03.03.1937
Neðri deild: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í C-deild Alþingistíðinda. (1564)
42. mál, atvinnulausir unglingar
*Thor Thors:
Það hefir þegar verið rætt svo mikið um þetta mál hér í dag í sambandi við annað frv. um svipað efni, að óþarft er að hafa um það mörg orð. Allir eru sammála um nauðsyn þess, að eitthvað sé gert til þess að bæta úr ástandinu í þessum efnum. Og þá getur vitanlega í því sambandi þetta frv. eins og annað komið til athugunar. Það er sjálfsagt að taka því vingjarnlega, og ég vænti þess, að hv. menntmn. beri saman þessi 2 frv., sem um málið eru fram komin, og svo komi frá henni ákveðnar till. til úrbóta á þessu sviði.
Enda þótt ég ætli ekki að ræða einstakar gr. frv., vil ég þó vekja athygli á þeirri hugmynd, sem kemur fram í 6. gr. þessa frv., að stofna skuli til sjálfboðavinnu fyrir atvinnulausa unglinga við þjóðnytjaverk. Svipað frv. og þetta hefir verið til umr. hjá okkur í Sjálfstfl. En við erum ekki komnir svo langt með það, að við treystum okkur til að bera það fram enn. Við erum yfirleitt því hlynntir, að reist verði einhver slík stofnun. En við höfum orðað þetta nokkuð á annan veg; talað um vinnuskóla fyrir unglinga, en ekki viljað binda þetta eingöngu við atvinnulausa unglinga, heldur gefa öllum unglingum kost á að sækja þessa vinnuskóla, til þess að fá þar þjóðfélagslegt uppeldi og temja sér líkamlega vinnu. Ég vil mælast til, að hv. menntmn. taki þetta atriði til yfirvegunar.