10.04.1937
Efri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í C-deild Alþingistíðinda. (1697)

83. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Ég ætla að upplýsa, eftir skýrslum, sem ég hefi fengið, að það er ekki rétt, að það séu nægir menn til að vinna við landssímastöðina hér í stað þess manns, Haarde, sem hér sækir um ríkisborgararétt, og landssímastjóri telur, að þann mann megi ekki missa.

Ég skal upplýsa það, að n. hefir ákveðið að bæta við einum manni í frv. Sá maður er faðir Sigurðar Jónassonar og er fæddur hér á landi, en fluttist til Ameríku og hefir misst íslenzkan ríkisborgararétt, en vill fá hann aftur.

Sú kona, sem sækir um ríkisborgararétt, er fædd á Íslandi, en fór til Hamborgar. Hún kynntist þar manni, sem hún svo giftist og átti með eitt barn. Svo missir hún manninn nokkru seinna og hefir verið heima síðan. Þetta eru í raun og veru Íslendingar, og þeir verða þó aldrei reknir af landi burt. Hans Eide hefir verið hér í mörg ár kaupmaður í Rvík; hann er fæddur í Noregi og fluttist hingað árið 1897, og hefir því verið hér í 40 ár. Ég vil því draga í efa þau orð hæstv. forsrh., að n. hafi ekki valið rétta menn til að öðlast ríkisborgararéttinn, enda hefir engin óánægja gert vart við sig um þetta fyrr en hér í hv. d. Í Nd. voru allir flokkar sammála um frv.