09.04.1937
Neðri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í C-deild Alþingistíðinda. (1936)
106. mál, fiskimatsstjóri
*Thor Thors:
Ég verð að segja, að mér þykir Ieitt að sjá þetta frv. hér fram borið, og mér þykir það sérstaklega leitt vegna þess, að jafnmætur, reyndur og varfær maður stendur að flutningi þess eins og hv. 1. þm. Rang. er. En þar sem ég hefi starfað sem framkvæmdastjóri við sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda; mestan þann tíma, sem liðinn er frá stofnun þess, þá kemst ég ekki hjá því að segja nokkur orð við þessa umr., enda þótt ég hafi engan hug á því að lenda í deilum við hv. flm.
Það segir svo í grg. frv., að það hafi verið mjög skiptar skoðanir á Alþ., þegar l. þessi voru sett, um það, hvort þau skyldu ná fram að ganga. Ég hefi farið yfir Þingtíðindin frá þeim tíma, að þetta mál var á ferðinni, og veitt því athygli, að það var yfirleitt samþ. með samhlj. atkv. í báðum d., og loks afgr. með samhlj. atkv. í Sþ. Hinsvegar er það vitað, að hv. flm. beitti sér í öndverðu af miklu kappi gegn þessu máli, en það var sú eina ákveðna andstaða, sem það hlaut í þinginu. Ég skil vel, af því ég hefi þá ánægju að þekkja hv. flm., að kapp hans er enn ekki með öllu runnið, og því tekur hann þetta mál upp nú sem gamalt deilumál. En ég get ekki fallizt á þau rök, sem grg. getur um og fram komu í hans ræðu. Það var nokkuð gott samkomulag um þetta mál í öndverðu, og það var vegna þess, að stöðugt vaxandi kröfur okkar viðskiptamanna gerðu það nauðsynlegt, að við reyndum að aðhafast eitthvað til tryggingar því, að markið væri betur samræmt víða á landinu en raun hefði á verið. Nú staðhæfði hv. flm., að fiskmatinu hafi ekki farið fram á þessum tíma. Ég verð að vera á öndverðri skoðun við hann í því. Sölusambandinu hafa miklu sjaldnar borizt kvartanir síðan. Og ég er þess fullviss, að enda þótt fiskimatsstjórinn hafi ekki starfað lengi, þá hefir hann samt unnið mikið gagn í því, að samræma matið og kenna hinum ýmsu matsmönnum úti um landið, hvernig á að meta fisk fyrir hvern einstakan markað. Þetta er einmitt enn nauðsynlegra á síðari tímum, vegna þess að sölusambandið hefir hafið innflutning á fiski fyrir markaði, sem við höfðum áður lítil skipti við. Ég á þar við markaðina í Suður-Ameríku, bæði í Brasilíu, Argentínu og ennfremur á Cuba. Ég veit persónulega til þess, að fiskimatsstjórinn kynnti sér mjög rækilega það, sem forstjórar Sölusambandsins höfðu að flytja um það, hvernig meðhöndla ætti fisk fyrir þessa staði, og fiskimatsstjórinn sendi matsmönnum víða á landinu nákvæmar reglur um, hvernig þessi fiskur skyldi metinn, og hann hélt fund með hinum fiskimatsmönnunum, þar sem þetta nýja mat var sérstaklega tekið fyrir.
Hv. flm. byggir afstöðu sína aðallega á því, að fiskimatsstjórinn hafi orðið þess valdandi, að of harður fiskur hafi verið sendur til Portúgals. Mér kemur þetta nokkuð einkennilega fyrir sjónir. Eftir því, sem fiskimatsstjóri hefir sagt mér, hefir hann farið um margar vinnustöðvar og verkunarstöðvar hér í bænum. Hjá sumum hefir hann látið herða á matinu fyrir Portúgal, en hjá öðrum ekki. Það er náttúrlega viðkvæmt mál fyrir fiskeigenda, þegar honum er sagt að herða matið á fiskinum, því að það er vitanlega tjón fiskeiganda. Það er líka álitamál, hversu harður fiskurinn má vera, og það er rétt hjá hæstv. atvmrh., að herzla fiskjarins er mismunandi fyrir þennan markað eftir því, á hvaða tíma á að selja hann. Það fer eftir því, á hvaða árstíð fiskurinn er seldur, hve harður hann þarf að vera, þeim mun harðari þeim mun heitara, sem er í viðskiptalandinu, þegar hann er seldur. En ég get vel skilið, að fiskeigandi sé gramur yfir því, þegar honum er sagt að herða fiskinn, og skal ég jafnframt viðurkenna, að það er fullkomið álitamál, hversu langt á að ganga í því, og ég geri mig alls ekki að dómara í því, hvor hafi réttara fyrir sér í þessu einstaka tilfelli, hv. fhn., sem er mjög glöggur á fiskimat, eða fiskimatsstjórinn, sem er ekki síður glöggur á fiskimat. En þessi ágreiningur getur á engan hátt réttlætt það, að bera fram frv. um, að leggja niður starf þessa manns. Út af matinu á Portúgalsmarkaðinum og afskiptum fiskimatsstjóra af því, þá vil ég geta þess, að hann fór til Portúgals og kynnti sér óskir kaupenda, og út frá því hefir hann gefið matsmönnum nákvæmar reglur viðvíkjandi matinu. Ég hefi í höndum bréf til Sölusambandsins, sem er dags. 10. jan. þetta ár. Þar segir, að sala og viðskipti Norðmanna í þessu landi séu torvelduð mjög, vegna þess að tíðar kvartanir um gæði og þurrkun fiskjarins hafi komið fram. En í sama bréfi segir, að það sé okkar styrkur í viðskiptunum við Portúgal, hversu jöfn gæði og stærð íslenzka fiskjarins eru. Ég skal sýna hv. flm. þetta bréf á eftir, ef hann óskar þess. Hann segir í því, að það sé sín aðalrökfærsla, til þess að greiða götu íslenzka fiskjarins til Portúgals, það sem hann kallar „den ualmindelige, jævne Kvalitet“, m. ö. o. hið óvenjulega góða samræmi, sem er í matinu. Þetta verð ég að telja mjög lofsamleg ummæll í garð íslenzka fiskimatsins, og þar með í garð fiskimatsstjóra. Það hafa engar kvartanir komið frá Portúgal um, að fiskurinn hafi verið of harður, enda eðlilegt, að þeir kvörtuðu ekki yfir því. Hinsvegar er ekki langt síðan smávægileg kvörtun kom til Sölusambandsins yfir einni sendingu, sem hafði verið í fínasta lagi.
Ég vil því endurtaka það, að ég get ekki fallizt á rök hv. flm. fyrir því, að það beri að leggja þetta embætti niður, og mér þykir leitt að þurfa að deila við hann um það. Mér þykir líka gæta fullmikils bráðlætis í þessu, Það er ekki komin svo mikil reynsla ennþá, a. m. k. ekki til hins verra, að ástæða sé til að flýta sér að afnema embættið.
Hv. þm. veit það vel, að hagsmunir þeir, sem sjávarútvegurinn hefir af góðu fiskimati, eru það miklir, að það getur á engan hátt komið til mála, að telja eftir eins smávægilega upphæð eins og laun fiskimatsstjórans og kostnaðinn af því embætti. Ég hefði getað skilið, að hv. flm. hefði komið með till. um að afnema embætti fiskifulltrúans á Spáni, sem á einkennilegan hátt og eftir því, sem manni er sagt, fyrir áhrif æðri ósýnilegra valda, var leiddur frá Spáni í byrjun borgarastyrjaldarinnar. Hann getur ekkert gagn gert íslenzkum sjávarútvegi nú, þar sem hann hefir verið í Þýzkalandi mestan hluta síðastl. árs. Það er embætti, sem kostar ríkissjóð 30–40 þús. kr. árlega. Það mætti vel tala um að leggja það embætti niður, því af því hafa íslenzkir útgerðarmenn ekkert gagn, eins og nú stendur. En að svipta útgerðarmenn þeirri tryggingu, sem þeir eiga að hafa í fiskimatsstjóranum, tel ég ekki rétt.