03.04.1937
Neðri deild: 30. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í C-deild Alþingistíðinda. (1818)
93. mál, hraðfrysting fisks
Flm. (Thor Thors):
Ég get í aðalatriðum látið mér vel líka undirtektir þeirra hv. þm., sem talað hafa um þetta mál af hálfu stjórnarflokkanna. Þeir virðast vera sammála um það, að nauðsynlegt sé að aðhafast eitthvað í málinu, en nokkur ágreiningur virðist hinsvegar um það, hvað gera skuli. Mér er kunnugt um það, að fiskimálasjóður hefir með lánveitingum stutt byggingu frystihúsa á fjórum stöðum, á Seyðisfirði, Norðfirði, Bíldudal og í Bolungavík. Virðist svo sem þeir, er flutt hafa þau mál við fiskimálanefnd, hafi þar fengið góða áheyrn, en Mér er einnig kunnugt um það, að fjölda margar umsóknir um slík lán liggja og hafa legið lengi hjá n. og hefir ekki verið sinnt enn. Ég veit ekki, eftir hvaða reglu fiskimálanefnd hefir úthlutað þessum lánum, en sé það á því, hvaða staðir hafa þegar fengið lánin, að nokkur ástæða muni vera til að ætla, að eitthvað gæti vinfengis við fiskimálanefnd við þær lánveitingar. Fiskimálanefnd hefir fiskimálasjóð til meðferðar samkvæmt l. nr. 121 frá 1935. Í 14. gr. þeirra l. segir, með leyfi hæstv. forseta: „Ríkisstjórninni er heimilt að veita stofnunum, einstaklingum og félögum lán eða styrk úr fiskimálasjóði til þess, er hér greinir:
1. Að stunda veiði með nýjum aðferðum eða leita nýrra aflamiða.
2. Að verka fisk eða aðrar sjávarafurðir með nýjum aðferðum, svo sem með herðingu, hraðfrystingu, niðursuðu o. fl.“.
Nú er það svo eftir ákvæðum þessarar gr., að ríkisstj. eða stj. fiskimálasjóðs í umboði ríkisstj. hefir aðeins heimild til að styrkja með lánum þá, sem byggja hús til hraðfrystingar. Það er ekkert um það ákveðið, hve há þau lán eigi að vera. Auk þess nær þessi heimild aðeins til tilrauna á þessu sviði, og fiskimálan, getur hæglega sagt sem svo: Við álítum, að þegar sé fullkomlega séð fyrir slíkum tilraunum. Það væri raunar ekki óeðlilegt svar. En því ríkari nauðsyn er einmitt til að styrkja þá, sem þurfa að byggja hraðfrystihús, og það verður ekki á annan hátt betur gert en með því að samþ. þetta frv.
Hæstv. fjmrh., sem tók máli þessu í aðalatriðum vel, var ekki ákveðinn í því, hvort fiskimálanefnd eða ríkisstjórnin ætti að úthluta styrknum til bygginganna. Ég tel eðlilegra, að ríkisstjórnin geri það. Vitanlega er, að oft muni þurfa í því sambandi að gera upp á milli héraða eða staða, sem umsóknir koma frá, og þá er réttara, að sá vandi hvíli á þeirri stofnun, sem Alþingi á hverjum tíma getur krafið reikningsskapar á hennar störfum. — Þá verð ég að telja það varhugaverða breytingu, að fela fiskimálasjóði að veita lán til þessara fyrirtækja; það væri tilraun til að gera sjóðinn að lánsstofnun, en það virðist tilgangur alþýðu flokksmanna eftir frv. þeirra að dæma, sem þeir kalla til viðreisnar sjávarútveginum. Hæstv. fjmrh. virtist telja það varhugavert að gera ráð fyrir ríkisábyrgð fyrir þessi frystihús. Ég get út af fyrir sig verið sammála hæstv. ráðh. um það, að varhugavert geti verið fyrir ríkið að taka ábyrgð á framkvæmdum annara fyrirtækja en þeirra, er bein nauðsyn beri til. Það er augljóst, að því meiri ábyrgðir sem ríkissjóður tekur á sig, því meiri óvissa er um afkomu hans á hverjum tíma, en ég hygg, að því miður sé óhjákvæmilegt að ganga út frá ríkisábyrgð í þessu tilfelli. Fjárhagur þeirra manna, sem stofna mundu til frystihúsbygginga, er þröngur, svo að þeir geta ekki mikið lagt fram, Það væri helzt, eins og hæstv. ráðh. tók fram, að þeir gætu eitthvað unnið af sér við byggingarnar, en ég verð að telja mjög hæpið, að það framlag geti náð 15% af byggingarkostnaði, eins og hv. 2. þm. Reykv. ætlast til. Ég óttast því, að ekki verði hjá því komizt, að ríkissjóður leggi fram ábyrgð fyrir lánum, ef til framkvæmda á að koma. Nú er í 1. gr. frv. kveðið svo á, að ríkisstjórninni sé heimilt að ábyrgjast þessi lán. Hún hefir því í hendi sér, hvort hún notar þá heimild; það er ekki um beina skyldu að ræða. Ráðh. getur krafizt þess, að útgerðarmenn noti ýtrustu möguleika að fá lánin sjálfir, og þá yrði ríkisábyrgðin ekki notuð nema sem þrautaráð. Þessi heimild þarf því ekki að verða verulega hættuleg, þar sem það er á valdi ráðh. að ákvarða, hvar og hvenær hún verði notuð, sem vitanlega ætti ekki að vera, nema þegar brýna nauðsyn bæri til. Hæstv. ráðh. gerði ekki annan ágreining Hann er hlynntur því, að ríkissjóður styrki byggingarnar að 1/4 kostnaðar, en var að öðru leyti, sem eðlilegt er frá hendi fjmrh., nokkuð hræddur við ríkisábyrgðina.
Hv. 2. þm. Reykv., sem í embættisins nafni telur sig sérfræðing um markaði fyrir sjávarafurðir, gaf skýrslu um sölu þeirra víðsvegar í Evrópu, Ég efa ekki, að hann hafi þar farið með rétt mál, en ég hygg, að sölutilraunir þær, er hann gat um, hafi ekki verið nægilega öruggar og enn ekki svo fast sóttar að á þeim sé hægt að byggja neinn fullnaðardóm um markaði fyrir hraðfrystan fisk. Hann kom nokkuð inn á sögu þeirrar markaðsleitar. Það verður ekki fram hjá því komizt að sænska frystihúsið gerði fyrstu tilraunirnar í þessa átt og næst hið mjög umdeilda félag Kveldúlfur, sem hv. þm. kannast eitthvað við. Tilraunir þess félags voru mjög víðtækar. Þær mistókust að vísu, en þær gáfu hinsvegar mikilsverðar bendingar um á hvern hátt haga ætti markaðsleitinni. Hv. 2. þm. Reykv. vildi tengja þetta mál við allsherjarfrv. þeirra alþýðuflokksmanna um viðreisn sjávarútvegsins. Ég tel það mjög hættulegt framgangi málsins. Það er vitað, að í því frv. eru mjög mörg atriði, sem ekki ná fram að ganga á þessu þingi, en þar sem samkomulag virðist vera milli allra aðalflokka þingsins um þetta mál, vil ég leggja höfuðáherzlu á, að hv. sjútvn. afgr. þetta frv. út af fyrir sig, svo að frv. geti náð fram að ganga á þessu þingi, enda þótt svo kunni að fara, að þingið verði stutt. Það er nauðsynlegt, að útgerðarmenn viti sem fyrst, hvers er að vænta í þessu máli. Því betra, að það sé afgr. með sérstökum l., heldur en t. d. með heimild í fjárl.
Hv. 2. þm. Reykv. taldi of skammt gengið með þessu frv., en þar er lengra gengið en í hans frv. Í þessu frv. er gert ráð fyrir ríkisstyrk að 1/4 og ábyrgð að 3/4 byggingarkostnaðar, en í frv. hv. 2. þm. Reykv. er ekki gert ráð fyrir ríkisábyrgð fyrir meiru en 60% af kostnaðinum. Þetta er því alrangt hjá hv. þm. Frv. okkar sjálfstæðismanna gengur lengra, en það er nauðsynlegt, að gengið sé svo langt, til þess að tryggja það, að úr framkvæmdum geti orðið.