02.04.1937
Neðri deild: 29. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í C-deild Alþingistíðinda. (1782)
89. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
Flm. (Jónas Guðmundsson):
Af því að hér er svo rólegt og óvenjulega gott tóm til þess að ræða mál, þá vildi ég nota ræðutímann til þess að fara nokkrum orðum um þau atriði, sem síðasti hv. ræðumaður minntist hér á. Hann byrjaði á því að segja, að við hefðum þá stefnuskrá, að taka öll gjöld með beinum sköttum, og því sæti illa á okkur að koma fram með tollalögufrv. sem þetta. — Það má til sanns vegar færast hjá honum, að þetta sé brot á okkar stefnuskrá, en ég hika þó ekki við að gera þetta, vegna þess, eins og ég hefi oft fært fram rök fyrir hér í þinginu undir umr. þessa máls, að útsvarsálagningin hefir tekið stórkostlegum breyt, við það, að geysimikill partur er þegar undanþeginn þeirri álagningarreglu, sem allt til þessa tíma hefir verið notuð á Íslandi, að láta verzlunina bera uppi meginþungann af þeirri skattbyrði, sem af kaupstöðunum er tekin.
Það vita allir, að kaupstaðir og kauptún eru samsett af tvennskonar fólki. Þar eru verzlanir og þar með oft efnaðir menn, og svo aftur á móti fjöldi manna, sem er bláfátækur og getur því lítið af útsvörum borið. Þetta er ólíkt því, sem þó er í sveitum, því að í mörgum sveitum eru fjöldamargir sæmilega efnaðir bændur, sem bera byrðarnar þar af leiðandi margir saman. Því hefir útsvarsálagningin í kaupstöðum og kauptúnum æfinlega verið sú, að verzlanirnar hafa verið látnar bera meginþunga útsvarsbyrðarinnar. En við það, að verzlanir með nauðsynjavörur almennings hafa orðið samvinnufélög og mikill hl. af afurðum hefir verið seldur af samvinnufélögunum og samlögum einstaklinga, hefir þessum aðalgrundvelli verið kippt í burtu. Fyrir fáum árum hefði það verið talið óhugsandi, að fyrirtæki eins og Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda, sem hefir með höndum verzlun fyrir margar margar millj. kr. á ári, væri ekki útsvarsskylt. Nú þykir það sjálfsagt, og voru sett um það l. hér í fyrra, að svo skyldi vera. Vegna þess að verzlunarhættir eru orðnir gerbreyttir, frá því sem áður var, verður að sjá bæjar- og sveitarfélögunum fyrir tekjum á annan hátt en verið hefir. Það verður að heimila þeim að taka nokkurn hluta af sínum tekjum af verzluninni eftir sem áður, og til þess að ráða bót á þessari breyt. er flutt hér frv. um vörugjald. — Þetta gjald kemur niður á alla verzlun, ekki eins og áður var á verzlun kaupmanna eina saman, heldur og á verzlun alls þess félagskapar, sem rekur verzlun í landinu.
Hv. þm. sagði, að það dygði ekki að tvískipta tollalöggjöfinni, vildi heldur láta ríkissjóð leggja á nýja skatta og nýja tolla og að hann gæfi eftir af tekju- og eignarskattinum og jafnvel fasteignaskattinn til bæjar- og sveitarfélaganna. Þessu hefir oft verið slegið fram, en þetta er atriði, sem ekki hefir neina praktíska þýðingu í þessum efnum, Það er rétt, sem hv. þm. sagði, að á síðustu árum hafa beinu skattarnir víða verið teknir ekki af tekjum, heldur af eignum. Menn hafa ekki getað borgað útsvör af tekjum sínum, heldur orðið að ganga yfir á eignir sínar til þess að geta innt þau af hendi. Skattakerfið til ríkissjóðs er þannig uppbyggt, að þeir menn, sem ekki hafa tekjur, borga ekki skatt; hinsvegar hafa útsvörin oft verið lögð á þannig, að einmitt hefir verið gengið út yfir tekjurnar. Það er því ekki ríkisvaldið, sem hefir tekið af þessum mönnum eignir upp í skatta sína, heldur bæjar- og sveitastj. með útsvörunum. Till. hv. þm. myndi engu breyta í þessu efni, en það gerir till, sú, sem í frv. felst, því að hún ætlazt til þess, að nokkrum hluta þeirrar byrðar, sem þegar er lagður á þá menn, sem ekki hafa tekjur til þess að standa undir útsvarsgreiðslum, verði aflétt og gjaldið tekið á annan hátt en gert er nú.
Það getur látið sæmilega í eyrum, að það sé ekki verið að tvískipta tollalöggjöfinni, en ég vil benda á, að í frv. er gert ráð fyrir því, að þessi skattur sé aðeins ákvæði, sem heimilt sé að nota, en hvert sveitarfélag geti ekki tekið upp án sérstakrar heimildar frá ríkinu. Það er því tryggt, að þessi skattur verður ekki annarsstaðar á lagður en þar, sem fjármálalífið er komið á það stig, að ekki verður komizt hjá því, að grípa til þessara ráðstafana. Og hvaða ráðstafanir virðast liggja nær en þessar, þegar fjárhagsafkoma bæja- og sveitarfélaga er komin í öngþveiti fyrir þær aðgerðir ríkisvaldsins, að ekki hefir verið heimilt að leggja á þá verzlunarstarfsemi, sem þar hefir verið rekin árum saman?
Ég þarf svo ekki að svara fleira af því, sem hv. þm. sagði. Ég tel mig hafa sýnt fram á, að þær leiðir, sem hann talar um að fara, geti ekki á neinn hátt bætt úr þessum vandræðum, því að eins og ég tók fram í minni fyrstu ræðu, hefir það bókstaflega ekkert að segja, þó að fasteignaskatturinn væri tekinn frá ríkissjóði og látinn ganga til bæjar- og sveitarfélaga; hann hefir sáralítið að segja fyrir hvern einasta hrepp á landinu. Þeir, sem sérstaklega þurfa hjalpar við, eru kauptúnin og kaupstaðirnir, sem hefir verið íþyngt með ýmsum breyt. á löggjöf landsins og sviptir álagningarrétti á miklum hluta af þeirri verzlun, sem þar hefir verið rekin. Þeir þurfa að fá hjálp, en hinir síður.