17.04.1937
Neðri deild: 42. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í C-deild Alþingistíðinda. (1616)

67. mál, gengisskráning

*Flm. (Hannes Jónsson):

Þar sem þetta verður síðasta umferðin, þá fæ ég ekki tækifæri til að svara þeim ræðumönnum, sem hér koma á eftir, og ég hefi heldur ekki tíma til að taka nema nokkuð af því, sem þeir ræðumenn hafa haldið fram, sem nú hafa talað. Ég skal strax lýsa því yfir, að ég get verið ánægður með þær umræður, sem hér hafa farið fram. Höfuðtilganginum með flutningi þessa frv. hefir verið náð.

Hæstv. ráðh. var undrandi yfir því, að þetta mál skyldi ekki hafa komið til umr. fyrr en nú. Ég á ekki sök á því, hve dregizt hefir, að þessar umr. færu fram í útvarpið, því að ég var fyrir löngu búinn að krefjast þess, að fá útvarpsumræður um málið. En ég skal játa, að ég tók það af dagskránni, þegar það var sett á hana, í upphafi einmitt í þeim tilgangi, að fá útvarpsumræður um málið. Frv. er flutt að þessu sinni einungis til þess að fá umræður um það í útvarpið. Ég hafði reynt á undanförnum þingum að fá þingflokkana til þess að ræða málið, en það hafði ekki tekizt. Þetta var því eina leiðin, sem eftir var, til þess að þjóðin fengi kynnzt því, hvernig hinir einstöku flokkar líta á þetta stórmál.

Það, sem þeir ræðumenn, sem komið hafa fram, hafa sameiginlega fundið að frv. mínu, er, að örðugt muni vera að finna það meðaltalstilkostnaðarverð, sem gengisskráningin á að byggjast á. Náttúrlega er hér ekki um það að ræða að finna eitt og sama tilkostnaðarverð fyrir rækjuveiðar og refarækt, eins og hv. þm. G.-K. talaði um. Náttúrlega verður fyrst og fremst að finna það verð, sem er á framleiðsluvörunni í heild sinni. Vel getur verið, að nokkur mismunur verði þar á innan þessara tveggja aðalatvinnugreina, en við því verður ekki hægt að sporna. Ef sumar þessara atvinnugreina gætu ekki fengið hæfilegt tilkostnaðarverð, yrði það e. t. v. til þess, að þær drægjust saman að meira eða minna leyti, en aðrar, sem næðu frekar í tilkostnaðarverðið, ykju starfsemi sína. Ennfremur gæti það komið fyrir, að ekki fengist samræmi í framleiðsluverði landbúnaðar- og sjávarútvegsvaranna, en það var hugsunin, að setja þá verð gjaldeyrisins hæfilega á milli þessara tveggja póla, svo að hægt væri að fullnægja þeim báðum, þannig að sá, sem verr væri settur, fengi uppbót í þeim hlunnindum, sem hinn atvinnuvegurinn ynni með lækkuðu gengi. Náttúrlega yrði það að takast af honum með tollum eða á annan hátt, og yrði að veita það hinum atvinnuveginum sem styrk ef það yrði að teljast þjóðarnauðsyn, að halda þeim atvinnurekstri uppi.

Að öðru leyti var það ekki stórvægilegt, sem hæstv. fjmrh. fann að frv. mínu. Hann nefndi það að vísu, að enginn fulltrúi frá ríkisstj. væri í þessari n., en ég vil halda því fram, að þjóðbankinn ætti að hafa þá ábyrgðartilfinningu og ráðh. það vald á stj. hans, að áhrif frá ríkisstj. gætu fullkomlega komið þar til greina.

Út af því, að gengismálið sé ekki flokksmál, þá vildi ég gjarnan mega viðurkenna það. En það, sem liggur til grundvallar þessu gengismáli, er, að fundið sé hið rétta jafnvægi í framleiðslukostnaði atvinnuveganna við söluverð afurðanna. Það hlýtur því í raun og veru að vera flokksmál allra stjórnmálaflokka í landinu, að slíkt jafnvægi haldist í þjóðfélaginu, og ef til eru flokkar, sem ekki vilja stuðla að því, að slíkt jafnvægi haldist, þá eru þeir stjórnmálaflokkar fjandsamlegir þjóðskipulaginu og ættu ekki að hafa leyfi til að lifa sínu pólitíska lífi.

Út af þeim staðhæfingum, sem komið hafa fram um það, að landbúnaðurinn hefði ekki nema tjón af gengislækkun, ef fram ætti að fara, þá vil ég benda á það, að sænski hagfræðingurinn Lundberg gerði ráð fyrir, að íslenzka krónan væri skráð 40% of hátt. Ég skal nú taka dæmi. Ég þekki leiguliða; búið allt, lifandi peningur og dauðir munir, eru að verðmæti um 6 þús. kr. Búið er 3 kýr, 100 kindur (80 ær) og 7 hross. Bóndinn skuldar 4 þús. kr. Kaupfélagið, sem hann verzlar við, selur allar afurðir hans til útlanda. Hann leggur inn 70 lömb á 15 kr., eða samtals kr. 1050, og 100 kg. af ull, á 2,50 kr., eða kr. 250,00, samtals 1300 kr. Fjölskyldan er kona og þrjú börn, og úr kaupstaðnum fær hann vörur fyrir um 600 kr., en kaupverð þeirra frá útlöndum er ca. 400 kr. Gjöldin verða þessi: landskuld 150 kr., vextir og afborganir 340 kr., útsvar og skattar 50 kr., aðkeypt vinna auk fæðis 300 kr., úttekt 400 kr. + álagning 200 kr. og ýms gjöld 100 kr. Öll gjöldin verða þá samtals 1540 kr. Af þessum 1540 kr. þarf hann að greiða 400 kr. til útlanda. Ég dreg þessar 400 kr. frá verði innleggsins, og þá eru eftir 900 kr., sem bóndinn notar til þess að greiða innanlandsþarfir. Hann vantar þá 240 kr. til að hafa fyrir þörfum. Ef hann hefði fengið 40% meira fyrir afurðirnar, hefði hann 1260 kr. í staðinn fyrir 900 kr., og þá hefði hann 120 kr. afgang, en vantar nú 240 kr. til þess að geta staðið í skilum; í staðinn fyrir 15 kr. fyrir lambið fengi hann 21 kr., og til þess að borga 4000 kr. þarf bóndinn nú að láta 267 lömb, en þyrfti ekki að láta nema 190, ef gengið væri réttlátlega skráð. Þessu dæmi þýðir ekki að mótmæla, ég þekki mörg svipuð.

Það er nú búið að svara sumu af því, sem hv. 9. landsk. var hér með, svo að ég þarf ekki að fara mörgum orðum um hans ræðu. Ég skal þó aðeins lítilsháttar víkja að því, sem hann talaði um í negralíkingu sinni. Hann hefir sennilega haft enska verkamannaleiðtogann Henderson í huga, því að hann mælti með því, að slík leið, gengislækkun, yrði farin í Englandi til þess að tryggja verkamönnunum vinnulaun og öruggt starf. En e. t. v. lítur hv. 9. landsk. svo stórt á sig, að hann telji sig hafa meira vit á þessum málum en leiðtogar verkamanna í öðrum löndum. — Það hefir verið minnzt á það, hvaða ráðstafanir Stauning gerði í þessum efnum, en sjálfsagt ætlaði hv. 9. landsk. þessum flokksbróður sínum ytra að smjatta á sírópinu í skálinni, sem hann var að tala um, en síðan festist það nú á hans eigin skolti öðrum til athlægis og skemmtunar.

Út af því, sem hæstv. ráðh. sagði um afstöðu Bændafl. fyrr á þingi, sérstaklega á því tímabili, sem við hefðum haft aðstöðu til að koma þessum málum áleiðis, þá vil ég minna á það, að á þeim tíma, sem Þorsteinn Briem var ráðh., gerði hann stórfelldar ráðstafanir til viðréttingar landbúnaðinum. Hann undirbjó löggjöf um afurðasöluna og fékk í hendur núverandi stj. Á því þingi voru afgr. l. um Kreppulánasjóð, en okkur var það ljóst, að þetta mál þyrfti úrlausnar við, og héldum fram, að jafnframt þessum ráðstöfunum þyrftu að koma öflugar ráðstafanir til þess að tryggja það, að atvinnuvegirnir gætu verið reknir með góðri útkomu.

En hvaða afstöðu hefir Framsfl. tekið í þessu máli? Hæstv. ráðh. vildi halda því fram, að það væri lítið sagt í frv. mínu og að erfitt væri að framkvæma það. En ég hafði lesið upp ályktun, sem flokkurinn hafði gert og birt fyrir þjóðinni, og eins ályktun, sem flokksþingið gerði í vetur. Hvers vegna er flokksþingið að gera samþykktir um gengismálið og leggja áherzlu á, að n. verði skipuð og að hún skili áliti sem fyrst. Flokksþingið hefir sýnilega litið svo á, að þær ráðstafanir, sem hér er að framan getið, hafi ekki komið bændastéttinni að fullum notum, og þess vegna hefir það viljað ýta á það, að hæstv. ráðh. gerði eitthvað frekara í málinu.

Ég vil að lokum taka það fram, að það er ekkert keppikefli mitt eða annara, sem mest hafa barizt fyrir réttlátri gengisskráningu, að gengið verði fellt. Það má vera svo hátt sem verkast vill. Við krefjumst þess aðeins, að það sé í samræmi við verðlag framleiðsluvaranna og tilkostnað atvinnurekstrarins; ef slíkt jafnvægi helzt, þá er sama, hversu hátt krónan er skráð.

Ég fæ svo ekki tækifæri til að tala hér oftar í kvöld, en ég vænti þess, að menn athugi ræður hv. þm. við þessar umr. og vegi og meti ástæður þeirra með og móti málinu. Ég legg það ótrauður undir dómgreind alþjóðar, hvorir hafi flutt mál sitt af heilli hug, — við, sem erum með réttlátri gengisskráningu, eða hinir, sem vilja berja höfðinu við steininn.