19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í C-deild Alþingistíðinda. (1738)

84. mál, sala mjólkur og rjóma o. fl.

Ólafur Thors:

Á sviði stjórnmálanna eru fá mál, sem á síðari árum hafa verið rædd í blöðum landsins, á stjórnmálafundum og í sölum Alþingis til jafns við mjólkurmálið. Þetta er eðlilegt, því að málið er viðkvæmt hagsmunamál, eigi aðeins mörg þúsund bænda, heldur snertir það og hag tugi þúsunda neytenda, nægjanlega mikið til þess, að einstakir menn hafa reynt að nota þá hlið málsins sjálfum sér eða flokki sínum til framdráttar. En auk þess er málið út af fyrir sig erfitt viðfangs, og mikill vandi er að skipa því, hvort heldur er með frjálsum samtökum eða lagasetningu, svo að vel fari og réttlátt tillit sé tekið til hagsmuna allra aðilja.

Þess er nú að sjálfsögðu enginn kostur, og raunar heldur engin þörf, að rekja hina löngu baráttu framleiðenda, undir forystu Eyjólfs Jóhannssonar forstjóra, við vanþroska félagsmálaskilning og vaxandi örðugleika vegna nýrra hagsmunasjónarmiða, sem á þeim árum sköpuðust og tóku örum breytingum. Sú saga er kunn, og ég held, að flestir játi, að framleiðendum tókst alveg furðu vel að halda saman þrátt fyrir innbyrðis ólíka hagsmuni.

Mjólkurlögin, sem sett voru árið 1934, voru þó sett fyrir frumkvæði og samkvæmt óskum framleiðenda, sem þá töldu svo komið málum, að ekki yrði lengur komizt af án þess að festa samstarf þeirra með vissum lagafyrirmælum.

Að þessu sinni ætla ég hvorki að gagnrýna að nokkru verulegu leyti þá löggjöf — hún var frá öndverðu gölluð — né framkvæmd hennar, sem alla tíð hefir verið fullkomið hneykslunarefni sérhverjum dómbærum manni, sem því máli hefir kynnzt. Verður að vísu að játa, að slík gagnrýni er eigi aðeins freistandi, heldur stappar nærri því, að það sé bein skylda að nota slíkt tækifæri og hér gefst nú til að færa hana fram og sýna þar með og sanna, að þetta mikla hagsmunamál bænda hefir allt frá því, er mjólkursölunefnd settist á laggirnar, verið í höndum alveg óvenju ófyrirleitinna, manna, sem jafnan hafa sett önnur og oft ólík sjónarmið ofar hagsmunum bændanna, en auk þess skort starfhæfni, svo að margt hefir farið í handaskolum.

En allt þetta leiði ég hjá mér vegna þess, að enda þótt á miklu velti, að bændur kynnist fortíð þessara mála, til þess m. a. að vítin geti orðið þeim til varnaðar, bæði að því er forystu og framkvæmd snertir, þá veltur þó á meiru, að menn geri sér glögga grein fyrir því, hversu þessum málum er nú komið, og hverjar uppástungur eru gerðar til framtíðarúrlausnar. Því að um það hljóta þó allir að vera sammála, einnig hér á þessu háa Alþingi, þar sem svo dýrmæt perla sem almenn viðurkenning á augljósum staðreyndum alltaf verður sjaldgæfari og sjaldgæfari, að svo sem nú er komið fjárhag bænda, stafar beinn voði um almennt hrun af sérhverri þeirri skyssu, er löggjafinn kann að gera í þeirra hagsmunamálum. Fyrir þessum sannleika beygjum við sjálfstæðismenn okkur, — gleymum þeim syndum andstæðinganna, sem fortíðinni tilheyra, ef með því mætti takast að ná samkomulagi um þá framtíðarlausn í þessu mikla hagsmunamáli bændanna, sem skynsamleg er og þeim sjálfum hagkvæmust. Ég skal því stilla mig um að líta um öxl, nema að svo miklu leyti, sem þess verður þörf til þess að glöggva sig sem bezt á framtíðinni og bregða birtu yfir þær mismunandi leiðir, sem nú er bent á til úrlausnar þeim vanda, er við blasir.

Ég skal þá fyrst leyfa mér að leiða athygli að því, að þegar mjólkurlögin voru sett árið 1934, var talið að sem næst ? hlutar þeirrar mjólkur, sem framleidd var til sölu á verðlagssvæði Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, seldust sem neyzlumjólk, en afgangurinn fari til vinnslu. Þannig voru tveir lítrar neyzlumjólkur móti hverjum einum lítra vinnslumjólkur, og nægir því þriggja aura verðjöfnunargjald á hvern lítra neyzlumjólkur til þess að framleiða 6 aura verðuppbót á hvern lítra af vinnslumjólkinni. Utan um þessa staðreynd voru mjólkurlögin svo samin. Nú er þetta allt gerbreytt. Hlutfallsröskunin milli neyzlu- og vinnslumjólkur hefir á þessum stutta tíma orðið svo stórkostleg, að árið 1936 var neyzlumjólkin aðeins 5 milljónir lítra, en vinnslumjólkin orðin hvorki meiri né minni en 6,7 millj. lítra, en af því leiðir, að 3 aurar af lítra neyzlumjólkur nægja nú ekki lengur til að bæta hvern lítra vinnslumjólkur upp með 6 aurum, heldur aðeins með rúmlega 2 aurum. Með þessu hefir skapazt algerlega ný aðstaða, sem kallar á nýjar leiðir til úrbóta. Hinn öri vöxtur mjólkurframleiðslunnar og stórkostlega hlutfallsröskun milli neyzlu- og vinnslumjólkur hefir sprengt af sér mjólkurlögin, og innan þeirrar löggjafar rúmast alls ekki lengur sú verðjöfnun milli framleiðenda innan verðjöfnunarsvæðisins, sem með samþykki allra hlutaðeiganda fékk viðurkenningu löggjafans með mjólkurlögunum. Þetta má víst telja viðurkennt af öllum, enda liggja nú fyrir Alþingi 2 frv. um breytingar á mjólkurlögunum. Það frv., sem hér er til umr. og flutt er af hv. framsóknarmönnum, og frv. þeirra hv. 2. þm. Rang., Péturs Magnússonar, og hv. 10. landsk., Þorsteins Briems, á þskj. 281. Í þessum frv. er bent á tvær algerlega mismunandi leiðir til verðjöfnunar milli framleiðenda innan sama verðjöfnunarsvæðis. Má víst segja, að það sé um tvær algerlega ólíkar stefnur að ræða, en það, sem allt veltur nú á, er, að menn geri sér sem allra réttasta grein fyrir kostum og göllum á hvorri leiðinni fyrir sig, og það því fremur, sem víst má telja, að hvorugt frv. verði samþ. nú, vegna þess þingrofs, sem framundan er, og gefst því hlutaðeigandi bændum ágætt tækifæri við í hönd farandi kosningar til þess að tryggja sér, að frambjóðendur í þeim héruðum fylgi þeirri leið í þessum málum, sem bændur telja sér sjálfum til mestra hagsbóta. Við þennan samanburð verða menn að hafa það hugfast, að telja má öldungis víst, að þróunin í búskaparháttum á þessu verðjöfnunarsvæði stefni áfram í sömu átt og undanfarin ár, þ. e. a. s. að bændur í æ ríkari mæli hverfi frá kjötframleiðslu og að mjólkurframleiðslu. Mjólkurbúin, áveiturnar austan fjalls, bættar samgöngur, allt ber að einum brunni. Ofan á allt þetta hefir nú bætzt hin geigvænlega sauðfjárpest, sem þegar hefir valdið ægilegu tjóni, og er þó jafnvel líklegast, að enn eigi eftir að koma í ljós það, sem verst er. En hvort þessi pest spennir helgreipar sínar um eigur og afkomu fleiri eða færri sauðfjárbænda, er það eitt víst, að bein afleiðing hennar hlýtur að verða, að fleiri eða færri bændur hverfa að mestu eða öllu frá sauðfjárræktinni að framleiðslu mjólkur.

Ég minni nú á það, er ég áður sagði, að árið 1934 var talið, að á þessu verðjöfnunarsvæði seldust 2 lítrar af neyzlumjólk á móti hverjum einum af vinnslumjólk. Í dag eru þessi hlutföll svo gerbreytt, að ekki er nema einn lítri neyzlumjólkur móti nærri hálfum öðrum af vinnslumjólk, og ég hika ekki við að fullyrða, að fyrr en varir er hinu fyrstnefnda hlutfalli alveg snúið við, þannig að ekki verður nema einn lítri neyzlumjólkur gegn hverjum 2 lítrum vinnslumjólkur, og mun þó þessi hlutfallsröskun enn vaxa, er frá líður.

Út frá þessu sjónarmiði ber nú að athuga þessar tvær mismunandi leiðir til úrbóta, sem fyrir hinu háa Alþingi liggja, þ. e. a. s. till. Framsfl., sem felast í því frv., sem hér er til umr., og till. Sjálfstfl. og Bændafl., sem felast í frv. Péturs Magnússonar og Þorst. Briems á þskj. 281.

Þessi samanburður er í sjálfu sér mjög auðgerður. Bæði sjónarmiðin viðurkenna, að mjólkurlögin, eins og þau eru, séu aðeins dauður bókstafur og hafi raunar í framkvæmdinni aldrei annað verið. Bæði frv. leggja til, að „sama verð sé greitt fyrir mjólkina til allra mjólkurbúa á verðjöfnunarsvæðinu, komna á sölustað innan verðjöfnunarsvæðisins“, eins og Pétur Magnússon og Þorst. Briem orða það, eða „allir mjólkurframleiðendur á verðjöfnunarsvæðinu fái sama verð fyrir mjólk sína, komna á sölustað verðjöfnunarsvæðisins“, og sé þá „stöðvarkostnaður“ „talinn jafn hjá öllum framleiðendum“, eins og það er orðað í frv. framsóknarmanna. Báðir ætlast þannig til, að mismunur útborgaðs verðs til bænda innan sama verðjöfnunarsvæðis velti á þeim mismun, sem kann að vera á rekstrarkostnaði einstakra mjólkurbúa innan verðjöfnunarsvæðis, og í öðru lagi á aðstöðumun bænda um flutning mjólkur að mjólkurbúinu, og í þriðja lagi á mismun flutningskostnaðar einstakra mjólkurbúa á sölustaðinn. Má að vísu með óyggjandi rökum sýna fram á veilurnar í þeirri hugsun, en skal þó eigi gert að þessu sinni, bæði vegna þess, að það eitt og út af fyrir sig er ærið viðfangsefni í lengri ræðu en mér er heimilt að flytja hér í kvöld, og einnig af því, að vegna þess samanburðar, sem hér verður gerður, skiptir þetta ekki máli.

Skal ég þá víkja að því, sem á milli ber og veigamest er.

Frv. framsóknarmanna byggir á því, að bændur séu látnir alveg einir og óstuddir um að leysa vandann, þ. e. a. s. að standa undir verðjöfnuninni. Af því leiðir tvennt. Fyrst það, að þeir bændur, er frá öndverðu hafa byggt búskap sinn á sölu nýmjólkur, lenda þegar í stað í hinum mestu þrengingum. En auk þess er það alveg augljóst mál, að þannig löguð verðjöfnun leiðir þegar í stað til lækkaðs útborgaðs mjólkurverðs til allra bænda á verðjöfnunarsvæðinu, vegna þess að nær allur vöxtur mjólkurframleiðslunnar kemur fram í aukinni vinnslumjólk, en eftir því sem neyzlumjólkin þarf að verðbæta fleiri lítra af vinnslumjólk, eftir því verður uppbótin minni á hvern lítra, og lækkar þá útborgað verð til allra bændanna auðvitað að sama skapi.

Þessa hugsun má orða enn skýrara á þann hátt, að eftir því sem vinnslumjólkin vex í hlutfalli við neyzlumjólkina, eftir því verður meðalverð lægra, en sú lækkun lendir auðvitað jafnt á öllum bændum, sem hlut eiga að máli, því að mjólkurlögin eiga öll að fá sama verð fyrir mjólkina, komna á sölustað. Kemur verðlækkun þessi, vegna þeirrar framkvæmdar, sem frá öndverðu hefir verið á mjólkurlögunum, þegar í stað niður á öllum bændum á verðjöfnunarsvæðinu nema þeim, sem mjólk framleiða á bæjarlöndum Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, en til þeirra á verðlækkunin á hverjum tíma að ná ári síðar samkv. frv. framsóknarmannanna.

Ég verð nú til skýringar á áður umgetnum till. Péturs Magnússonar og Þorst. Briems að geta þess, að þrátt fyrir skýlaus fyrirmæli mjólkurlaganna um verðuppbætur á vinnslumjólk hefir mjólkursölunefndin frá öndverðu farið sínar eigin götur í þeim efnum alveg utan við lög og rétt. Mjólkurlögin leggja 3 aura skatt á hvern lítra neyzlumjólkur. Með því fé, og ekki öðru, ákveða lögin, að bæta skuli upp vinnslumjólkina. Á árinu 1935 skorti verðjöfnunarsjóð, sem svaraði 1 eyri á vinnslulítra, til þess að geta staðið undir þeirri framkvæmd mjólkurlaganna, sem mjólkursölunefnd hefir ákveðið, eða 52 þúsund krónur. En á síðasta ári eru tekjur verðjöfnunarsjóðs 211 þúsund krónum minni en kröfurnar á hann samkv. nefndri framkvæmd, eða um 3,15 aura á hvern lítra vinuslumjólkur, og veit ég í sannleika sagt ekki, með hverjum hætti á að vera hægt að efna þessi fyrirheit mjólkurnefndar.

Ég ætla þá að víkja að frv. Péturs Magnússonar og Þorst. Briems. Þeir krefjast þess, að þessari verðjöfnun verði komið á, án þess að útborgað verð til bænda lækki frá því, sem nú er, að óbreyttum kostnaði við rekstur búanna og útsöluverði mjólkur, skyrs og rjóma. Til þess að þetta megi takast, verður að sjálfsögðu að afla verðjöfnunarsjóði annara og meiri tekna en þeirra, sem honum drjúpa úr pyngju bændanna einna. Leggja þeir því til, Pétur Magnússon og Þorst. Briem, að lagður verði 50 króna tollur á hverja smálest aðkeypts kjarnfóðurs, með vissum undantekningum þó, og að landbnrh. heimilist að skipa svo fyrir, að öll sölubrauð á verðjöfnunarsvæðinu skuli blönduð mjólkurdufti, og ákveður ráðh. í samráði við mjólkursölunefnd verð á þeirri mjólk, sem notuð er á þennan hátt, en sú verðhækkun, sem á þann hátt yrði á þeirri mjólk, fellur verðjöfnunarsjóði óskipt. Loks er í frv. gert ráð fyrir, hrökkvi þessar tekjur verðjöfnunarsjóðs ekki til, að þá greiði ríkissjóður það sem á vantar.

Ég skal svo aðeins til frekari skýringar enn minna á, að siðasta ár skorti verðjöfnunarsjóð 211 þús. krónur til að geta greitt bændum á verðjöfnunarsvaðinu það, sem þeim hefir verið lofað. Alls var framleidd sölumjólk 11,7 millj. lítra, og hefði því verðlækkun til banda, jafnt í nærsveitum sem fjærsveitum, orðið 1,8 eyrir á hvern lítra ef frv. framsóknarmanna, það sem hér er borið fram, þá hefði verið orðið að lögum. Ennþá greinilegri verður þó munurinn, þegar mjólkurframleiðslan er orðin svo mikil, að tveir lítrar vinnslumjólkur komi á hvern lítra neyzlumjólkur, eins og bráðlega mun verða, en þá mun nær allur framleiðsluaukinn ganga til vinnslu á verðminnstu afurðunum. Held ég, að eigi fari fjarri, þegar að því kemur, að mjólkurmagnið komist upp í 15 milljónir lítra, að þá verði munurinn á útborguðu verði til bændanna frá því, sem nú er, samkv. frv. framsóknarmannanna, mjög nærri 3½ eyri á lítra, en samkv. frv. Péturs Magnússonar og Þorst. Briems mundi það verða óbreytt.

Það má að vísu játa, að bæði hafa þessi frv. nokkra ágalla, en sá er munurinn, að frv. Péturs Magnússonar og Þorst. Briems hefir enga ágalla umfram frv. framsóknarmanna aðra en þá, sem skýrt er frá í grg. og ekki geta talizt verulegir, en það hefir hinsvegar þá kosti umfram frv. framsóknarmannanna, að það bjargar bændunum frá hruni, en hitt kemur þeim á kné.

Það er náttúrlega hægt að reyna að villa mönnum sýn í þessu máli. Það er hægt að torvelda samanburðinn með mörgum tölum og flóknum. En það er aldrei hægt að komast framhjá þeirri auðskildu og augljósu staðreynd, að frv. framsóknarmanna lætur bændur eina um að komast yfir þá örðugleika, sem af gerbreytingu búskaparháttanna stafar, að öðru leyti en því, að löggjafinn fyrirskipar verðjöfnun, sem af sér leiðir stöðugt lækkandi útborgað verð til bændanna, og nær sú lækkun jafnt til allra bænda á verðjöfnunarsvæðinu. En frv. Péturs Magnússonar og Þorst. Briems aflar nýrra tekna í verðjöfnunarsjóð til útbýtingar jafnt milli allra þeirra bænda, sem á verðjöfnunarsvæðinu búa.

Ég skal svo að lokum aðeins segja þetta: Tilgang flm. með flutningi þessa frv. læt ég liggja milli hluta, þeir þekkja hann að sjálfsögðu bezt sjálfir. En hitt fullyrði ég, að út yfir afleiðingar slíkrar lagasetningar hafa flm. alls ekki séð. Þeim er að vísu ljóst, að slík löggjöf mundi a. m. k. torvelda mjög mikið afkomumöguleika mörg hundruð bænda í nágrenni Reykjavíkur og jafnvel koma mörgum þeirra á vonarvöl. Neyðist ég til að fullyrða þetta alveg óhikað, vegna þess að engum getur verið ljósara, hve búskapur þessara bænda stendur höllum fæti, hve miklum skuldum þeir eru hlaðnir, hve kostnaðarsöm framleiðsla þeirra er, hve örðug lífsbarátta þeirra er, en einmitt sumum flm. þessa frv., sem vel vita, að þessir bændur gætu ekki baldið áfram búrekstri, jafnvel þótt eitthvað væri létt á skuldabagga þeirra, ef útborgað mjólkurverð lækkaði frá því, sem nú er, vegna þess að að undanförnu hafa þeir rekið búskapinn með halla. Engum ætti því að vera nauðugra og sárara en einmitt sumum hv. flm. þessa frv. að vega nú enn í þann knérunn, sem hin stranga kreppa harðast og lengst hefir vegið í, til þess með þeim hætti að fullkomna það, sem nú er vel á veg komið, að kasta mörgum þeirra á kaldan klaka.

En sleppum því.

Hitt er kjarni málsins, að enda þótt þá heiðursmenn, sem að þessu frv. standa, hafi ekki skort þrek til að stofna til aukinna vandræða bænda í nærsveitum Reykjavíkur, þá hefir þá þó skort vit til að þóknast öðrum bændum á verðjöfnunarsvæðinu, því að eins og ég hefi margsannað, þá myndu ákvæði þessa frv. leggjast með nákvæmlega sama þunga á alla bændur á þessu verðjöfnunarsvaði, engu síður þá, sem í fjarsveitunum búa.

Frv. þetta verður nú ekki að lögum að þessu sinni. Við sjálfstæðismenn fögnum því, og það munn allir bændur gera líka að athuguðu máli. Það er því að þessu leyti óskaðlegt. En ef svo færi, að flm. með flutningi frv. skyldu hafa misst marks og ekki aukið sér vinsældir, heldur skapað sér andúð í sínum kjördæmum, þá er það að vísu skaðlegt fyrir þá sjálfa, en það er maklegt, og bændastéttinni í heild verður það aldrei að fjörtjóni.