09.04.1937
Neðri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í C-deild Alþingistíðinda. (1937)
106. mál, fiskimatsstjóri
*Flm. (Jón Ólafsson):
Ég skal ekki vera langorður um þetta mál. Ég heyri á öllu, að formælendur embættisins eru vel heima í öllu því, sem fiskimatsstjórinn ber sjálfur fram. Ég tel, að það megi ekki eiga sér stað, að koma útlendingum á of mikið eða ganga inn á of mikið við þá. Við verðum að reyna að komast að samkomulagi við þá án þess að slaka alltaf til.
Mér hefir skilizt, að fiskimatsstjórinn hafi farið til Portúgals, og þeir hafi þar heimtað af honum þetta þurrkstig. En þetta er alveg öfugt við það, sem áður hefir verið gert. Hann hefir látið þetta eftir þeim til stórskaða fyrir landsmenn, í stað þess að liðka málið þannig til, að það gæti haldizt sem gengið hafði athugasemdalaust frá 1930. Ég man það, að þessi núv. fiskimatsstjóri fékk að fara til Spánar 1929. Hann kom með það erindi heim, að nú ættum við að ganga inn á það við Spánverja að binda fiskinn og vefja hann. Glöggur maður reiknaði út, að það hefði orðið 70 þús. kr. skaði fyrir landsmenn, ef gengið hefði verið inn á það. Árið eftir fór Jón Magnússon til Spánar, og hann fékk þessu aflétt. Þegar svona menn eru sendir út, sem ekki vinna sér annað til frægðar en að sýna undanlátssemi og hafa ekki vitsmuni til að semja, svo að gagni verði fyrir landsmenn, þá er það meira tjón en almenningur gerir sér grein fyrir, að hafa slíka menn í trúnaðarstöðum.
Það hefir sýnt sig, að matið fyrir Portúgalsmarkaðinn hefir skaðað landsmenn um 400 þús. kr. 1935, og 1936 nokkuð líkt. Og þegar menn eru að tala um, að ég telji eftir launin, sem þessi maður hefir, þá er það ekki rétt. Ég er einmitt að telja eftir það, sem við þurfum að borga fyrir skemmdarverk hans, en laun þau, sem maðurinn hefir, tel ég ekki svo mikils virði.
Hæstv. ráðh. sagði, að hann hefði verið fenginn hingað til að samræma matið. Hann getur ekki fengizt við að samræma matið, því að hann þekkti ekki nema Austfjarðamat, þegar hann kom hingað suður. Hann er því enginn maður til að samræma matið, enda er ómögulegt að samræma matið milli landsfjórðunga, þar sem um ólíkar fisktegundir er að ræða að vissu leyti, sem þurfa ólík þurrkstig. Ég veit ekki til, að það hafi komið hroðalegri vörur utan af landi en þær, sem komu til Alliance í sumar. En eftirlitsmaðurinn í Rvík bjargaði þeim frá að fara í skip.
Ég veit ekki, hve miklar aðfinnslur Sölusambandið hefir fengið um matið á þessu ári. En ég vissi, að þegar verið var að syngja stofnun þessa embættis lof á sinni tíð, þá var það aðalatriðið, að samræma matið hér innanlands, sem ég hefi leitt rök að, að sé í raun og veru ómögulegt. Fiskimatsstjórinn verður að trúa yfirmatsmönnunum fyrir þessu, og þeir undirmatsmönnunum, svo að það getur hvenær sem er komið annar flokkur af fiski en ætlazt er til að komi. Um þetta þýðir ekki að þrátta.
Hæstv. ráðh. þykir viðurhlutamikið að leggja niður þetta embætti. En ég get með þeirri reynslu, sem ég hefi, sagt honum, að það hefir alveg þveröfug áhrif, að setja hverja húfuna upp af annari, svo að ábyrgðin dreifist, sem einstakir starfsmenn eiga að hafa. Slíkt getur aldrei orðið til góðs.
Hv. þm. Snæf. sagðist hafa starfað mikið að fisksölumálum, og er það rétt. En hann hefir ekki gert sér grein fyrir því, sem um er að ræða í slíkum tilfellum, enda kærir hann sig kannske ekki um að kannast við það, þótt hann hafi heyrt einhverja segja frá því, sem orðið hafa fyrir barðinu á slíkum tiltektum og þeim, að herða fiskinn svona mikið. — Hv. þm. sagði, að hann hefði látið herða á matinu sumstaðar, en sumstaðar ekki. Ég get vel trúað þessu. En ég verð að segja það, að sumir verða fyrir barðinu á þessu, sem ekki höfðu áður fengið neina kvörtun á sinn fisk.
Það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að þessi maður var álitinn allra manna hæfastur í þetta embætti. Ég er nú búinn að segja frá einni för hans til Spánar. Hann komst líka einu sinni svo hátt, að hann fékk einkaleyfi hjá þinginu á vissri fiskverkunaraðferð. Ég veit ekki betur en hún sé hin mesta fjarstæða og hafi leitt af sér ærinn skaða fyrir landið. Af þessum orsökum og fleirum álít ég, að þessi maður hafi aldrei verið fær um að taka að sér þetta embætti. Hann hefir farið til Portúgals. við höfum fengið að kenna á því. En ég óska, að hæstv. ráðh. spari þann kostnað, sem af slíku leiðir, beinlínis og óbeinlínis.
Það bréf, sem hv. þm. Snæf. minntist á, mun vera frá fyrrv. umboðsmanni Alliance, sem er Norðmaður. Þegar hann var umboðsmaður Alliance, þá hafði hann ekkert út á matið að setja. Ég fullyrði, að það hafi ekkert verið út á það að setja, þótt það sé vel skiljanlegt, að Portúgalsmenn vilji ekki kaupa af okkur meira vatn en þeir eru nauðbeygðir til eða fá okkar sendimenn til að ganga inn á. Allir vita, að fiskimatsstjórinn hefir gengið inn á þetta að óþörfu, af tillátssemi og þeirri ástæðu, að hann er ekki maður til að fara með slík vandamál.
Ég skal ekki segja neitt um þær reglur um mat, sem fiskimatsstjórinn á að hafa sett. En ég vissi, að fiskifulltrúinn okkar á Spáni setti matsreglur um allt land, þegar hann var á ferð, og hélt fundi með fiskimatsmönnunum. Ég hefi fengið að sjá fundargerð frá síðasta fundi, sem fiskimatsstjórinn hélt með matsmönnum, og get ekki dáðst að þeirri þekkingu, sem þar kemur fram, eða þeim ráðleggingum, sem hann útdeilir þar. Mér er líka ljóst, að þar er ekki hægt að miðla neinu, og óþarfi að ætla sér að gera það við þá sömu menn sem hafa haft matið í hverjum landsfjórðungi.
Ég get að vísu látið útrætt um þetta mál. Það hefir enga þýðingu að vera að karpa um það. Ég veit, að það eru ótal vitni, glöggir menn, sem hafa sagt mér, hvernig þessum málum er háttað, sem ég reyndar þarf ekki að láta segja mér neitt um. Meðal annars sagði mér einn maður, að hann hefði árið 1925 skaðazt um 25 þús. á Portúgalsfiskinum. Sama er að hafa suður með sjó og víðsvegar þar, sem ég þekki til.
Ekki það, að ég sjái eftir laununum; þau hafa ekki verið svo stór. En ég harma, að þetta skuli hafa átt sér stað alveg að ástæðulausu og til stórskaða fyrir landsmenn.