16.04.1937
Neðri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í C-deild Alþingistíðinda. (1965)
109. mál, viðreisn sjávarútvegsins
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Alþfl. gekk til kosninga fyrir þrem árum síðan, á grundvelli stefnuskrár sinnar um lausn aðkallandi verkefna, sem oft í daglegu tali er nefnd 4 ára áætlunin; en meginatriði hennar var að efla og tryggja atvinnulíf í landinu, jafnvel til sjávar og sveita, og skapa jafnvægi í kjörum bænda með gagnkvæmum stuðningi. Að kosningunum afstöðnum gerðu Alþfl. og Framsfl. með sér opinberan málaefnasamning um þau atriði 4 ára áætlunarinnar, sem brýnust þörf var á að leysa á næstu 2 árum. Samstarf Framsfl. og Alþfl. um löggjöf og stjórnarframkvæmdir síðan 1934 hefir verið byggt á þessum málefnasamningi, sem kominn var til framkvæmda (12 atriði af 14) á síðasta ári.
Í samræmi við þennan samning hafa þessir flokkar á árunum 1934 til 1936 komið fram mikilsverðum málum og þýðingarmiklum umbótum með löggjöf og stjórnarframkvæmdum, og hefir um þau verið gerð samvinna. Þykir mér rétt að drepa á nokkur þeirra.
1. Sala innlendra afurða á innlendum og erlendum markaði. Þar undir heyrir stofnun fiskimálanefndar, fisksölusambandið, síldarútvegsnefnd. og að nokkru leyti breyt. á lögum síldarverksmiðju ríkisins, lögin um sölu kjöts og mjólkur og ýmsar ráðstafanir til jafnvirðiskaupa eða aukinna kaupa í því skyni að afla markaða fyrir íslenzkar afurðir.
2. Beinn fjárhagsstuðningur við atvinnuvegina. Þar má telja: stofnun fiskimálasjóðs og nýbreytni fiskimálanefndar, lögin um nýbýli og samvinnubyggðir, vaxtalækkun til handa landbúnaðinum, skuldaskilasjóð, vertíðarhjálpina 1936 og fóðurbætiskaup til harðindasvæðanna norðanlands og austan, skuldaskil línuveiðagufuskipa, sérstakan styrk til kartöfluræktunar, leitun fiskimiða, tilraunir til síldveiði við Faxaflóa, stofnun iðnlánasjóðs, og skattfrelsi nýrra iðnfyrirtækja. Í þessu sambandi má nefna vernd og stuðning við iðnaðinn, fyrir starfsemi gjaldeyris- og innflutningsnefndar.
3. Félagsmálalöggjöf, svo sem alþýðutryggingar, lögin um framfærslu sjúkra manna og örkumla og hin nýju framfærslulög.
4. Stuðningur við sveitar- og bæjarfélög, með stofnun kreppulánasjóðs, til lánveitinga þeim til handa.
5. Stóraukin opinber framlög, beint og óbeint, til opinberra framkvæmda og til atvinnubóta.
6. Þrátt fyrir stórfelld fjárframlög til þessara margháttuðu framkvæmda hefir verið afnumið sérútflutningsgjald af síld, 6% verðjöfnunargjald af saltfiski, og lækkaður tollur á kaffi og sykri. Hefir og verið samkomulag milli stjórnarflokkanna um fjáröflun handa ríkissjóði til að mæta kostnaði við framangreindar aðgerðir, svo að tekizt hefir að reka búskap ríkissjóðs hallalaust bæði árin 1935 og 1936. Jafnframt tókst árið 1936 að ná fullum greiðslujöfnuði við útlönd þrátt fyrir lokun Spánarmarkaðarins, og aðra erfiðleika á saltfiskssölu. Alþfl. lítur svo á, að með þessum margþættu ráðstöfunum hafi þegar tekizt, þrátt fyrir hið geysilega áfall, sem lokun Spánarmarkaðarins og innflutningsörðugleikarnir til Ítalíu hlaut að verða þjóðinni, að vinna mikilsvert starf til hagsbóta fyrir hinar vinnandi stéttir í sveitum og við sjávarsíðuna. Með þeim hefir beinlínis tekizt að afstýra hruni, sem ella hefði orðið óhjákvæmileg afleiðing lokunar fiskmarkaðsins á Spáni og innflutningstakmarkana á Ítalíu. En frá þessum löndum fengum við 8–20 millj. króna í frjálsum gjaldeyri umfram vörukaup næsta ár fyrir stjórnarskiptin, árið 1933. Hinsvegar verður því ekki neitað, að þótt ástand og horfur flestra atvinnugreina sé nú stórum vænlegra en þegar samstarf flokkanna hófst, þá stendur þó enn höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar, sem verið hefir undirstaðan undir öllum viðskiptum við útlönd, sjávarútvegurinn, höllum fæti fyrir það áfall, sem þorskveiðarnar hafa hlotið vegna markaðsörðugleikanna og eindæma aflabrests síðustu vertíðir.
Þrátt fyrir stórfelldar framfarir í öðrum greinum sjávarútvegsins (síldveiðar, karfi, ufsi, herðing, hraðfrysting, rækjur o. fl.), hefir sjávarútvegurinn í heild ekki getað haldið í horfinu meðan hagur annara höfuðatvinnuvega, landbúnaðar og iðnaðar, hefir stórum batnað.
Af þessu hefir leitt, að atvinna og tekjur sjómanna og verkafólks við sjávarútveg hefir komizt úr jafnvægi við atvinnu og tekjur annara vinnustétta. En það verður aftur til þess, að bezti markaðurinn, innlendi markaðurinn í kaupstöðum og þorpum, fyrir afurðir bænda og innlendar iðnaðarvörur spillist, til tjóns einnig fyrir þá aðila.
Þingi Alþýðusambands Íslands, sem haldið var á síðastl. hausti, var þetta ljóst. Það samdi starfsskrá fyrir Alþfl. um næstu 2 ár. eða til loka kjörtímabilsins, þar sem höfuðáherzlan var lögð á nauðsynina á því að halda áfram og auka stórkostlega við aðgerðir hins opinbera til stuðnings sjávarútveginum, til þess að tryggja atvinnu þess fólks, sem á afkomu sína undir honum beinlínis eða óbeinlínis.
Tilætlun Alþýðusambandsins var sú, að um lausn þessara mála og annara meginatriða starfsskrárinnar, svo sem lagfæringar á lögunum um alþýðutryggingar o. fl., yrði gerður opinber málefnasamningur milli Alþfl. og Framsfl. á sama hátt og 1934. Var leitað eftir þessu við Framsfl. bæði fyrir flokksþing hans og að því loknu. eftir að Alþingi kom saman. Fóru þessar viðræður fram milli nefnda, sem báðir flokkar tilnefndu. Viðræður þessar báru ekki árangur. Samkomulag náðist ekki, hvorki um það, að gerður yrði opinber málefnasamningur, né heldur um þá lausn málanna á annan hátt, er Alþfl. gæti sætt sig við.
Þegar þetta var séð. sá Alþfl. ekki aðra leið færa en þá, að bera mál sín fram í frumvarpsformi á Alþingi, til þess að Framsfl. og aðrir flokkar þingsins tækju þar opinbera afstöðu til þeirra. Þessi frumv. eru:
1. Frv. um mat, uppgerð og fjárhagslega viðreisn togaraflotans í heild, og í sambandi við það frv. um mat á efnahag h/f Kveldúlfs og um uppgerð félagsins, ef matið sýndi, að það ætti ekki fyrir skuldum.
2. Frv. til breyt. á landsbankalögunum, til tryggingar því, að yfirstjórn bankans sé jafnan í samræmi við vilja meiri hl. Alþingis, og um nauðsynlegar takmarkanir á rétt bankans til veitinga milljónalána og stórra skuldaeftirgjafa.
3. Frv. um breytingar á lögum um alþýðutryggingar, til þess að tryggja fjárhag þeirra, létta iðgjaldagreiðslur og auka nokkuð framlag til ellilauna og atvinnuleysissjóða.
4. Frv. til breyt. á lögum um iðnlánasjóð, til aukninnar starfsemi hans, svo að iðnaðurinn geti enn fært út kvíarnar og séð því fólki fyrir atvinnu, sem ekki kemst í aðrar atvinnugreinir, og jafnframt sparað þjóðinni gjaldeyri til kaupa á erlendum iðnaðarvarningi.
5. Frv. það, sem hér er nú til umr., um ýmsar ráðstafanir til viðreisnar sjávarútveginum, í viðbót við og í framhaldi af störfum fiskimálanefndar og síldarútvegsnefndar, svo sem styrk til að koma upp síldarverksmiðjum, frystihúsum og niðursuðuverksmiðjum o. fl., til að reyna nýjar tegundir veiðarfæra o. þ. h., og síðast en ekki sízt ráðstafanir til að endurnýja vélbáta og togaraflotann með nýtízku skipum, er geti hagnýtt margbreyttan afla til fulls.
Hæstv. fjmrh. sagði í ræðu sinni hér í kvöld, að frv. Alþfl. hefðu ekki verið lögð fyrir Framsfl. áður en þau voru borin fram á Alþingi. En hann játaði þó, að rætt hefði verið við Framsfl. um stuðning við togaraútgerðina, sem hann þá hefði tekið afstöðu gegn. Hann játaði ennfremur, að milli Alþfl. og Framsfl. hefði verið rætt um afnám útflutningsgjaldsins af sjávarafurðum til ríkissjóðs, sem hann nú tjáir sig meðmæltan, en átelur alþfl. jafnframt fyrir það, að hann bendi ekki á nýjar tekjur fyrir ríkissjóð í staðinn. En ef hæstv. fjmrh. er sjálfur meðmæltur afnámi útflutningsgjaldsins, hverjum stendur það nær en honum sjálfum sem fjmrh. að gera till. um auknar tekjur eða lækkuð gjöld í staðinn? Hæstv. fjmrh. telur fjárhag ríkissjóðs ekki þola þann stuðning við togaraútgerðina, sem Alþfl. fer fram á. En hvar er fjárhag ríkissjóðs komið, ef ekki er réttur við hagur sjávarútvegsins? Undirtektir Framsfl. undir þessi mál hafa til þessa verið á þann veg, að Alþfl. getur ekki unað þeim. Algert afsvar við því að láta fara fram mat á fjárhag Kveldúlfs og togaraflotans í heild, í því skyni að gera upp þau fyrirtæki, sem ekki eiga fyrir skuldum og því í raun réttri eru eign bankanna, þ. e. þjóðarinnar, og koma fjárhag þeirra og rekstri í sæmilegt horf. Afsvar við því, að svo stöddu a. m. k. að ráða bót á ágöllum laganna um alýðutryggingar. Sama er svarið a. m. k. í bili við því að efla iðnlánasjóðinn svo, að hann geti hjálpað iðnaðinum til að skapa verulega aukna atvinnumöguleika og sparað erlendan gjaldeyri.
Á Landsbankalögunum vill Framsfl. gera þá einn breyt. á þessu þingi, að gera fundi landsbankanefndarinnar starfhæfa, og takmarka nokkuð réttinn til eftirgjafa, en ekki tryggja það, að landsbankanefndin og bankaráðið sé skipað í samræmi við þingvilja, eða takmarkaður verði réttur bankans til veitingu milljónalána.
Um undirtektir Framsfl. undir frv. það, sem hér er nú til umr., er svipað að segja. Að vísu tekur flokkurinn vinsamlega í einstök atriði þess, svo sem styrk til frystihúsa o. þ. h. En um meginatriðin, endurnýjun skipastolsins fyrir forgöngu hins opinbera, virðist hann að svo stöddu taka að fallast á till. Alþfl. án þess þó að benda á aðrar færar leiðir að sama marki.
Alþfl. getur ekki sætt sig við það, að einstök smærri atriði séu tekin út úr frv. hans, en meginatriðin, þau, sem mest veltur á, séu felld. Alþfl. kýs þá hitt heldur, að málin, stefnurnar, séu lögð undir úrskurð kjósenda í landinu, í fullu trausti þess, að við kosningar komi í ljós sú afstaða þjóðarinnar til þessara mála, er knýi fram lausn þeirra í samræmi við till. Alþfl. Alþfl. telur einnig, að Framsfl. hafi með því að láta fulltrúa sína í nefnd þeirri, er ég skipaði til þess að geri till. um vinnulöggjöf, með það fyrir augum að reyna að finna grundvöll í því máli, er Alþfl. og Framsfl. gætu sameinazt um, slíta samvinnu í n. með því að bera fram sérsök frv. á Alþingi, áður en n. hafði lokið störfum, sýnt skort á vilja til samstarfs um eitt hið þýðingarmesta og viðkvæmasta mál, er úrlausnar bíður.
Samvinna Alþfl. og Framsfl. hefir byggzt á því, að jöfn tillit yrðu tekin til beggja vinnustétta þjóðarinnar. við sjó og í sveitum: verkafólks, sjómanna og iðnaðarmanna annarsvegar og bænda og vinnufólks við landbúnað hinsvegar.
Alþfl. hefir jafnan verið fús til að vinna að hagsmunum sveitanna og komið fram umbótamálum þeirra með Framsfl. Nú síðast þessa dagana hefir hann ákveðið að styrkja Framsfl. í því að gera ráðstafanir til varnar Deildartunguveikinni, sem kosta hundruð þúsunda af opinberu fé. Þetta sýnir vilja Alþfl. til áframhaldandi samstarfs. En flokkurinn verður að krefjast skilnings Framsfl. á hagsmunamálum þeirra, er búa við sjávarsíðuna. Ef Framsókn neitar að taka tillit til þeirra hagsmuna er grundvöllurinn að samstarfinu brostinn. Og svör Framsfl. sýna, að vilji til aðgerða í þessum efnum er nú ekki fyrir hendi. Af þessum ástæðum, er ég nú hefi greint, verð ég að tilkynna hæstv. forsrh., að Alþfl. getur ekki haldið áfram á Alþingi samstarfi við Framsfl. né samvinnu um stj. landsins, að óbreyttri þessari afstöðu.