19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í C-deild Alþingistíðinda. (1744)

84. mál, sala mjólkur og rjóma o. fl.

*Hannes Jónsson:

Ég þarf ekki mikið að segja hér að þessu sinni. Og heyrði, að hæstv. forsrh. söng hér sinn gamla söng um Bændafl., og þá sérstaklega Þorstein Briem og aðra leiðtoga flokksins, sem hann talar um sem verstu fjendur bændanna. Ég býst við, að bændur úti um land meti þessa viðleitni hæstv. ráðh. til þess að draga úr fylgi Bændafl, að verðleikum og hafi hans orð í þessu efni, eins og svo mörgum öðrum, að engu.

Hæstv. ráðh. lagði mikla vinnu í að reyna að sannfæra hlustendur um það, að frv. þeirra Péturs Magnússonar og Þorsteins Briems, um auknar tekjur verðjöfnunarsjóðs, væri ekkert annað en vitleysa ein. Hann gekk að vísu nokkuð framhjá þeim tekjulið, sem samkv. frv. á að fást með því, að fyrirskipa blöndun þurrmjólkur í brauð, á sama hátt og fyrirskipað er nú að blanda smjöri í smjörlíki til þess að auka sölumöguleika smjörsins. Hæstv. ráðh. taldi það eina reginvillu, að afla verðjöfnunarsjóði tekna með því að taka gjöld af öðrum heldur en þeim, sem mjólk selja hér í bæinn. Hann er sennilega búinn að gleyma því, sem hv. þm. Mýr. sagði í ræðu sinni hér í kveld, að Framsfl. hefði verið að undirbúa löggjöf um tekjuöflun fyrir verðjöfnunarsjóð. En hvernig ætla þeir sér að ná í þessar tekjur, án þess að það komi niður á einhverjum öðrum en mjólkurframleiðendum? Ætla þeir kannske að setja upp einhvern útbúnað til þess að vinna tekjur handa verðjöfnunarsjóði úr loftinu? Ég hygg, að sjóðurinn fái aldrei tekjur, nema þær séu teknar úr vösum einhverra, — og hvað er þá eðlilegra en þær séu einmitt teknar af því fóðri, sem flutt er inn frá útlöndum til þess að auka mjólkurframleiðsluna? Þessi innflutningur á fóðurvörum er sannast að segja mjög vafasamur fyrir bændur landsins og þessa atvinnugrein, vegna þess að hann gerir mjólkurframleiðsluna að einskonar iðnaði, þar sem verðmæti eru keypt frá útlöndum og þeim aðeins breytt í aðra vöru innanlands. En ef svo færi nú, að þetta gjald, sem tekið væri á þennan hátt af innfluttu kjarnfóðri, yrði til þess, að kjarnfóðurkaupin minnkuðu eða jafnvel hyrfu, þá hyrfi líka um leið þessi tekjustofn, en það hefði þá unnizt í staðinn, að sú mjólk, sem nú er framleidd með þessu kjarnfóðri, hyrfi af markaðinum og auknir möguleikar á mjólkurframleiðslu með heyöflun mundu verða fyrir hendi, og það aftur minnka þörfina fyrir verðjöfnunarsjóðsöflun. Þannig verkaði þetta í þá átt, að færa framleiðsluna í heilbrigðara horf. —

Að öðru leyti ætla ég ekki að fara út í ræðu hæstv. forsrh. — En ég má ekki gleyma garminum honum Katli. Hv. 2. landsk. jarmaði hér áðan á barmi sinnar pólitísku grafar. Hann fann sig knúinn til þess að lýsa því yfir, að árekstur sá, sem orðið hefði milli sín og Bændafl. út af þessu máli, hefði verið undirrót þess, að hann hvarf úr flokknum og sveik þannig sína umbjóðendur. Hann sagði, að Bændafl. hefði viljað taka meira tillit til og haft meiri ást á Korpúlfsstaðabúinu og Kolbeini í Kollafirði heldur en Skúla í Bræðratungu og Ágústi í Birtingaholti. Hann nefndi þessa tvo mætu bændur austur í Árnessýslu, gamla sýslunga sína, sem hann þóttist hafa staðið betur með heldur en við bændaflokksmenn. En hvernig eru vitnisburðir þessara manna? Þeir eru ekki hv. 2. landsk. í vil. — En það var ekki ágreiningurinn í þessu máli, sem olli því, að hv. 2. landsk. sveik flokk sinn. Það voru hans eigin hagsmunir og hans nánustu, en ekki hagsmunir bænda austur í Árnessýslu. Það var apótekið Iðunn, sem hann var að vernda. Sósíalistar höfðu lýst því yfir, að þeirra fyrsta verk í valdastöðu mundi verða það, að koma apótekunum undir ríkisrekstur. Það eru sönnur á því, að hér átti sér stað verzlun milli hv. 2. landsk. og hv. stjórnarflokka, og þær sönnur liggja í því, að sósíalistar hafa ekki hreyft þessu máli þau ár, sem þeir hafa setið að völdum — þessu máli, sem þeir voru búnir að lýsa yfir, að þeir munu koma í framkvæmd strax og þeir næðu aðstöðu til þess.

Ég ætla svo ekki að rekja sögu þessa hv. þm. lengra. Ég get vel unnt honum þess, að hvíla í friði í sinni pólitísku gröf, ef honum má auðnast það. — Það var fljótséð, hver hafði sent þennan hv. þm. í þessar útvarpsumræður, því þegar hann hætti að tala, settist hann hjá þeim hv. þm. S.-Þ., sem hvolfdi sér svo ástúðlega og elskulega yfir hann eins og kýr, sem karar nýborinn kálf, en hvort hv. 2. landsk. verður hreinni af þessari körun eftir en áður, munu margir efast um. En ég býst við, að eftir sinn pólitíska dauða, sem kemur fyrir þennan hv. þm. sennilega á morgun, muni fara fyrir honum og hv. þm. S.-Þ. eins og sagt er frá í þjóðsögum okkar um Skottu og Móra. Hann mun verða lifandi meðal þjóðarinnar og sérstaklega í fylgd með hv. þm. S.-Þ. sem pólitísk Skotta.