02.04.1937
Neðri deild: 29. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í C-deild Alþingistíðinda. (1783)

89. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Thor Thors:

Það er auðsýnt, að hér er um mikið vandamal að ræða — það er játað af öllum, og beinlínis skjalfest af öllum hreppsnefndum landsins, að mikil þörf sé fyrir hendi að fá þeim nýja tekjustofna til þess að standa straum af sínum kostnaði. Ennfremur hefir það komið í ljós, að menn greinir mjög á um þær leiðir, sem fara eigi í þessu máli. Sú milliþinganefnd, sem undirbjó þetta mál fyrir síðasta Alþ., er þríklofin í málinu. Af hendi stjórnarflokkanna, sem menn skyldu ætla, að ynnu saman að lausn þessa máls eins og annara, er á þessu þingi farin sín hvor leiðin í hvorri d. þingsins fyrir sig, og það er vitað af þeim umsögnum um þetta mál, sem komið hafa til atvmrn., að mjög eru skiptar skoðanir manna um það, hvaða leiðir beri að fara. Yfirleitt er það svo, að sveitarfélögin frábiðja sig vörugjaldið. Kaupstaðirnir vilja það hinsvegar. En sveitirnar geta sætt sig við aðflutningsgjaldið. Hvað vörugjaldinu, sem er einn aðalþáttur þess frv., sem hér liggur fyrir, viðvíkur, er það að segja, að það kemur mjög ranglátlega niður á viðskipti hinna ýmsu svæða. Það kemur svo ranglátlega niður, að varla er hægt að gera ráð fyrir, að fullkominn friður náist um lausn þessa máls. Ég hygg, að það fáist aldrei fullnægjandi lausn á þessu máli, fyrr en fárið er inn á þá braut, sem við sjálfstæðismenn höfum margsinnis bent á og greinilega kom fram í ræðu hv. þm. A.-Húnv., að bæjar- og sveitarfélögin fái nokkurn hluta af hinum beinu álögum ríkisins, enda séu hinar beinu álögur aðeins lagðar á í einu lagi. Það verður að koma þessum málum þannig fyrir, að útsvörin falli niður, en ríkið leggi á ákveðna beina skatta, sem bæjar- og sveitarfélögin fái síðan sinn hundraðshluta af. Það er og rétt, að bæjar- og sveitarfélögin fái að njóta fasteignaskattsins, því að þar er um eign að ræða innan hvers bæjar- og sveitarfélags og réttmætt, að hvert einstakt bæjar- og sveitarfélag styðjist við sjálft sig í beinum álögum, en það mundi það vitaskuld gera með því, að fá hundraðshluta af þeim álögum, sem ríkið legði á.

Ég ætla ekki að svo stöddu að ræða einstök atriði þessa frv., þó að ég efi það, að mér gefist tækifæri til þess síðar á þessu þingi, en út af því, sem fram kom í ræðu hv. 6. landsk. um Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda, vil ég gefa nokkrar skýringar, af því að það fyrirtæki er mér nokkuð kunnugt. — Það var lítið svo á, áður en Alþ. ákvað það með l. á síðastl. ári, að Sölusambandið væri ekki útsvarsskylt og undanþegið skattgreiðslu í ríkissjóð. Það hafði þó verið lagt útsvar á Sölusambandið hér í Reykjavík, en það hafði neitað að greiða þetta útsvar, og dómstólarnir ákváðu, að Sölusambandið væri ekki útsvarsskylt, enda leiðir það af réttum rökum, því að S. Í. F. er eign allra útvegsmanna landsins, sem við það skipta. Það hefir engar tekjur. Öllu sem inn kemur fyrir seldar afurðir, umfram rekstrarkostnaðinn, er skipt á milli félagsmannanna; en það, að Alþ. setti sérstök 1. um þetta efni, verður að skoðast gert ex tuto, eða til frekara öryggis. Mér þykir það einkennilegt, að eftir að Alþ. hefir lýst því yfir, að þetta fyrirtæki eigi að vera skattfrjálst, þá skuli á næsta ári koma fram frv. um að skattleggja þetta fyrirtæki allra útvegsmanna landsins, þó ekki minna en þetta frv. ráðgerir.

Viðskiptavelta Sölusambandsins hefir að undanförnu verið frá 20–30 millj, kr. á ári. Skv. þessu frv. á að leggja 1/4% gjald á þessa veltu, og nemur það 50–75 þús. kr. á ári. Þetta gjald getur ekki verið annað en nýr framleiðslutollur, og ég verð að segja það, að mig undrar, að þetta frv. skuli vera borið fram af hv. 6. landsk., sem samtímis þessu frv. flytur annað frv., sem gengur inn á þá stefnu okkar sjálfstæðismanna, að útflutningsgjaldið, þessi hefndartollur á sjávarútveginum, skuli framvegis ganga til þess að Iétta undir með þessum atvinnurekstri.

Hv. 6. landsk. hlýtur að viðurkenna, að hér sé aðeins um nýjan framleiðslutoll að ræða, því að hér er um að ræða 1/4% af verðmæti hvers skippunds, sem Sölusambandið hefir til sölu. Það er ekki svo að skilja, að þó að þessi verzlun sé rekin í gegnum eitt allsherjarfélag, þá séu einstakir framleiðendur lausir við að greiða skatt af þessari framleiðslu.

Hv. þm. veit, að hver einstakur framleiðandi greiðir veruleg útsvör, þar sem hann rekur starfrækslu sína. Í Hafnarfirði og að nokkru leyti í Reykjavík munn þessi útsvör beinlínis vera miðuð við umsetningu, og ég hygg, að í Hafnarfirði sé beinlínis lagt á þann skippunda fjölda, sem hvert fyrirtæki hefir til verkunar og sölu. Það er því alger misskilningur hjá hv. þm., að þessi framleiðsla sé ekki þegar skattlögð. Hér er aðeins um nýjan framleiðslutoll að ræða, sem er mjög tilfinnanlegur, eins og nú er ástatt högum útvegsins, og mér finnst það einkennilegt, þegar slíkt kemur frá hendi þeirra manna, sem búnir eru að viðurkenna, að útveginum sé nauðsyn, að nota hvern eyri til viðreisnar og framfara á sviði sjávarútvegsmálanna.

Ég er ekki það kunnugur málum Mjólkursamsölunnar að ég geti rætt um það, hversu réttmætt sé að skattleggja hana að sama skapi, en ég hygg, að bændum þeim, sem við hana skipta, finnist hlutur þeirra ekki of stór, þó að ekki sé einnig á þá lagður nýr framleiðslutollur. Það er sama um Mjólkursamsöluna og Sölusambandið að segja, að hún er engin verzlunarstofnun. Þar er um engan hagnað að ræða. Allar tekjur fyrirtækisins eru eign viðskiptamannanna.

Ég ætla að láta þetta nægja að svo stöddu, en vænti þess, að sú hv. n., sem þetta mál fær til meðferðar, taki þessi tvö atriði, sem ég minntist á, til athugunar, og vil endurtaka það, að friður og fullkomin ánægja með lausn þessa máls. þ. e. a. s. ef nokkurntíma er þá hægt að tala um ánægju í sambandi við lausn skattamála, fast ekki, fyrr en svo er komið, að ríkið hafi tollálöguréttinn, en beinu sköttunum verði skipt á milli ríkisins og bæjar- og sveitarfélaganna.