19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í C-deild Alþingistíðinda. (1740)
84. mál, sala mjólkur og rjóma o. fl.
Magnús Torfason:
Þess hefir verið getið af ræðustóli, að framkvæmd mjólkurlaganna hafi verið fullkomið hneyksli, og það hefði verið hafður ófyrirleitinn og óstarfhæfur maður sem forstjóri samsölunnar. Þessu vil ég fyrir mitt leyti algerlega neita. Ég hefi gert mér mikið far um að grennslast eftir, hvernig framkvæmd þessara l. hafi farið, og það er langt frá því, að ég hafi heyrt neinn mann bera framkvæmdastjóranum slíkan vitnisburð. Hitt gegnir öðru máli, að þegar hafin er slík starfsemi sem þessi á nýjan leik með nýjum mönnum, þá fari eitthvað í ólagi í fyrstu; það hafa öll fyrirtæki sína barnasjúkdóma og er ekki um það að sakast. Ég held mér sé óhætt að segja, að dag frá degi hafi stjórn þessara mála orðið betri og betri, og víst er um það, að ég hefi hvorki í ræðu né riti heyrt nokkurn mann segja eitt einasta orð til hnekkis framkv.stj., Halldóri Eiríkssyni, sem von er, því að hann er einn af okkar merkustu og þjóðnýtustu mönnum.
Áður en ég sný mér að þessu máli, skal ég lýsa ánægju minni yfir því, að það hefir orðið samkomulag um jarðræktarlögin, þann kafla, sem misklíðinni olli um stund; mér er það ánægjuefni, að bændur og Búnaðarfélagið hefir sett sjálft niður þessa deilu og miðlað málum á þann hátt, að aðiljar hafa hvor um sig dregið nokkuð í sinn dilk. Og ég er í engum vafa um, að Búnaðarfélag Íslands hefir vaxið af þessum málalokum, og er það vel og spáir Búnaðarfélaginu góðri framtíð.
Þetta mál, sem hér er til umr., er eitthvert erfiðasta mál úrlausnar, ekki sakir þess aðeins, að hagir kúabænda fari ekki saman, heldur fara þeir einnig eftir héruðum, og það þýðir, að þetta mál hefir alla djöfla hreppatogstreitunnar í eftirdragi; og eins og menn vita verða slík mál jafnan sárust og erfiðast að leysa. Ég minnist þessa út af því, að einmitt afstaða mín til þessa máls var fyrst og fremst undirrót að þeim þverbrestum, sem urðu milli mín og Bændaflokksins. Og ég játa það fúslega, að það var fyrir mína tilstilli að endanleg lausn þessa máls komst í það horf, sem nú hefir verið um hríð. En það var ekki nema eðlilegt, að mér kæmi ekki saman við hina bændaflokksmennina. Ég leit á málið austan yfir fjall, en sjónarhóll Bændafl. var hér neðan heiðar. M. ö. o., þeir báru meiri elsku til Korpúlfsstaðabóndans og Kolbeins í Kollafirði heldur en Bræðratungubóndans og Birtingaholtsbóndans. En sem sagt, ég leit árið 1935 á þetta mál austan yfir fjall og hinir héðan, og skal ég ekki sakast um það, en reynslan hefir sýnt, að mín skoðun var réttari, og árangurinn hefir orðið miklu betri heldur en búizt var við. Menn hafa sameinast í mjólkurmálinu, og þeim fer dagfækkandi, sem vilja draga meira en drottinn gefur með því að sneiða framhjá mjólkurlögunum, og ég býst við, að flestir gætu nú sætt sig við mjólkurlögin, ef framleiðslan hefði ekki aukizt svo, sem raun hefir á orðið. Ég skal ekki á þessum stutta tíma fara út í einstök atriði eða fara að deila við menn; það munu nógir verða til þess. Ég skal láta mér nægja að lýsa því yfir, að ég er samþykkur þeirri stefnu, að sama mjólkurverð eigi að vera fyrir alla á sama sölustað; það er hárrétt stefna, og ég hygg, að mál þetta verði ekki leyst til hlítar, nema þeirri stefnu verði fylgt. Hitt er annað mál, að hagsmunir bænda rekast mjög á, og það verður að leita margra bragða, áður en málinu verður komið þannig fyrir, að fullur jöfnuður fáist, en um það sker reynslan ein úr, hvaða ráða verður þar að leita. En regla á þessi mál kemst ekki, fyrr en smátt og smátt. og fyrir mitt leyti þá er ég efins í, að þetta muni takast með tímanum, svo fremi sem óskyld öfl rugla ekki öllum ritningum. Ég á hér við, að það hefir sérstaklega borið við í þessu máli, að viðhorf manna til landsmála hefir slegið pólitískri blindu á suma þeirra. Án þess að fara langt út í það, skal ég geta þess þessu til sönnunar, að oddvitar einnar sveitar vörnuðu bændunum að ganga í Mjólkurbú Flóamanna; sveitin varð fyrir mörg þúsund kr. tjóni af því. Hinsvegar er frá því að segja, að bændur tóku ráðin af þessum mönnum og fóru sínu fram. Ég segi þetta af því, að þetta er afarhættuleg braut fyrir bændur að komast á. Ef þeim ekki tekst að halda pólitískri togstreitu fyrir utan sín sveitarmál og sín félagsmál, verður allt þeirra ráð á reiki, og það er viðbúið, að þá verði með því kveiktur sá eldur, að til stórvandræða horfi. Ég hefi talsverða reynslu á því, hvað það segir, þegar illdeilur komast milli manna í sveitum, þær hafa oft orðið stórskaðlegar, og þess vegna ber að skoða þessi orð, sem ég nú mæli, sem síðustu varnaðarorð mín á þingi til þeirrar stéttar, sem mér hefir jafnan verið kærust og mest veltur á, að taki þroska í bráð og lengd.