20.03.1937
Neðri deild: 23. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í C-deild Alþingistíðinda. (1670)

83. mál, ríkisborgararéttur

*Frsm. (Thor Thors):

Hv. 2. þm. Reykv. hefir þurft að 1áta það koma hér fram í hv. þd., að hann hefir eitthvað á móti einum umsækjandanum persónulega. Hann óskaði þess í n. um tíma að gera ágreining út af þessum manni, en féll þó frá þeirri ósk við nánari athugun. Ég get nú ekki séð, þó að einhver hv. þm. hafi persónulega andúð á einhverjum ákveðnum manni, að þá eigi að synja þeim hinum sama manni um ríkisborgararétt, þegar hann hinsvegar fullnægir þeim skilyrðum, sem lögin setja í þessu efni. Og hvað snertir atvinnu þessa manns, þá er það vitanlega algerlega óskylt mál, þar sem jafnauðvelt er að víkja manninum frá sínu starfi, hvort sem hann fær ríkisborgararétt eða ekki. N. öll hefir undirskrifað frv. og leggur þar með til, að það verði samþ.