17.04.1937
Neðri deild: 42. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í C-deild Alþingistíðinda. (1619)

67. mál, gengisskráning

Ólafur Thors:

Það sýnir alvöruleysi Alþfl. í þessu máli, að maður eins og hv. 9. landsk. er af flokksins hendi sendur til að halda á málinu.

Þessi þm. tók að sér að sanna, að verðfelling frankans, sem Alþýðublaðið lofaði og prísaði, ætti ekki skylt við verðfelling ísl. krónu. Rökin voru þau, að í Frakklandi hefðu sósíalistar ráðið þessu, og það vari ávallt hættuminna! Þessu læt ég ósvarað; það svarar sér vel sjálft. En um þau höfuðrök hv. 9. landsk., að barnaskapur sé að halda, að of hátt verðlag krónunnar komi fram í óhagstæðum verzlunarjöfnuði, læt ég nægja að leiða athygli að því, að með slíkum rökum sannar hv. 9. landsk. það, að honum er málið með öllu hulin ráðgáta, því að það veit hver einasti maður, sem þekkir upphafsstaf þessa stafrófs, að fyrsta, beinasta og eðlilegasta afleiðing ofmetins gjaldmiðils er einmitt óhagstæður verzlunarjöfnuður.

Ég sá, að menn brostu, þegar hv. 9. landsk. fór að hjala um „hina heiðarlegu“ krónu. Ekki veit ég af hverju. Kannske hafa sumir verið að hugsa um Stauning, sem á einni nótt verðfelldi dönsku krónuna um 20% og bannaði jafnframt verkföll. Öðrum hefir ef til vill dottið í hug, hvernig fer, ef krónunni er haldið of lengi í of háu mati, en líklega var það orðið „heiðarlegur“, sem allt í einu varð hlægilegt.

Þessi hv. þm. sagði í dag um hv. 2. þm. N.-M., að hann kynni að hugsa, en ekki að lesa. Myndi ekki ræða hv. 9. landsk. í þessu máli hafa gefið tilefni til að snúa þessu við og heimfæra það svo upp á hann sjálfan?

Hv. þm. V.-Húnv. sagði, að ég hefði barizt fyrir gengislækkun. Ég hefi ekkert látið uppi í þeim efnum. Hitt er rétt, að 1925 barðist ég fast móti gengishækkun og átti mestan þátt í því, að hækkunin var stöðvuð.

Hæstv. fjmrh. kvartaði yfir því, að ég gæfi ekki skýra yfirlýsingu um það, hvort Sjálfstfl. er með eða móti gengislækkun. Sagðist hann ekki skilja, að ekki væri hægt að skýra frá stefnu flokksins. En sjálfur sagði hann í sinni fyrri ræðu, að gengislækkun gæti aldrei verið stefnumál nokkurs flokks. Ég tek undir þetta. Út af fyrir sig getur og má enginn flokkur gera gengislækkun að stefnumáli, enda þótt allir flokkar geti neyðzt til að beygja sig fyrir staðreyndum viðskiptalögmálsins og samþykkja gengislækkun. En úr því ráðh. hefir þessa skoðun, — hvað er hann þá að spyrja út í loftið?

Hæstv. fjmrh. hældist um af því, að aldrei hefði verið meir gert fyrir atvinnulífið en nú. Verkið lofar þá líka meistarann, því að hér er nú allt í rústum, sem líka er von, bæði vegna skattþungans og ófrelsisins.

Ráðh. færði úr lagi ummæli mín um Bændafl. En úr því að ég nú er orðinn svona merkilegt vitni, — vill ráðh. þá ekki færa fram einhver ummæli mín um stjórnarliða? Þau eru mikið skeleggari, og þar skilst allt, þótt ekkert sé úr lagi fært.

Rök hv. þm. Hafnf. voru fremur fátækleg. Hann réttlætir fall frankans með því, að það hafi orðið að fella hann til að koma í veg fyrir það, sem verra var. En hver talar um að fella gjaldeyrinn að nauðsynjalausu? Þá sagði hv. þm. Hafnf., að Blum hefði hækkað kaupið sem svaraði verðfalli frankans. En þetta er mikill misskilningur. Kauphækkunin nam aðeins broti af verðfalli frankans.

Hv. þm. Hafnf. segir, að Alþfl. sé allur og óskiptur á móti gengislækkun. En hið sanna er, að með aukinni dýrtíð, sem beinlínis stafar frá löggjöf, sem Alþfl. hefir borið fram og samþ., er búið að stórfella krónuna. En auk þess ber hv. þm. Hafnf. sjálfur fram nú á þessu þingi nýtt frv. um 15% gengisfall krónunnar þ. e. a. s. um hinn nýja 15% skatt á allan innflutning. Skýrari og hiklausari yfirlýsingu í þessu máli getur enginn flokkur gefið. En hitt er þá líka heppilegast, að Alþfl. skiljist sem fyrst, að gegn slíkum staðreyndum dugir ekkert kosningahjal eins og það, sem hv. þm. Hafnf. hefir hér í frammi.

Það situr alveg sérstaklega illa á hv. þm. Hafnf. að vera að brigzla Kveldúlfi um gróða af gengislækkun vegna skulda félagsins, því að allir vita, að hans eigið félag, Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, er svo margfalt verr stætt.

Hv. þm. Hafnf. spurði, hvernig sjálfstæðismenn ætluðu að hindra gengisfall, úr því að flokkurinn væri klofinn í málinu. En hvernig ætla þá sósíalistar að vernda krónuna í samvinnu við Framsókn, sem alveg er klofin í málinu og í hvoruga löppina þorir að stíga í því?

Hv. hlustendur, sem hlýddu á umræðurnar hér í hv. deild í gær, fengu nú með öruggri vissu leyst úr þeirri spurningu, sem lengi hefir verið í margra huga og nú síðustu vikurnar á hvers manns vörum:

Verður þingrof?

Já, það verður þingrof.

Hæstv. atvmrh. skýrði frá því, að sósíalistar krefðust, að ríkisrekstrarfrv. þeirra yrðu samþ., ella teldu þeir grundvöllinn vera undan samvinnu stjórnarflokkanna, og hæstv. forsrh. lýsti yfir því, að inn á þá braut myndi Framsfl. aldrei ganga. Báðir minntust hinna stórkostlegu sameiginlegu afreka, sem helzt var að skilja, að bjargað hefðu þjóðinni úr ógöngunum, leitt hana yfir eyðimörkina og í hið fyrirheitna land, þar sem enginn er atvinnulaus og allir skattar hvíla eingöngu á þeim ríku, og það alveg jafnt þótt búið sé að reita allt af öllum, svo að enginn sé ríkur —, eins og lofað var fyrir kosningarnar og í málefnasamningi við stjórnarmyndunina. Báðir þökkuðu klökkir fyrir samvinnuna, virtust ferðbúnir úr sambýlinu, en enn hefir þó hæstv. atvmrh. ekki sagt af sér, og er talið, að þing muni rofið mjög bráðlega, líklega á þriðjudag eða miðvikudag næstkomandi, en stj. þó ekki segja af sér, heldur sitja við völd fram yfir kosningar, hvað sem þá tekur við, og mun margur telja hæpið, að slíkt sé í samræmi við venjur.

Ég tel ástæðulaust, að við sjálfstæðismenn blöndum okkur í heimilisástæður á stjórnarbúinu. Okkur skiptir það litlu, hvorum flokknum tekst betur að telja kjósendum trú um sitt eigið sakleysi í samvinnuslitunum. Við vitum, að þar er hvorugum neitt að kenna, því að báðir eru saklausir. Hér er ekki svikið með kossi, heldur er verið að kyssast í laumi, og er allt í bezta bróðerni bak við tjöldin.

Við Sjálfstæðismenn höfum lengi vitað um hvað til stóð, og minni ég í því sambandi á skrif blaðs Sjálfstfl. í nóvember og desember síðastl., þar sem skýrt og greinilega var sagt fyrir það, sem nú er orðið. Við höfum líka vitað, hvað liggur til grundvallar fyrir þingrofinu, og nýverið staðfesti einn þm. stjórnarliða mest af því.

Stjórnarliðar eru að vísu þreyttir og vonlitlir um sigurvænlega viðureign við örðugleika þá, sem framundan eru. Samt sem áður vilja þeir ekki sleppa völdunum, og getur hver gert sér þá grein fyrir því, sem honum þykir líklegust. Hinsvegar er þeim ljóst, að dragist kosningar í eitt ár enn, verða afleiðingar gerða þeirra komnar í ljós svo berlega, að þeir hafa þá engar sigurvonir.

Þetta er hin raunverulega ástæða til þess ósamkomulags, sem nú ríkir á yfirborðinu milli stjórnarflokkanna. Þeir hafa tekið þá sameiginlegu ákvörðun, að enda þótt veikar vonir standi til sigurs, skuli hætta á, hversu til tekst við kosningar nú, beinlínis vegna þess, að þeim er ljóst, að næsta sumar standa ekki allra minnstu vonir til sigurs fyrir þá.

Við Sjálfstæðismenn fögnum því, að kosningar eru framundan.

Í tíu ár höfum við barizt við rauðliða og lengst af engu ráðið um stjórnarfar og löggjöf, þrátt fyrir það, að atkvæðatala flokksins hefir verið helmingi hærri en nokkurs annars flokks í landinu. Á þessum tíu árum hefir sigið lengra og lengra á ógæfuhliðina. Eignir þegnanna hafa gengið til þurrðar, og jafnframt hafa erlendar skuldir þjóðarinnar margfaldazt. Eignarrétturinn má heita afnuminn, en frelsið til athafna lagt í læðing, svo að vart getur talizt, og raunar allsendis ekki, að nokkur sjálfstæð atvinna verði hér rekin án þess að allt, sem á mestu veltur um afkomuna, sé dregið úr höndum aðilja og lagt á vald opinberra embættis- og sýslunarmanna. Auk þess höfum við sjálfstæðismenn orðið að sæta margvíslegum rangindum og þola það, að önnur lög gangi yfir okkur en fylgifiska valdhafanna. Nú gefst okkur tækifæri til þess að hrista klafann af okkur. Nú gefst okkur færi á að hrinda af höndum okkar þeirri kúgun, sem þjáð hefir okkur og þjakað í áratug.

Sjálfstæðismenn um land allt. Baráttan er framundan. Við göngum til kosninga á miklum alvörutímum. Enn sem komið er höfum við hér syðra ekki nægileg gögn utan úr sveitunum um kjörfylgið til þess að geta dæmt um, hversu þær kosningar muni fara. Hitt, hvað við tekur, ef stjórnarliðar sigra, þekkið þið af reynslunni. Það er ennþá hægt að sigrast á örðugleikunum, bæði út á við og inn á við, ef menn þora að mæta þeim með opnum augum og takast á við þá. Það ætlum við Sjálfstæðismenn enn að gera, ef við sigrum. Þess vegna m. a. er sigur Sjálfstfl. sigur þjóðarinnar.