20.03.1937
Neðri deild: 23. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 405 í C-deild Alþingistíðinda. (1669)

83. mál, ríkisborgararéttur

*Héðinn Valdimarsson:

Ég hefi ekki gert sérstakan ágreining í n. um að veita ríkisborgararétt þeim mönnum, sem hér eru taldir. Þó er ég á þeirri skoðun um annan manninn í röðinni, að ekki ætti að veita honum ríkisborgararétt, a. m. k. ekki að svo stöddu. Hinir, sem allir hafa dvalizt hér lögskipaðan tíma, stundað hér atvinnu og eru í raun og veru orðnir Íslendingar, eru sjálfsagðir til að hljóta borgaraleg réttindi. Annar maðurinn í röðinni var fenginn hingað til lands með sjálfvirku símastöðinni hér í Reykjavík til þess að kenna Íslendingum að stjórna henni, og var ekki ætlazt til, að hann gerði meira. Hann er nú að vísu búinn að starfa hér í 5 ár í opinberri stöðu og hefir þannig uppfyllt skilyrði laganna með dvalartímann, en hinsvegar tel ég enganveginn sjálfsagt, jafnvel þótt skilyrði l. séu uppfyllt, að ríkisborgararéttur sé ávallt veittur, og þar sem nú er svo komið, að nógir Íslendingar eru færir um að taka að sér þetta starf, þá finnst mér rétt, að við það sé ekki hafður útlendur maður. Landssíminn sjálfur hefir nú í sinni þjónustu ekki færri en 5 verkfræðinga, og mun hver þeirra um sig fær um að vinna þetta starf, og þessir menn munu hver um sig vinna fyrir drjúgum lægra kaup en þessi útlendingur. Það ætti því ekki að vera ástæða til að halda sérstaklega í þennan mann, en lofa honum að fara heim til síns lands. Það er sú aðferð, sem Norðmenn sjálfir nota gagnvart Íslendingum, sem vinna í Noregi, að ef hægt er að fá innlenda menn til að vinna þeirra starf, þá eru Íslendingarnir látnir sigla sinn sjó. Því sé ég ekki ástæðu til að vera að halda í þennan mann og legg til, að honum verði ekki veittur ísl. ríkisborgararéttur.