10.04.1937
Neðri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í C-deild Alþingistíðinda. (1597)

63. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

*Frsm. (Ólafur Thors):

Ég hefi nú heyrt tvo jafnaðarmenn segja skoðun sína á þessu máli. Ég veit, að vel má finna frambærileg rök, í einu formi eða öðru, til að vera á móti þessu máli og tefja fyrir gangi þess. Það verður það, sem sker úr um hugarfar manna til þess kaupstaðar, sem hér á hlut að máli, hvort menn vilja flýta fyrir að bæta úr þessari nauðsyn hans á þann hátt, sem hér liggur fyrir, eða menn vilja finna svo og svo margar ástæður til að vera á móti því.

Ég vil benda á, að þótt svo færi, að þing, sem kæmi saman í haust, tæki þetta mál til meðferðar á viðtækara grundvelli, þá er í fyrsta lagi óséð, að því þingi frekar en öðrum tækist að komast að endanlegri niðurstöðu, svo lögfest yrðu ákvæði, sem bættu úr þörf annara bæjarfélaga á sama sviði. Þótt það mætti takast, eru það heldur engin andmæli gegn því, að þetta frv. verði samþ., því þá verður í mesta lagi hægt að segja, að þetta frv. hafi verið óþarfi, en skaðlegt verður það aldrei. Fyrir mér vakir það eitt, að Vestmannaeyjar komast ekki af án þessara tekna, en hinsvegar er engin trygging fyrir því, að á þingi, sem saman kann að koma næsta haust, náist samkomulag um allsherjar löggjöf í þessu efni. Það er eftirtektarvert, að þótt milliþingan. hafi starfað að þessu máli, þar sem menn frá 3 stjórnmálaflokkum áttu sæti, þá hefir árangurinn orðið sá af þeirri tilraun, að hver höndin rís upp móti annari þegar í þingið kemur. Ég fer því fram á, að þeir sem vilja létta erfiðleika kaupstaðanna, samþ. þetta frv. og flýti fyrir gangi þess í gegn um þingið. Sé ég svo ekki ástæðu til að rökræða það frekar. Ég veit, að finna má frambærilegar ástæður til að vera á móti því, en það bætir ekki úr þörfinni.