02.04.1937
Efri deild: 30. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (171)

13. mál, Kreppulánasjóður

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Það mun láta nærri, að óráðstafað af því fé, sem ætlað var til lánveitinga í þessu skyni, sé um 400 þús. kr. Nú er það upplýst, að öll þau sveitarfélög, sem sóttu um lán á tilsettum tíma, fengu úrlausn hjá sjóðnum, nokkurnveginn fullnægjandi, eftir því sem fært þótti. Og ennfremur, að eftir þann tíma, sem umsóknarfresturinn var úti, kom enn umsókn frá 2–3 sveitarfélögum um hjálp, og sjóðsstjórnin varð einnig við þessum umsóknum. Ég verð að segja, að mér finnst það hæpið að fara nú, nokkrum mánuðum síðar, að bjóða sveitarfélögum enn upp á frekari lán í þessu skyni, — ég meina almennt til skuldaskila. Ég sé ekki ástæðu til að hvetja sveitarfélög sérstaklega til að sækja um lán úr þessum kreppulánasjóði. Hinsvegar gæti ég fallizt á að nota það fé, sem eftir er, til þess að koma lánum læknishéraða á réttan kjöl, eins og segir í b-lið brtt. n. Ég teldi rétt, ef á annað borð á að taka með a-lið í brtt. n., að hafa það þá síðasta lið og segja, að ef eitthvað yrði afgangs, þegar búið væri að veita fé til að framkvæma hina liðina, þá kæmi sá liður til framkvæmda. Ég sé ekki, að ástæða sé til að hafa þennan frest lengri en hv. 4. þm. Rykv. leggur til, og verði þetta frv. afgr, sem l. hér á þingi, þá er áreiðanlegt, að þeim sveitarfélögum, sem vilja njóta þeirra, er það kunnugt og hafa því nógan tíma til að sækja um lán.

Ég er ekki við því búinn að gera brtt. við frv. nú, en vil helzt mælast til að fresta till. til 3. umr., og þá mundi ég koma með brtt. fyrir þann tíma í þá átt, sem ég hefi nú gert grein fyrir.