10.04.1937
Neðri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í C-deild Alþingistíðinda. (1603)

63. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

*Jónas Guðmundsson:

Hv. 8. landsk. sleppti sér hér á tímabili áðan, og er það ekki annað en það, sem maður á að venjast stundum, þegar hann fær köstin. Viðvíkjandi því, sem hv. þm. var að tala um afgreiðslu þessa máls á fyrri þingum, vil ég segja það, að hann ætti að setja sig betur inn í hana heldur en æsingaræða hans áðan bar vott um. Afgreiðsla þessa máls í fyrra var sú, að felldur var út úr frv. kaflinn um vörugjaldið, en tollaálagið, sem gert var ráð fyrir, að yrði 5% og sveitirnar fengju, var hækkað upp í 15% og látið renna til kaupstaðanna líka. Það var því ekki um það, hvort útvega ætti tekjur, heldur um leið til að afla þeirra, sem ágreiningur varð, og svo er nú. Ég hefi verið á móti tollgjaldinu, en til samkomulags í mþn. gekk ég inn á að hafa það 5%. Nú ber ég frv. mþn. fram hér, einmitt til að sjá, hvernig sjálfstæðismenn snúast við því, en margir þeirra hafa flutt frv. um svipaðan tekjustofn fyrir einstaka kaupstaði, því hygg ég rétt, og vil beina því til hv. form. fjhn., að fá tekna afstöðu hér í d. til vörugjaldsins. Hv. Ed. er búin að taka afstöðu til þess, og ef hv. Nd. tekur sömu afstöðu, eru fengnar hreinar línur, hvorug d. vill þá heimila vörugjaldið almennt. En í þessu máli eru ekki til nema tvær leiðir, að heimila vörugjaldið, eða hækka tollálag það, sem gert er ráð fyrir í frv. hv. 1. þm. Eyf., svo að verulega muni um það. Þarf það þá að hækka meira en upp í 15%; það mun ekki veita af að hafa það 25–30%.

Þetta finnst mér greinileg afstaða til þessa máls. Því vil ég skora á hv. fjhn. að láta frv. mitt koma til atkv. í hv. d., til þess að fá úr því skorið, hvort afstaða hennar er sú sama og Ed. Þangað til skal ég gjarnan liggja undir því ámæli hv. 8. landsk., að ég vilji ekkert fyrir þetta mál gera. Ég verð bara að benda honum á, að ekki hefir hann gert meira í þessu efni. Ég átti frumkvæðið að því, að þetta vörugjald var tekið upp í frv. mþn., og ég bar frv. fram án þess að hafa til þess stuðning alls míns flokks. En hvað hefir hv. 8. landsk. gert? Ég ætla, að hann hafi ekki einu sinni borið fram frv. um þetta gjald fyrir Siglfirðinga eina, en mínar till. eru miðaðar við alla kaupstaði landsins.