02.04.1937
Neðri deild: 29. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í C-deild Alþingistíðinda. (1770)

88. mál, atvinna við siglingar

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er rétt, að vegna umtals, er varð manna á meðal um skip þetta, setti ríkisstj. 2 menn til að skoða skipið og athuga, hvort ekki myndi rétt að gera skaðabótakröfur á hendur verkstæði því, er smíðaði skipið, Komu nokkrir gallar í ljós, og fóru nokkur skrif um málið fram og aftur. Voru gerðar kröfur til verkstæðisins um bætur, en mér er ekki kunnugt um, hvort þeim kröfum hefir verið sinnt. Annars er ég ekki bær að dæma um það, hvort ummæli hv. 3. landsk. um skipið hafi við rök að styðjast. Ef hv. þm. eiga að geta myndað sér skoðun í málinu, dugir ekki að slá fram fullyrðingum. Til þess verður að athuga skilríki um málið. Hefi ég þó ekki trú á því, að slíkt hefði mikla þýðingu.