10.04.1937
Neðri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í C-deild Alþingistíðinda. (1593)

63. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

*Frsm. (Ólafur Thors):

Fjhn., eða þeir af nm., sem voru viðstaddir á fundi þegar þetta mál var tekið til afgreiðslu, hafa orðið sammála um að mæla með því við hv. d., að frv. verði samþ. óbreytt. Þetta mál er svo þekkt af hv. dm., að óþarft er að fara að endurtaka þau rök, sem margsinnis hafa verið talin hér. Einn nm., hv. 2. þm. Skagf., skrifaði undir nál. með fyrirvara, og mun hann gera grein fyrir ástæðunni til þess, ef honum finnst ástæða til. Ég vil vekja athygli á því, að við fáum ekki séð, að Vestmannaeyingar geti komizt af án þeirra tekna, sem frv. gerir ráð fyrir. Vil ég leggja áherzlu á, að frv. fái greiðan gang gegnum þingið.