldrei taldar beinar lífsnauðsynjar. Maður, sem fer í kvikmyndahús með sig, börn sín og heimili sitt, telur sig aflögufæran með það fé, sem til þess þarf. Þess vegna er lagt til að skattleggja þessar skemmtanir, þó að ég hinsvegar vilji ekki telja það hreinan óþarfa. En það er kunnugt mál, að kvikmyndasýningar hér á landi gefa verulegan ágóða. Væri þarft, ef unnt væri, að setja ákvæði um, að skatturinn lenti ekki eingöngu á þeim, sem kvikmyndahúsin sækja. Það liggur fast í grun mínum, að þetta gjald mætti líka lenda á þeim sem reka þessi fyrirtæki. — Þá er gert ráð fyrir tekjum af þeim stofnunum, sem þessi lög gera ráð fyrir. Er engin ástaða til að telja þetta fjarstæðu, þegar að því er gætt, að fjárveitingavaldið hefir á undanförnum árum verið að byggja skóla í stórum stíl og þar með talið sig vera að vinna að þurftarmálum uppvaxandi kynslóðar. Er því engin ástæða til að álíta það fjarstæðu, að atvinnulausir unglingar fái einhvern hliðstæðan styrk frá fjárveitingavaldinu.
Ég sé ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um stjórn þessa sjóðs og hvernig fyrirkomulagið er hugsað. Það er mál, sem n. tekur að sjálfsögðu til athugunar, og gefst mönnum þá kostur á, að láta álit sitt uppi. Ég gæti vel ímyndað mér, ef það þætti miklu skipta, að eitthvert annað fyrirkomulag kæmi til greina, en að sjálfsögðu álít ég, að framkvæmdum og stjórn sjóðsins sé vel fyrir komið í höndum þeirrar n., sem gert er ráð fyrir í frv., þar sem lagt er til, að einn nm. skuli valinn eftir till. Alþýðusambands Íslands og annar eftir till. U. M. F. Í., en atvmrh. skipi oddamann. Ég held nefnilega, að sá vilji, sem hefir komið fram í ungmennafélögum landsins til þess að sinna þessu þarfa máli, sé ekki lítils virði. Ég efast um, að löggjafinn og fjárveitingarvaldið geti, þegar samtök verkalýðsins eru frá tekin, átt von á betri samherja en ungmennafélagsskapnum til þess að benda á viðfangsefni og styðja mál.
Ég skal svo ekki hafa framsöguræðu mína lengri. Auðvitað er margt, sem taka þarf til athugunar, sem ég hefi ekki minnzt á né heldur kemur fram í frv. Hér er um svo víðtækan grundvöll að ræða í þessu frv., þannig að í trú á það, að eitthvað þurfi að gera, er hægt, á grundvelli þessara l. eða innan takmarka þeirra, að búa til þann ramma, sem byggja mætti framkvæmdir á til bráðabirgða.
Svo ætla ég að vænta þess, að þetta mál fái góðar undirtektir hér í hv. d. og menn vilji yfirleitt gera það, sem auðið er, til þess að koma því áleiðis, og ég geri það að till. minni, að frv. verði vísað til menntamn.