17.03.1937
Neðri deild: 20. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í C-deild Alþingistíðinda. (1580)

57. mál, kaup á hlutabréfum í Útvegsbanka Íslands h/f

*Flm. (Jóhann Jósefsson):

Ég hefi leyft mér enn á ný að koma fram með till. í frumvarpsformi til þess að leitast við að fá Alþingi til þess að sýna á þennan eða annan hátt einhverja sanngirni þeim sparifjáreigendum, sem á sínum tíma lögðu fram helming innstæðna sinna í Íslandsbanka til viðreisnar honum, en var svo síðar tekið í hlutabréf handa Útvegsbankanum. En þau hlutabréf svara eigendunum engum arði og eru ekki veðhæf. Hér er því lagt til, að reynt sé að gera bréfin veðhæf, og ennfremur, að þau svari vöxtum á borð við sparifé. Frv. um þetta efni hefir sætt hér andmælum áður, en það út af fyrir sig tel ég ekki vera ástæðu til þess að láta niður falla kröfur um rétt þessara fjáreigenda, og það því síður, þegar þess er getið, að á sama tíma, sem sparifjáreigendur við Íslandsbanka voru að leggja fram helming inneigna sinna, voru sparifjáreigendur við Landsbankann verndaðir alveg á sérstakan hátt af löggjafarvaldinu, og nokkru seinna var hið sama gert við sparifjáreigendur við Útvegsbankann. Þótt að sjálfsögðu megi um það deila, hvort skylda hafi verið fyrir þessa menn, sem hér eiga hlut að máli, að leggja hið umrædda fé fram, þá finnst mér þó sanngjarnt, að hlutur þeirra sé eitthvað réttur, og Alþingi er sá rétti aðili, sem ber að snúa sér til um þetta.

Ég mun svo ekki fjölyrða öllu frekar um þetta nú, en vísa til þskj. 287 frá 1934 um öll frekari rök fyrir þessu máli, að umr. lokinni óska ég, að málinu verði vísað til fjhn.