31.03.1937
Neðri deild: 28. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í C-deild Alþingistíðinda. (1726)

84. mál, sala mjólkur og rjóma o. fl.

*Jakob Möller:

Ég var ekki viðstaddur fyrri hl. þessarar umr., svo að verið getur, að eitthvað af því, sem ég segi, hafi verið sagt áður. En ég verð að vekja athygli á einni hlið þessa máls, er horfir að Reykjavíkurbæ. Ef þetta frv. nær framgangi, er hætt við, að Reykjavík fái ekki þá mjólk, sem hún þarf. Tilgangur frv. er að lækka það verð, sem bændur hér í nágrenni geta fengið fyrir mjólkurframleiðslu sína. Afleiðingin myndi verða sú, að þeir færu að beina framleiðslu sinni í aðra átt og leggja fyrir sig annan atvinnurekstur. Þá gæti mjólkurframleiðsla minnkað svo hér í nágrenni, að um vetrartímann, þegar loku er fyrir það skotið, að hægt sé að koma hingað mjólk austan yfir fjall, yrði Reykjavík mjólkurlaus um langan tíma. Frv. byggir ekki fyrir þetta. Frv. vill tryggja þeim, sem ekki geta jafnaðarlega selt mjólk til Reykjavíkur, sama verð og hinum, sem það geta allt árið. Slíkt er ranglæti. Væri því óforsvaranlegt að setja slík l., og gegnir furðu, að annað eins frv. skuli koma fram.