07.04.1937
Neðri deild: 32. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í C-deild Alþingistíðinda. (1912)
105. mál, Byggingarsjóður sveitanna
*Flm. (Jón Sigurðsson):
Ég skal ekki þreyta d með langri ræðu, enda er gerð nokkur grein fyrir frv. í grg. þess. Þó vil ég drepa á nokkur atriði um leið og ég legg málið fyrir. Það, sem skortir á í þessu efni, eru hagstæð lán, og í öðru lagi vantar fullnægjandi tryggingar frá hálfu bænda, og svo er jafnframt getuleysi þeirra til að standa undir þeim erfiðu lánum, sem þeir eiga nú kost á að fá. Það er bersýnilegt, að margir bændur eru þannig á vegi staddir, að þeir þurfa nauðsynlega allra hluta vegna að byggja upp jarðir sínar, eða þá að öðrum kosti að yfirgefa þar, svo slæmt er ástandið viða. Samkv. hinni nýju nýbýlalöggjöf er ríkinu skylt að veita ríflegan styrk til að endurbyggja þær jarðir, sem fara í eyði einhverra hluta vegna, Það er þess vegna bersýnilegur hagur að því fyrir ríkissjóð, ef stuðlað væri að því að halda þessum jörðum í ábúð með því að útvega ódýr lán til endurbóta á húsum. Við flm. höfum í þessu frv. bent á leiðir til að afla þessara ódýru lána, og höfum við borið okkur saman við forstjóra Búnaðarbankans, sem taldi þá leið, sem við viljum fara, mjög líklega og vel færa. Við höfum einnig í þessu frv. lagt til að breyta ákvæðum laganna um byggingar- og landnámssjóð nokkuð í samræmi við breyttar aðstæður og breytt viðhorf, sérstaklega eftir að nýbýlalögin voru sett.
Ég vil vænta þess, að þetta frv. fái athugun í n. Það er að vísu hér á dagskrá annað frv., sem gengur í svipaða átt, en miklum mun skemmra. Ég ætla ekki að minnast á það nú, en það gefst vonandi tækifæri til að ræða um það áður en það fer hér úr hv. d.