22.03.1937
Neðri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í C-deild Alþingistíðinda. (1719)
84. mál, sala mjólkur og rjóma o. fl.
Bjarni Ásgeirsson:
Ég gerðist meðflm. að þessu frv. vegna þess að ég álít höfuðstefnu þess rétta. Ég tek undir það með hv. þm. G.-K., að þeir erfiðleikar, sem menn í nærsveitum Rvíkur eiga við að búa, eru mjög miklir. En þó held ég, að hann geti ekki fært rök að því, að þeir erfiðleikar stafi af þeim mjólkurlögum, sem nú eru. Þeir erfiðleikar stafa eingöngu af hinni miklu aukningu, sem hefir orðið á mjólkurframleiðslunni á síðustu árum, og það hefir ekki verið hægt að ráða fram úr þeim örðugleikum, nema með löggjöf, sem styrkti bændurna til að halda mjólkurverðinu uppi. Ef þessi lög hefðu ekki komið, þá væru margir bændur verr settir en þeir nú eru. Það er bezt að segja það strax, að ég er ekki þeirrar skoðunar, að réttast sé, að þeir menn, sem mjólk framleiða og selja í bæjum, fái allir sama verð að sínum bæjardyrum, og ég skal þessu næst færa rök að þessari skoðun minni. Þeir menn, sem keypt hafa lönd hér í nágrenni Rvíkur, hafa að vísu orðið að gefa meira fyrir það heldur en þeir hefðu orðið að gera, ef þeir hefðu keypt land t. d. austan heiðar. Og það er öllum kunnugt, að lönd umhverfis Rvík eru miklu erfiðari til ræktunar heldur en víðast hvar á suðurlandsundirlendinu. Þetta eykur kostnaðinn ennþá meir. En því verður svarað þannig, að það kemur ekki málinu við, hversu dýrt er að framleiða vöruna, því það er staðreynd, að réttast er að framleiða vöruna þar, sem ódýrast er að framleiða hana. En það er þó óhugsandi að ganga frá nokkurri löggjöf án þess að tryggja það, að hægt sé að hafa það, mikla framleiðslu í nágrenni Rvíkur, að bærinn þurfi ekki að verða mjólkurlaus. Ég vil geta þess, að þegar þessi verkaskipting er komin á, sem nú er, að búin framleiði smjör, osta og skyr, en bændur í nágrenni Reykjavíkur selji sína mjólk óunna á markaðinn, þá hlýtur að leiða til þess fyrr eða síðar, að verðjöfnunargjaldið hrökkvi ekki til þeirrar verðuppbótar, sem tilskilið er, vegna þess að langmestur hluti mjólkuraukningarinnar fer í verðminnstu vörurnar. En sú verðjöfnun, sem sett var með lögum 1935, er nú rokin út í veður og vind, af því framleiðslan hefir aukizt svo mikið, þar sem hér er um tiltölulega nýja framleiðslugrein að ræða. Ég vil geta þess í því sambandi, að þar, sem búfjársjúkdómarnir eru skæðastir í Borgarfirði, þá taka menn sem óðast upp mjólkurframleiðslu. Það verður að finna einhvern grundvöll milli þeirra, sem búa í fjársveitum, og hinna, sem framleiða í bæjarlandinu eða í nágrenni Rvíkur, og ef mjólkin hækkar í heild á markaðinum, þá á hún að hækka hlutfallslega á hvern einstakan bónda. Ég hefi ekki reiknað út þann verðmun, sem nemur flutningskostnaði að austan. Hæstv. forsrh. sagði, að það væru 4½ au. á hvern lítra. Ef lagður er til grundvallar sá verðmunur hjá bændum austan heiðar og bændum í nágrenni Rvíkur, þá hljóta bændur í nágrenni Rvíkur að standa betur að vígi en hinir, og að réttu lagi ætti að taka meira tillit til þess aðstöðumunar en nú hefir verið gert. Ýmislegt fleira gæti komið hér til greina.
Ég vil taka undir það með hv. þm. G.-K., að það má fullyrða, að búast má við mikilli lækkun á mjólkurverði, ef sama aukning heldur afram á framleiðslu mjólkurinnar, og það er víst, að bændur í nágrenni Rvíkur þola ekki meiri lækkun á mjólkinni, ef þeir eiga að geta setið lengur við sín bú. Það er ekki hægt að bjarga þessum mönnum með því að skera meira af skuldum þeirra en búið er, en verði þeir fyrir skakkaföllum af þessu frv., þá mun ég beita mér fyrir því, að ráðstafanir verði gerðar til að bjarga þeim.
En ég vil undirstrika það, að friður fæst aldrei um þetta mjólkurmál, og bændur fást aldrei til þess að finna, hvað þetta mál er sameiginlegt hagsmunamál þeirra, fyrr en búið er að koma því þannig fyrir, að mjólkin hækki og lækki sameiginlega hjá þeim öllum, hvort sem þeir eru nærri Rvík eða fjarri. Þetta er aðaltilgangur frv., og ég álít, að hægt sé að gera þetta réttlátlega, þegar búið er að finna hinn eðlilega mismun, sem verður að vera á mjólkurverði hér og í nærsveitunum, ef hægt á að vera að tryggja það áfram, að Rvík fái þá mjólk, sem hún þarf að grípa til, ef flutningar til fjarlægari sveita teppast í nokkra daga.