19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í C-deild Alþingistíðinda. (1746)
84. mál, sala mjólkur og rjóma o. fl.
*Emil Jónsson:
Það er í sjálfu sér litlu að svara, því að höfuðátökin hafa orðið milli Framsfl. og Bændafl., en þeim rökum, sem ég og hæstv. atvmrh. höfum borið fram í þessu máli, hefir ekki að neinu verulegu leyti verið hrundið. Ég kemst þó ekki hjá því að minnast á þau ummæli, sem hv. þm. Borgf. lét falla í minn garð, þegar hann lauk máli sínu. Hann var að lýsa afstöðu minni til frv. um varnir gegn sauðfjárveikinni, og sagði hann, að ég hefði að vísu verið með málinu, en að ég hefði gert það með hangandi bendi og með samvizkunnar mótmælum, og þess vegna — skildist mér — hefði þetta ekki verið neinn stuðningur við málið. Þetta er mjög villandi frá sagt hjá hv. þm., og hann lætur þarna skína á það, sem hann veit, að ekki er rétt. Mín umhugsun og varfærni við að flytja frv. var vegna þess, að mér var ljóst, að það er ekki víst, að þessar ráðstafanir komi að fullum notum, og það er ekki einusinni víst, að þær komi að neinum notum. Það var vegna þess ekkert undarlegt, þó að bæði ég og fleiri hugsuðum okkur vel um, hvort henda ætti úr ríkissjóði þessari 1/2 millj. til þess að gera ráðstafanir, sem enginn veit, hvort koma að gagni. En þetta þýðir ekki það, að ég hafi verið á móti málinu. Langt frá því. Ég hefi lýst því yfir, að ég fylgi öllum þeim ráðstöfunum, sem verða mættu til einhvers gagns í málinu.
Þá var hv. þm. Borgf. að vísa til einhverra búreikninga, sem sýndu, að tímakaup bænda væri ekki nema 46 aurar, og með mjólkurlækkuninni mundi það lækka enn meira. Þetta er öfugt við það, sem við alþýðuflokksmenn höldum fram. Við teljum, að með mjólkurlækkuninni mundi fást aukin sala og við það hækka tímakaup bænda. Þetta er byggt á reynslu annara þjóða, og því eru líkur fyrir, að eins fari hjá okkur.
Þá lýsti hv. þm. Borgf. því yfir út af frv., hv. 2. þm. Rang. og hv. 10. landsk., að framlagið úr ríkissjóði til verðjöfnunarsjóðs mundi aldrei koma til útborgunar, og hv. þm. V.-Húnv. taldi jafnvel líklegt, að skatturinn af kjarnfóðri mundi með tímanum hverfa, því að innflutningur á þessari vörutegund mundi hverfa úr sögunni, þegar skatturinn kæmi svona þungt niður, og þá mundu líka tekjur verðjöfnunarsjóðs frá þessum lið hverfa. En hver er þá orðin tekjuöflun þessa sjóðs? Þá er ekkert orðið eftir annað en þurrmjólkin, sem sjálfstæðismenn hafa hnuplað frá okkur jafnaðarmönnum.
Ég skal ekki fara langt út í ræðu hv. þm. V.-Húnv., þótt hann á mjög óviðurkvæmilegan hátt réðist á hv. 2. landsk., mann sem allan sinn aldur gegnum fleiri áratugi alltaf hefir haldið á rétti þeirra, sem erfiðast hafa átt í lífsbaráttunni, sérstaklega bænda. En út af því, sem hv. þm. sagði um apótekið Iðunn, skal ég geta þess, að Alþfl. hefir aldrei við hann um þessi mál talað, og þess vegna er það langt frá sannleikanum, að hann hafi nokkra íhlutun um þau mál haft.
Ég kemst ekki hjá því að minnast á það í sambandi við þessar umr., að það hefir verið merkilega hljótt um það, hvað hinir flokkarnir allir þrír vilja gera fyrir þá, sem eru utan við verðjöfnunarsvæðið, en það er vitanlegt, að þeirra hagur er verstur. Framsfl., Sjálfstfl. og Bændafl. vilja fá jafna útborgun fyrir alla bændur á verðjöfnunarsvæðinu. En hvers vegna á ekki réttlætíð að ná austur yfir Jökulsá á Sólheimasamdi eða vestur fyrir Snæfellsnes? Hví mega ekki aðrir bændur landsins líka njóta einhvers af þessari jöfnun?
Hæstv. forseti benti mér nú á, að minn tími sé úti, og verð ég að taka það til greina. En ég vil aðeins undirstrika það, að engar verulegar mótbárur hafa komið frá hendi neinna ræðumanna um það, að leiðir þær, sem Alþfl. bendir á, væru ekki færar eða ekki bezt færar, en það er að auka markaðinn í Reykjavík og stofna nýjan markað fyrir mjólkurvörur, sem ekki er til áður, og framsóknarmenn og sjálfstæðismenn hafa lýst sig fylgjandi.