16.04.1937
Efri deild: 42. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í C-deild Alþingistíðinda. (1711)

83. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Ég sé ekki ástæðu til að taka málið út af dagskrá; ég hélt, að það væri búið að tefja nóg fyrir því hér í d., enda er auðsætt, að það kemst ekki fram, ef farið er að taka það út af dagskrá nú. En ég veit, hvað liggur á bak við hjá hv. 4. þm. Reykv.; hann er búinn að greiða atkv. á móti frv. og vill náttúrlega gjarnan sálga því með því að taka það út af dagskrá. Hefir hann þannig snúizt í málinu, síðan n. afgr. það, því að þá skrifaði hann undir nál. um að mæla með því, að frv. yrði samþ. óbreytt. Ég vil halda mig við nál. og mælist til, að frv. komi til atkv. nú.