19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í C-deild Alþingistíðinda. (1747)
84. mál, sala mjólkur og rjóma o. fl.
Ólafur Thors:
Út af ræðu hv. þm. Hafnf. ætla ég aðeins að gera tvær stuttar aths. Þm. sagði, að hv. þm. Borgf. hefði sagt rangt frá um undirtektir hans um framlag úr ríkissjóði til þess að freista að hefta útbreiðslu Deildartungupestarinnar. Ég held, að óhætt sé að fullyrða, að almennt skyldu menn afstöðu hans á sama hátt og PO gerði. Hann færði að vísu ekki fram bein mótmæli, en lét nægja að heimta frest, enda var honum ljóst, að fresturinn hlaut að leiða til þess, að allar ráðstafanir féllu niður.
Það situr alveg sérstaklega illa á einmitt þessum þm. að bera fram kveinstafi fyrir munn bænda út af kjarnfóðursbæti þeim, er ætlað er að leggja á með frv. þessu. Hann hefir nefnilega sjálfur gert tillögu um 15% kjarnfóðurskatt, eða nærri jafnháan skatt og þetta frv. mælir fyrir um. Munurinn er aðeins sá, að samkv. þessu frv. fellur skatturinn allur bændum til framdráttar, en samkv. frv. EJ eiga bændur að borga, en aðrir að njóta.
Það var auðheyrt á hæstv. forsrh., að hv. þm. Borgf. hefir komið eitthvað óþægilega við kaun hans, og verður að játa, að meiri köppum en HermJ hefir orðið hætt í höndum PO. Hitt hlægir okkur, sem daglega verðum að hlusta á stóryrðaglamur forsrh., er hann nú ber lóminn yfir því, að PO sé ekki nógu kurteis. Þori ég óhikað að fullyrða, að flestir, og raunar nær allir hlustendur, kunna betur föstum rökum og karlmannlegri einurð PO en yfirlæti og sívaxandi leikaraskap æfintýramannsins í ráðherrastólnum.
Ráðh. var að hóta að láta prenta og dreifa um austursýslur ræðu, er hann nýverið hélt í Ed. um mjólkurstöð M. R. Eftir venjunni þykist ég vita, að ríkissjóður borgi. Vil ég því gera þá till., að jafnframt fylgi svarræða Péturs Magnússonar, og einkum og sérstaklega tvær myndir af ráðh., önnur þegar hann lauk ræðu sinni, en hin þegar Pétur Magnússon endaði sína ræðu. Er sú ræða talin einhver rökfastasta og þyngsta ádeiluræða, sem haldin hefir verið hér á Alþingi, a. m. k. í minni nú lifandi þm., og því viðbrugðið, hve vesaldarlegur forsrh. var um það lestrinum lauk HermJ sagði, að ráðizt hefði verið á mjólkurl. í blöðum sjálfstæðismanna löngu áður en lögin komu í framkvæmd. Þetta eru bein ósannindi. Hitt er rétt, að ráðizt hefir verið á sumt það vítaverðasta í framkomu mjólkursölunefndar. Og það veit enginn betur en einmitt HermJ, að það voru bændur sjálfir — vestan fjalls og austan, — sem stóðu að og hvöttu til mótmæla gegn framkvæmd laganna, ekki sízt þeirri háðung, að mjólkursalan skyldi verða gerð að beinu hagsmunamáli sósíalista. En skýrasti vottur um samvizkulausa óskammfeilni mjólkursölun. er einmitt það, að þetta fékkst ekki lagfært, fyrr en n. var svínbeygð með allföstum átökum.
HermJ segir, að andstaðan gegn mjólkurl. hafi verið gerð fyrir ÓTh og Korpúlfsstaði. En hver bar fyrst fram mjólkurl.? Var það ekki þessi sami ÓTh.
HermJ segir, að dreifingarkostnaðurinn hafi færzt úr 17 og ofan í 4 aura. En hvar eru þá þessir 13 aurar? Ekki eru þeir í vasa bændanna. Eru þeir kannske í kosningasjóði sósíalista?
HermJ sagði, að kjarni frv. PM og ÞBr vari sá, að nærsveitirnar áttu að eignast Reykjavíkurmarkaðinn, en fjarsveitir áhættuna. Þetta er auðvitað ósatt, og því miður fer ráðh. nú sem oftar með alveg vísvitandi ósannindi. Hér á Alþingi vita allir, að frv. PM og ÞBr tryggir öllum bændum nákvæmlega sama rétt. Hagsmunirnir verði sameiginlegir og verðið eitt og hið sama.
Það liggur við, að ég dáist að heilagri einfeldni forsrh., er hann hyggst að byggja árásir sínar á frv. PM og ÞBr á þessari ægilegu spurningu. „Hvaða nýja skatta á að leggja á til að afla fjár til að standa undir útgjöldum, er af því frv. leiðir.“
Við því svara bæði ég og fleiri þessu:
Í fyrsta lagi ber frv. sjálft með, sér, að mjólkurduftinu er ætlað að afla þess fjár, er með þarf. En í öðru lagi langar mig að minna þennan mann, sem einnig er kallaður landbúnaðarráðh., á það, að það situr illa á honum að spyrja þannig nú, einmitt þegar eitthvað á að gera fyrir bændurna, úr því að honum hefir aldrei hugkvæmzt að spyrja, þegar verið er að leggja nýja og nýja skatta á bændur til þess meðal annars að greiða hina svo kölluðu atvinnuleysisstyrki í kaupstöðunum.
Út af kosningaræðu þeirri, er hæstv. atvmrh. hélt hér og ætluð var til að styrkja sósíalista við sjávarsíðuna, en Framsókn til sveita, vil ég aðeins segja það, að hinn mikli nýi áhugi sósíalista fyrir sjávarútvegsmálum hefir aðeins lýst sér í því, að taka nú upp og gera að sínum baráttumálum þau mál, sem við sjálfstæðismenn höfum barizt fyrir allt þetta kjörtímabil, en sósíalistar og framsókn lagzt gegn, og svo í því, að standa gegn því sem foringi flokksins þó taldi aðalbjargræði fram úr vandræðunum, þ. e. a. s. aukningu á síldarbræðslustöðvunum og bygging nýrra frystihúsa.
Yfir okkar þjóðfélag hefir á undanförnum árum riðið margvíslegt böl. Eitt hið geigvænlegasta, að ég ekki segi það allra versta er sá rígur og kali milli einstakra stétta þjóðfélagsins, sem rauðliðar hafa kveikt og glætt eftir fremstu getu. Sjálfstfl. hefir frá öndverðu leitazt við að slökkva þann eld. Hann hefir í allri sinni málefnalegu aðstöðu fært sönnur á það, að hann vill ráða hverju máli til lykta út frá því, sem bezt hentar heildinni, og þegar flokknum er borið á brýn, að hann sé eingöngu flokkur atvinnurekenda, er það sagt gegn betri vitund. Sjálfstfl. berst að vísu fyrir sem fyllstu athafnafrelsi einstaklingsins á sviði atvinnulífsins, en hann gerir það alls ekki fyrst og fremst vegna þess einstaklings, sem atvinnuna rekur, heldur vegna þess, að hann telur, að með þeim hætti verði atvinnulífið arðvænlegast og blómlegast, en það á að vera hið mikla sameiginlega markmið, vegna þess að með því er hag allra þjóðfélagsþegnanna bezt borgið, og ekki sízt verkalýðsins. Af þessum ástæðum hefir Sjálfstfl. tekið forystu í baráttunni gegn öfgum og úlfúð milli stétta þjóðfélagsins og valið sér kjörorðið: Stétt með stétt.
Frv. það, sem hér er til umr., mun, ef að lögum verður, kveikja eld, eigi aðeins milli stétta, heldur og innan sjálfrar bændastéttarinnar. Fjöldi bænda mun líta svo á, að fjárhag þeirra sé teflt í voða til hagsbóta fyrir aðra bændur, og þeim bændum er ætlað að trúa því, að hinna dauði sé þeirra brauð. En eins og ég sýndi í frumræðu minni og enn stendur óhrakið og bjargfast, myndi frv. þetta, ef að lögum yrði, ekki reynast nokkurs bónda brauð, heldur allra dauði, þ. e. a. s. öllum til tjóns, því, að verðlækkun sú, sem af því leiðir, bitnar jafnt á öllum bændum verðjöfnunarsvæðisins, og yrði fyrr en varir a. m. k. 3½ eyrir á lítra. En jafnvel þótt nokkur hluti bænda hagnaðist á fyrirmælum frv. á kostnað annara bænda, sem þó ekki er, þá hlýtur það að vera öllum heiðursmönnum í bændastétt óbærileg tilhugsun. Og því fjær sanni væri að leita slíkra úrræða sem augljósara er, að til er önnur leið, leið PM og ÞBr, sem með öruggri vissu bjargar eigi aðeins nokkrum hluta bændastéttarinnar, heldur og öllum hlutaðeigandi bændum á verðjöfnunarsvæði Reykjavíkur, en að sú leið, sem Framsfl. bendir á, ríður eigi aðeins niður hag nokkurs hluta bændanna, heldur allra bænda á verðjöfnunarsvæðinu.
Eining og friður innan bændastéttarinnar, stétt með stétt í þjóðfélaginu, þetta er vilji okkar sjálfstæðismanna. Að þessu stefnum við í allri stjórnmálastarfsemi okkar, og við þetta miðast tillögur okkar í þessu máli jafnt sem öðrum.