12.04.1937
Neðri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í C-deild Alþingistíðinda. (1890)
102. mál, félagsdómur
*Héðinn Valdimarsson:
Menn eru ekki í neinum vafa um það, a. m. k. ekki verkalýðurinn, hvað vakir fyrir Sjálfstfl. með þeim stöðugu tilraunum, sem hann gerir til þess að útbúa löggjöf á hendur verkalýðsfélögunum hér á landi. Hann hefir gert margar tilraunir í þá átt og byrjaði harðast, en þetta er eitt af því veikasta, sem frá honum hefir komið. Þessi flokkur hefir hvað eftir annað komið með frv. um lögþvingaðan gerðardóm í vinnudeilum, þar sem hægt væri að ákveða kaup og önnur vinnukjör verkalýðsins. En þetta hefir verið svo óvinsælt af öllum stéttum, nema atvinnurekendum, að flokkurinn hefir horfið frá þessu. Þó hefir flokkurinn bezt sýnt, hvað hann vildi í þessu efni, þegar hann barðist mest fyrir því að koma á varalögreglunni, sem allir vissu, að beint var gegn verkalýðsfélögunum hér í bænum. Og svo koma þessir háu herrar og þm. og segjast vera að vinna fyrir verkalýðinn með því að koma fram með ýmiskonar vinnulöggjöf.
Það er öllum kunnugt, að verkalýðurinn hefir ekkert á móti því, að til sé löggjöf um sáttatilraunir í vinnudeilum, enda hafa fulltrúar Alþfl. á þingi samþ. þá löggjöf, sem nú er til um það efni, og sáttasemjarar eru stöðugt kosnir að nokkru leyti af fulltrúum verkalýðsins. Það er líka kunnugt, að Alþfl. hefir ekkert á móti því, að til væri fastur gerðardómur, sem hægt væri að leita til fyrir atvinnurekendur og verkalýðsfélög, þegar þau væru ásátt um það. En það, sem komið hefir fram í frv. Sjálfstfl. um þessi efni og eins mörg ákvæði í frv. þeim, sem nú eru flutt af hv. þm. N.-Þ., er ekki það, sem verkalýðsfélögin vilja í þessum efnum. Þau óska ekki eftir því, að 75% þurfi til þess að samþ. verkfall. Og þau óska heldur ekki eftir því að hafa stórar sektir og skaðabætur við yfirsjónum þeim, sem fram kunna að koma á móti þessari löggjöf, þar sem vitað er, að annar aðilinn, atvinnurekendur, hafa fjármagnið, hvort sem þeir hafa fengið það í milljónavís að láni og geta svo notað það eftir eigin vild eða þeir hafa aflað þess á annan hátt, en hinn aðilinn eru fátækir verkamenn með litla sjóði. En aðalatriðið er þó, að það eru ekki atvinnurekendur, sem eiga að setja slíka löggjöf sem þessa, heldur verkafólkið sjálft.
Það er kunnugt, að stj. landsins hefir síðastl. 2 ár hvílt á því, að Framsfl. og Alþfl. hafa starfað saman. Þetta hefir gengið vel. Alþfl. hefir gert sitt til þess að koma fram hagsmunamálum bændanna, og Framsfl, hefir á ýmsan hátt aðstoðað Alþfl. með þau mál, sem snerta verkafólkið og alþýðuna við sjávarsíðuna. En svo undarlega bregður við nú á þessu þingi, að Framsfl. snýst í þessum brennheitu áhugamálum Alþfl. og leggst á sveif með mestu andstæðingum alþýðunnar, atvinnurekendum og sjálfstæðismönnum, svo að ekki er hægt að sjá verulegan mun á frv. Sjálfstfl. og frv. þeim, sem hv. þm. N.-Þ. ber nú fram f. h. Framsfl. Nú er mér spurn: Höfum við alþýðuflokksmenn á þingi farið þannig með bændurna? Höfum við verið með því að taka sjálfsákvörðunarréttinn af þeim? Höfum við ekki viljað láta þá hafa atkvæðisrétt um það, hvernig farið er með þeirra eigin mál? En hér kemur Framsfl. með frv., sem gengur í þveröfuga átt við vilja verkalýðsfélaganna. Það er ekki verið að auka rétt verkalýðsfélaganna, nei, heldur takmarka hann.
Verkalýðsfélög í öðrum löndum, og sérstaklega á Norðurlöndum, hafa á margan hátt fengið tryggðan sinn rétt, ekki aðeins með sérstakri vinnulöggjöf, heldur á ýmsan annan hátt. Er það nokkuð á annan veg hér, þar sem verkalýðsfélögin hafa í engu tilfelli fengið rétt sinn tryggðan. Það, sem einkennir frv. þau, sem nú liggja fyrir þinginu um þetta efni, er það, að í þeim felst öllum takmörkun á rétti verkalýðsins, en ekki aukning á honum. Það er t. d. talað um félagslöggjöfina sjálfa, en ekkert um rétt verkalýðsfélagsskaparins gagnvart verkfallsbrjótum og utanfél.-mönnum. Þetta er kannske ekki undarlegt, þegar þess er gætt, að þeir, sem að frv. standa, hafa sjálfir notað verkfallsbrjótana, þegar þeir hafa þurft á að halda. Þá væri og ekki úr vegi að hafa ákvæði í lögum um að vernda rétt alþýðusamtakanna gagnvart einstökum félögum utan þeirra. Þá væri og ekki úr vegi að auka rétt Alþýðusambandsins á þann hátt, að láta heyra undir það ýms mál snertandi verkalýðinn í landinu, eins og t. d. Búnaðarfélag Íslands ræður yfir ýmsum málum bændastéttarinnar.
Þá er ekki í frv. verið að reyna að vernda rétt trúnaðarmanna verkalýðsins eða rétt verkalýðsfélagsskaparins. Allt slíkt á að takmarka.
Hv. þm. N.-Þ. gat þess í ræðu sinni, að Framsfl. hefði jafnan verið vinveittur málum Alþfl., eins og t. d. vökulögunum, verkamannabústaðamálinu o. fl. Að þessi mál voru flutt hér á þingi og náðu fram að ganga, var ekki að tilhlutun Framsfl. heldur aðeins vegna stuðnings hans við þau.
Ég vil nú spyrja: Hvers vegna þarf að flýta þessum málum svo mjög sem raun ber vitni um? Hvers vegna mega verkalýðsfélögin í landinu ekki fá tóm til þess að athuga þau, eins og t. d. bændur landsins fengu til þess að ræða jarðræktarlögin? Liggur Framsókn svo mjög á að komast í flatsængina með sjálfstæðismönnum, að ekki megi bíða með frv., svo að verkalýðnum í landinu gefist kostur á að athuga þau. — Hæstv. forsrh. sagði í ræðu sinni, að öll verkföll væru vandræði, sem þyrfti að afstýra. En hvað segir hæstv. ráðh. um fátæktina? Er hún kannske ekki vandræði? Ég býst tæplega við, að hann geti neitað því. Og eru verkföllin ekki einmitt til að hamla á móti henni?
Þá minntist hæstv. ráðh. á hin svonefndu „hvítu verkföll“, en minntist ekkert á neina nauðsyn á að ganga á móti þeim, heldur aðeins á móti rétti verkalýðsfélaganna.
Það er nú kunnugt, hverjar undirtektir frv. þessi hafa fengið úti um land hjá verkalýðsfélögunum, og það er líka kunnugt, hvaða samþykktir voru gerðar um þetta á Alþýðusambandsþinginu síðastl. haust. Samkv. þeim undirtektum, sem frv. þessi hafa fengið hjá verkalýð landsins, mun Alþfl. halda á þessum málum.
Ég vil svo að síðustu beina því til alls verkalýðs þessa lands, sjómanna, verkamanna og iðnaðarmanna, sem þetta mál mitt heyra, að standa fast saman í þessu máli, eins og öllum góðum málum verkalýðsfélagsskaparins, og vera á móti öllu því, sem getur orðið til þess að skerða rétt hans. Neitið því, að nokkur löggjöf verði sett um þessi mál, sem ekki hefir verið samþ. af landssambandi ykkar. Lofið því að standa saman um kröfurnar um það, að verkalýður landsins hafi ekki minni rétt en aðrar stéttir landsins, og ekki minni sjálfsákvörðunarrétt.