09.04.1937
Efri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í C-deild Alþingistíðinda. (1691)

83. mál, ríkisborgararéttur

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég hefi litlu við að bæta það, sem hv. frsm. sagði. Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, sem ég gerði vegna þess, að ég legg á sérstakri brtt. til, að 2. liður frv. falli burt. Sem ástæðu fyrir því vil ég greina þetta:

Þessi maður mun hafa lagalegan rétt til þess að öðlazt ríkisborgararétt fyrir það eitt, að hann er í opinberri þjónustu. Hann mun vera búinn að vera 5 ár í landinu. En l. mæla svo fyrir, að menn, sem ríkið hefir í þjónustu sinni, geti öðlazt ríkisborgararétt. Er þetta vitanlega gert til öryggis, ef menn vilja tryggja þessa menn í landinu, vitanlega miðað við, að þeir séu við þau störf áfram, sem þeir hafa haft á hendi. Það er ekki hægt að segja, að þessi maður, sem ég vil nema burt úr frv., sé ómissandi maður fyrir okkur. Hann byrjaði að vísu við sjálfvirku stöðina, þegar hún var sett upp, en eftir á, þegar farið var að starfrækja hana hér, hefir virzt nægilegt af vinnandi mönnum til þess að inna hans starf af hendi. Maður þessi hefir oft og einatt tafizt frá verki sínu, stundum jafnvel farið til útlanda í sumarfríi, og þá hafa innlendir menn tekið við störfum hans á meðan. Og ekki virðist annað en allt hafi gengið vel samt. Við stjórn og starfrækslu símans eru svo margir innlendir menn, sem hafa verkfræðilega þekkingu og gætu tekið þetta starf að sér, að það er að mínu áliti ekki rétt að hefta möguleikana fyrir því, að þeir geti komizt að þessari stöðu, með því að binda þennan mann við starfið, því að ef þessum manni yrði veittur ríkisborgararéttur, þá yrði hann sjálfsagt hér á landi svo lengi sem starfskraftar hans entust. Þó að hér sé aðeins um þennan eina mann að ræða, með tilliti til þessa atriðis, þá tel ég Alþ. eigi að vera ákaflega varfærið í því að hrúga erlendum mönnum inn í landið og festa þá hér. Meðal iðnaðarmanna er hreyfing á móti því að innleiða hingað menn til starfa, sem Íslendingar geta sjálfir innt af höndum. Og Íslendingar eru ekki þeir einu, sem þessa afstöðu hafa um þetta efni. Mér hefir nýlega borizt í hendur skýrsla, þar sem gerð er grein fyrir því, hvað sé unnið að því í löndum yfirleitt að bægja útlendingum frá innlendum störfum. Skýrslan er ekki ný. Nýjustu tölur hennar eru frá 1930. En eftir þessari skýrslu virðist stefnan meðal þjóðanna, og ekki sízt Norðurlandaþjóðanna, vera sú, að herða á þeim lagaákvæðum, að bægja útlendingum frá því að festast í löndunum. Ég vil benda á, að árið 1930 er talið, að í Þýzkalandi hafi verið 12‰ útlendingar, og í Eistlandi 12‰. Ítalía er með 3‰ og Stóra-Bretland með 4‰. Noregur er aftur með 12‰ og Danmörk, eftir því sem ég kemst ræst, er með 10‰ útlendinga af íbúunum. Þessi skýrsla frá árinu 1930 sýnir, að í öllum löndum er unnið að því, að þessi tala verði sem lægst. Af hverju sem þetta stafar mest, mun mega rekja ástæðurnar til þessa m. a. til þess, að í flestum löndum hefir ríkt nokkurt atvinnuleysi, og íbúum landanna hefir verið illa við að útlendingar kæmu til að keppa um atvinnu við innfædda menn. Þessi stefna er einnig farin að gera verulega vart við sig hér hjá okkur. Fyrir mér er það því stefnumál, að ég tel ekki rétt að farið sé að nauðsynjalausu að veita útlendingum, sem hér starfa, ríkisborgararétt, þegar til eru menn í landinu, sem geta innt þeirra störf af höndum. Og ég hygg, að við sjálfvirku stöðina séu menn til starfandi, sem geta fullkomlega tekið störf þau, er þessi umræddi maður hefir með höndum. Og fari nú svo, að Alþ. fallist á, að veita honum ekki ríkisborgararétt, þá er hann þó vitanlega svo lengi sem honum er ekki sagt upp starfinu, bundinn hér á landi. En möguleikarnir til að láta hann fara frá starfinu eru meiri með því að veita honum ekki ríkisborgararétt heldur en ef honum er veittur hann. Þess vegna legg ég til, og hefi þar með í huga mína yfirlýstu stefnu í þessum málum, að þessum manni verði ekki veittur ríkisborgararéttur samkv. frv.