16.04.1937
Efri deild: 42. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í C-deild Alþingistíðinda. (1709)

83. mál, ríkisborgararéttur

*Jón Auðunn Jónsson:

Ég get sagt svipað og hv. 1. þm. Eyf. um þessi skjöl. Það sótti maður að vestan um ríkisborgararétt í þetta sama skipti; hann hafði öll skjöl í lagi, nema það vantaði skilnaðarvottorð, sem ekki var hægt að ná í í svipinn. Af þeirri ástæðu tók n. ekki ákvörðun um umsóknina í það sinn, en svo í fyrra fundust ekki þessi skjöl, svo að maðurinn varð að fara að útvega þau frá Noregi á ný og er ekki búinn að fá þau enn. Hann bað mig að bera fram till. um sig nú, en ég sagði, að það þýddi ekki, fyrr en skjölin væru fyrir hendi. Þessi maður er búinn að vera hér í 30 ár og á uppkomin börn. Samt sá ég mér ekki fært að bera fram till. um hann, þar sem skjölin vantar.