09.04.1937
Efri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (1692)

83. mál, ríkisborgararéttur

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég hefi því miður ekki fylgzt nægilega vel með þessu máli gegnum þingið. En um þetta vildi ég þó segja það, að í raun og veru ætti alveg að hverfa frá þeirri venju, sem hér hefir ríkt á Alþ., að einstakir hv. þm. beri fram frv. um veiting ríkisborgararéttar, og ætti slík frv. í hvert skipti að vera stjfrv.

Það er vitanlega misskilningur hjá hv. 4. þm. Reykv., eins og kom fram í ræðu hans, að þessir menn eigi nokkurn rétt á veiting ríkisborgararéttar. Með l. voru á næst síðasta Alþ. talsvert þrengd skilyrðin fyrir því, að menn gætu öðlazt þennan rétt, og það torveldað. Þá voru frv. um veiting ríkisborgararéttar til meðferðar á Alþ., sem ég stöðvaði, vegna þess að þar var um að ræða menn, sem ekki uppfylltu skilyrði, sem sett eru í l. fyrir því, að ríkisborgararétt megi veita, þó að þau skilyrði séu nú reyndar ekki eins ströng og ég vildi vera láta. En þó að menn uppfylli skilyrði, sem sett eru í l. fyrir því, að veita megi þeim ríkisborgararétt, þá er það alls ekki sagt í l., að þeir eigi rétt á því að fá hann. Og ég álít, að það sé eitt mjög alvarlegt mál, hvað við yfirleitt höfum verið fúsir á að veita útlendingum ríkisborgararétt hér. Það eru ekki nein smávægileg réttindi, sem þessum mönnum eru veitt með ríkisborgararéttinum. Við höfum veitt mörgum þennan rétt án sérstakra verðleika, ef þeir hafa ekki brotið neitt af sér. En veiting þessa réttar er í öðrum löndum verðlaun til handa þeim mönnum, sem sérstaklega hafa unnið til þess að fá hann.

Þessar skýrslur, sem hv. 4. þm. Reykv. las upp, segja meira en hann las upp. Á þeim geta menn séð, hversu tregir menn eru í öðrum löndum á að veita ríkisborgararétt, og að þeim mönnum, sem ekkert hafa unnið til hans annað en að hafa ekkert brotið sérstaklega af sér, er ekki veittur hann. Einn maður, sem verið hafði í Noregi í 20 ár, var rekinn þaðan frá atvinnu og hingað heim.

Ég þekki engan þessara manna, sem á frv. eru, og hefi ekkert á móti þeim persónulega að segja. En þeir hafa hér almenn réttindi og það má leyfa þeim að hafa hér atvinnu 1 eða 2 ár í senn, eða þann tíma, sem stjórnarráðið tiltekur, samkv. l. um atvinnuleyfi eða l. um dvalarleyfi útlendinga hér á landi. En sé þeim veittur ríkisborgararéttur samkv. þessu frv., er þeim þar með veittur jafn réttur í einu og öllu sem íslenzkum þegnum, sem ekki er afturkallanlegur. Ég vil þess vegna ekki, þótt mönnum megi veita ríkisborgararétt, að gengið sé inn á það sem reglu að gera það, ef það aðeins er leyfilegt samkv. l. Og ég álít, að því minni ástæða sé til þess að samþ. þetta frv. sem þessa dagana einmitt er lokið við að semja reglugerð um eftirlit með útlendingum. Ég aflaði mér gagna frá útlöndum og fékk lögreglustjóra til þess að gera frv. að reglugerð, sem var síðan sent sendiráðinu í Kaupmannahöfn til þess að yfirfara það og bera saman við þær reglugerðir um þetta, sem nú tíðkast annarsstaðar í löndum. Nú er þessi reglugerð komin, og 10 af hinum nýju lögregluþjónum verður falið að annast eftirlit með útlendingum. Næstu dagana verður farið að framkvæma þetta eftirlit, gera skrá yfir þá af útlendum mönnum, sem hér eru, og farið að líta eftir þeim nýju, sem koma. Og ég álít, að í samræmi við þetta eftirlit með útlendingum eigi að koma miklu strangari reglur um að veita útlendum mönnum ríkisborgararétt, sem Alþ. ætti að fara eftir. Þess vegna álít ég, að frv. þetta eigi alls ekki að afgr., fyrr en búið er að ganga frá þeirri talningu, sem á að gera á útlendingum hér, og öðrum eftirlitsráðstöfunum samkvæmt þeim reglum, sem nú hafa verið teknar upp.

Ég er viss um, að hver einasti hv. þm. í þessari d. mun viðurkenna það, þegar hann hefir um það hugsað, að við höfum verið allt of eftirgefanlegir með að veita ríkisborgararétt. Ef farið er gegnum dómsskjöl, kemur það í ljós, að 200–300% fleira er þar af útlendingum en innlendum mönnum, sem komizt hafa undir refsiákvæði l. — En ég vil taka það fram, að ég hefi ekkert misjafnt heyrt um þetta fólk, sem frv. ræðir um. Og ég hefi enga ástæðu til að ætla annað en að það sé ágætisfólk. En þetta eru bara almennar upplýsingar, sem ég get gefið um þetta mál.