12.04.1937
Neðri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í C-deild Alþingistíðinda. (1898)

102. mál, félagsdómur

*Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti! Ég ætla fyrst að leyfa mér að minnast á nokkur atriði í ræðu hv. þm. N.-Þ., sem sérstök ástæða er til að taka til athugunar.

Hv. þm. N.-Þ. minntist á frásögn mína um starf mþn., sem skipuð var í þetta mál. Ég verð að segja það, eins og hann sagði, að samvinna mþnm. var góð og eðlileg, þar til 19. marz í vetur, að einhver fítonsandi greip fulltrúa Framsfl., einskonar kvöldúlfsveiki, þar sem þeir klufu n. og báru fram lítt undirbúin og ekki nægilega athuguð frv. sín, sem hér liggja fyrir í þinginu. Ég skal svo geta þess, að frásögn mín af starfi n. var í öllum greinum rétt.

Hæstv. forsrh, varpaði fram spurningum í báðum ræðum sínum um það, hvar væri á Norðurlöndum frjálslyndari löggjöf en í frv. Framsfl. Hann óskaði sérstaklega eftir svari við þessari spurningu. Það er auðvelt að svara því. T. d. er hægt að benda á það, að í Svíþjóð hefir ekki verið skylda að nota sáttasemjara; eftir frv. framsóknarmanna er það skylda. Í Svíþjóð er og ekki tilskilið ákveðið atkvæðamagn til að fella till. sáttasemjara. Í frv. Framsfl. eru ákvæði um þetta mjög þröng og tekið úr þeirri löggjöf Norðurlandaþjóðanna, sem lengst gengur í þessu efni, Það hefir ekki verið skylda í Svíþjóð að útkljá deilur í fleiri en einni atvinnugrein í einu. Þetta er skylda í frv. Framsfl. Þarna hefi ég bent á þrjú atriði, sem öll ganga lengra í þá átt að binda frjálsræði verkalýðsins heldur en í löggjöf í neinu Norðurlandanna. — Hér er sagt satt frá eins og hæstv. forsrh. óskaði eftir.

Hæstv. forsrh. sagði, að Framsfl. vildi hafa sanngjarna löggjöf um vinnudeilur, en í frv. hv. þm. N.-Þ. eru engar reglur um það, hvort vinnudeilur séu löglegar yfirleitt eða ekki. Það vantar ákvæði um það í till. framsóknarmanna. Þess vegna verður ekki ráðið neitt af framkomnu frv. Framsfl. um frjálsyndi þeirra í þessu efni. Það biður sín; tíma, og ég vildi vænta þess, að orð hæstv. forsrh. megi skoða sem yfirlýsingu flokks hans um þetta efni, þegar þetta mál kemur til úrlausnar hér á Alþingi. — Hæstv. forsrh. minntist allmikið á slagsmálaréttinn. Mér virðist frv. framsóknarmanna á engan hátt hindra þennan slagsmálarétt.

Hv. þm. Snæf. sagði, að frv. sjálfstæðismanna væri það bezta og nauðsynlegasta úr vinnulöggjöf Norðurlanda. Þetta er með öllu rangt. Löggjöf Norðurlanda er ólík í einstökum atriðum. Verkamenn eru misjafnlega ánægðir með ákvæðin, en það er væntanlega engin tilviljun, að Sjálfstfl. hefir í frv. sínu valið þau ákvæði, sem eru óvinsælust í því landi, þar sem þau gilda. Svo er t. d. í löggjöf Dana um hinar flóknu og óeðlilegu reglur um atkvgr. og þátttöku til þess að samþ. eða fella till. sáttasemjara. im það ákvæði hefir verið mjög mikil óánægja í Danmörku. Sama er að segja um það ákvæði í löggjöfinni í Danmörku, sem segir, að það megi afgera fleiri en eina deilu í sömu atkvgr. fyrir meira en eina atvinnugrein sbr. 15. gr. frv. á þskj. 140. Þessi ákvæði hafa sætt mótspyrnu yfirleitt í Danmörku. Það þarf ekki að ræða mikið um það vald, sem fylgir frv. sjálfstæðismanna. Hv. 2. þm. Reykv. hefir gert það. Það hefir verið bent á það, að eftir frv. sjálfstæðismanna hefir sáttasemjari vald til að hindra vinnudeilur í allt að 10–14 daga, og hvernig á það við eftir staðháttum hér á Íslandi? Segjum t. d., að það eigi að stöðva uppskipun úr togara. Sáttasemjari segir: ég fresta deilunni í 10–14 daga, — en það tekur einn dag að skipa upp úr einum togara. M. ö. o., þessar reglur er svo einstrengingslegar, miðað við íslenzka staðhætti, að það verður algerlega hindrað samkvæmt frv. Sjálfstfl. að hefja verkfall í mörgum starfsgreinum í lausavinnu hér á landi. Þetta er eitt dæmi um það, hvað frv. sjálfstæðismanna er tekið hrátt og ósoðið upp úr löggjöf Norðurlanda, þar sem meiri hluti verkamanna vinna í iðnaðinum og eru ráðnir til vinnunnar, en hér á þetta hinsvegar ekki við um lausavinnu.

Ég vil að lokum draga saman það, sem umræður þessar og afstaða flokkanna hefir sýnt, og af því má draga þá niðurstöðu, að Sjálfstfl. hefir sýnt á Alþingi 1929, að hann er reiðubúinn til að koma á lögþvinguðum gerðardómi um kaup og kjör verkalýðsins. Hann hefir sýnt það á Alþingi 1936 og 1937 með frv. um vinnudeilur, að hann vill skerða ýms réttindi verkalýðssamtakanna til verkfalla, með því að geta bannað þau fyrir atbeina sáttasemjara í 10–14 daga og heimta óeðlilega mikið atkv.magn til að fella till. sáttasemjara. Þannig eru allar till. Sjálfstfl. á Alþingi í þessu máli beinlínis fjandsamlegar gegn verkalýðssamtökunum. Sjálfstæðismenn eru því í þessu máli sem í öðrum höfuðandstæðingar alþýðusamtakanna. Framsfl. er í þessu máli sem mörgum öðrum tvístígandi og hikandi. Nokkur hluti hans hefir á Alþingi 1929 gengið með lögþvinguðum gerðardómi um vinnukjör. Á þessu þingi flytur hann lítt undirbúið og að sumu leyti varhugaverðar till. um vinnulöggjöf, sem að nokkru leyti ganga gegn hagsmunum verkamanna, en hefir hinsvegar engar till. fram að bera, er mættu vera til beinna hagsmuna fyrir verkalýðssamtökin. Í afstöðu Framsfl. liggur því hætta, sem getur verið alvarleg, ef hin íhaldssamari öfl flokksins ráða. Hér þarf því einnig mjög að vera á verði, Alþfl. einn allra flokka berst af alefli, gegn öllum skaðsemdartill. út af vinnudeilum. Hann er hinsvegar fús til að vinna að lögfestingu ákvæða til aukinna réttinda og eðlilegrar lausnar á ákvæðum um sáttatilraunir í vinnudeilum og úrskurði um ágreining út af skilningi samninga. Alþfl. vill þannig einn vernda rétt alþýðusamtakanna og auka hann; þar skilur í þessu máli sem öðrum á milli Alþfl. og hinna flokkanna.