10.04.1937
Neðri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í C-deild Alþingistíðinda. (1600)
63. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum
Páll Zóphóníasson:
Ég get raunar fallið frá því að fá orðið, því hv. 6. landsk svaraði öllu því, sem gaf mér tilefni til að biðja um orðið. Það voru þau ummæli hv. þm. G.-K., að það skæri úr um hugarfar manna til Vestmannaeyjakaupstaðar, hverja afstöðu þeir tækju í þessu máli. Ég vil mega mótmæla því fyrir mína hönd og ég hugsa flestra þm., að afstaða þeirra til mála markist af því, að þeim sé vel eða illa við einhverja sveit eða bæ eða mann. Það, sem skiptir máli í frv., er það, að útsvar, sem á að leggjast á eftir efnum og ástæðum, á ekki nema að litlu leyti að leggjast á þannig, heldur að mestu að takast sem skattur af öllum vörum, sem fluttar eru í höfn, svo að allir, sem þurfa að nota vörurnar, verða að greiða hann. Ef þetta ákvæði væri sett fyrir kaupstaði og kauptún almennt, gæfist þeim, sem þar búa, tækifæri til að láta menn úr öðrum sveitarfélögum, sem verða að kaupa vörurnar, borga útsvör sín. Við þessu má auðvitað segja, að Vestmannaeyjar hafa hér nokkra sérstöðu vegna legu sinnar, því að fáir kaupa þar vörur aðrir en íbúar eyjanna, og getur það því helzt gengið þar. Að ég mun greiða atkv. á móti þessu frv., er ekki af neinum illvilja til Vestmannaeyja. Það kemur ekki til mála. Afstaða mín markast aldrei af því í neinu máli, að mér sé vel eða illa við hlutaðeigandi staði eða menn, heldur til málefnanna, sem um er að ræða, og áhrifa þeirra á heildina.