02.04.1937
Neðri deild: 29. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í C-deild Alþingistíðinda. (1760)
88. mál, atvinna við siglingar
*Flm. (Bergur Jónsson):
Það fór nú eins og ég bjóst við, að þar mundu ekki vera veigamiklar röksemdirnar á móti þessu frv. Þar eru fyrirfram pantaðar hjá þessum mönnum af einum sósíalista í Ed., sem staðið hefir á móti samningi þessarar löggjafar, Þessir tveir flokksbræður hans, sem talað hafa hér, hafa staðið upp bara vegna þessara pantana. Það hefir aldrei orðið þess vart, að hv. 3. landsk. hafi nokkurntíma haft nokkurt vit á útgerðarmálum. Frekar voru þó rök í ræðu hv. 9. landsk., þó að ég vilji ekki gera samanburð á skynsemi þessara þingmanna. En það verð ég að segja um hv. 9. landsk., að hann á dálítið vont með að greina á milli góðs og ills, og er honum það sennilega ósjálfrátt. Þess vegna er ekki rétt að fara langt út í að ásaka hann fyrir það. En vel væri þess vert að gera tilraun til að lækna hans andlega sjúkleik.
Hv. 3. landsk. sagði, að þetta frv. væri borið fram vegna eins skips og að það væri af sama toga spunnið og þáltill., sem borin hafi verið fram á síðasta þingi af hv. þm. Mýr. Það sér nú hver óvitlaus maður, hvílík reginvitleysa þetta er, því að í frv. er um að ræða að breyta öllum kaflanum um réttindamannahald, þar sem 3. landsk. hefir sagt, að með þessu frv. sé miðað við eitt skip, sem annast flóabátsferðir hér við land. Ég fæ ekki séð, að miðað sé neitt sérstaklega við það skip í frv. fremur en önnur skip.
Það, sem hv. 3. landsk. minntist á undanþáguákvæði frv. viðvíkjandi stærð bátanna í sambandi við réttindi stýrimanna, virtist mér gefa til kynna, að hann líti á fiskibáta landsmanna eins og nokkurskonar skólaskip. Þessir bátar eru ekki skólaskip, heldur til þess fyrst og fremst að færa björg í búið frá fiskimiðunum. Hv. þm. vildi ganga fram hjá því, sem ég tók fram í ræðu minni, að ég vildi fúslega ganga inn á lækkun takmarksins, sem hann var að tala um, kannske niður í 40 smálestir. Yfirleitt er ég fús til að ganga inn á allar skynsamlegar röksemdir. En vegna þess að hv. 3. landsk. gekk alveg fram hjá þessu í minni ræðu, þá er allur sá kafli ræðu hans um þetta efni, sem var allmikill kafli af hans ræðu, alveg út í loftið.
Ég vil þá benda þessum hv. þm. báðum, sem staðið hafa nú hér upp til andmæla, á það, að hvergi í þessu frv. er neitt bann gegn því, að hafa á skipum kunnáttumenn umfram það, sem gert er að skyldu í þessu frv. að hafa. Ég veit, að þeir sjá það vel, hv. þm., að það er hverjum útgerðarmanni í sjálfsvald sett, hversu marga kunnáttumenn hann hefir á skipum sínum, þrátt fyrir þessa lagabreyt.
Þessir hv. þm. töluðu um, að þetta frv. væri spor aftur á bak. Ég álít, að farið sé aftur á bak, ef íþyngt er að óþörfu sjávarútveginum. En þeir kalla það skref í framfaraátt. Það þýðir ekkert fyrir okkur að þrátta um þessi tvö sjónarmið, og allra sízt, ef hv. þm. tala um þau af þeirri tegund sanngirni og skynsemdar sem raun hefir á orðið.
Þá töluðu þessir hv. þm. um, að ég vildi draga úr örygginu á sjónum. En það er langt frá því. Ég benti á það í minni ræðu, að það væri á engan hátt líklegt, að ákvæði frv. drægju úr örygginu á skipunum. Það er eftirlitið og skipaskoðunin, sem þarf að vera í góðu lagi. En það er ekki öryggi skipanna, sem þessir hv. þm. bera fyrir brjósti. Þeir eru aðeins að hugsa um einn stéttarbróður sinn, sem komið hefir til þeirra til þess að fá þá sem samherja sína til þess að snúast gegn málinu.
Hv. 9. landsk. þm. sagðist ekki hafa heyrt neinar kvartanir út af l., sem frv. gerir till. til breyt. á. En ég get þá aftur sagt honum það, að í mínu umdæmi hafa komið kvartanir frá mörgum sjómönnum úr hverri einustu verstöð þar. Ég efast ekkert um, að hv. þm. Borgf. getur líka upplýst, hvernig menn hugsa um þessi lagaákvæði á Akranesi. Sannleikurinn er, að það hefir fjöldi manna í ýmsum verstöðvum landsins komið með rökstuddar kvartanir út af þessari löggjöf.
Hv. 9. landsk. sagði, að ég hefði ekki sannað það, að örygginu á skipunum væri borgið með frv. mínu. Ég vil þá benda þeim hv. þm. á það, að sönnunarskyldan hvílir fullt eins mikið á honum og hv. 3. landsk., að sanna að frv. dragi úr örygginu á skipunum, þar sem þeir gerast til að mótmæla frv. Ég fer eftir því, sem mjög reyndir menn á þessu sviði hafa upplýst mig um. Og þar að auki liggur málið ákaflega ljóst fyrir.
Þá sagði hv. 9. landsk., að leita bæri umsagnar hlutaðeigenda um þetta og að ekki hefðu komið umsagnir um málið frá viðkomandi aðiljum. En í þessu sambandi vil ég geta þess, að mjög nákvæm umsögn kom frá Eimskipafélagi Íslands um þetta mál til sjútvn. í fyrra, þar sem félagið baðst undan því, að auknar yrðu kröfur til mannahalds, vegna þess að slíkt væri óþarfi og of dýrt, og vegna þess, að ef slíkar kröfur væru í l., yrði að breyta skipum félagsins og búa til ný herbergi handa þessum mönnum, en fyrir þau væri alls ekki rúm á skipunum. Umsagnir frá fleirum munu hafa komið um þetta. Það er þess vegna alveg út í hött, þegar þessir hv. þm. vilja neita því, að kvartanir hafi komið fram út af þessari löggjöf.
Hv. 3. landsk. talaði um frv., sem hann og flokksbræður hans bæru fram hér á Alþ. um alhliða viðreisn sjávarútvegsins. Þeir vita það sjálfir, og það er einnig öllum öðrum kunugt, að þeir bera það mál ekki fram í neinni alvöru, heldur er það frv. bara kosningabomba, af því að Kveldúlfsbomban sprakk ekki. Annars gefst betra tækifæri til að tala um það mál síðar.