08.04.1937
Neðri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 691 í C-deild Alþingistíðinda. (1976)
111. mál, alþýðutryggingar
*Flm. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Hv. þm. V.-Sk. hefir ásamt fleiri þm. flutt frv. á þskj. 25. Þegar það var rætt hér, gat ég þess, að ég myndi síðar bera fram frv. um breyt. á l. um alþýðutryggingar, og liggur það nú hér fyrir. Ég tek það fram, að með frv. mínu er ekki fullnægt þeim kröfum, sem Alþfl. kysi að gera í þessu máli, en hinsvegar hefir það að geyma miklar endurbætur á l., sem vert er að samþ. Ég fer ekki rækilega út í einstakar gr. frv. þar sem því fylgir ýtarleg grg., er skýrir það að mestu.
Um 1. og 2. gr. er ekki margt að segja. Þar eru aðeins leiðréttingar og viðaukar við nokkur atriði í slysatryggingal., sem að nokkru leyti eru komin til framkvæmda. En um 3. gr. er það að segja, að þar hefir slæðzt inn villa. Þar stendur í upphafi: „10. gr. laganna orðist svo“, en á að vera: „1. töluliður 10. gr. l. orðist svo“. Þetta atriði bendi ég á, til þess að það verði leiðrétt í n. Að öðru leyti ræði ég ekki sérstaklega um gr. þær, sem fjalla um slysatryggingarnar, en vil þó benda á, að lagfærð eru, samkvæmt umkvörtunum. ákvæði um dánarbótagreiðslu til aðstandenda manna, er látizt hafa af slysum. Í frv. hv. þm. V.-Sk. er svipað ákvæði, og vænti ég því, að þetta nái fram að ganga. Auk þess hefir komið fram annað frv., frá þeim hv. þm. N.-Þ. og hv. þm. Barð., þar sem reynt er að bæta úr þessu. Ætti því upp úr öllum frv. að mega finna viðunandi lausn á þessum ákvæðum um dánarbætur.
Þá eru sjúkratryggingarnar. Að því er þær snertir, eru með frv. gerðar nokkuð veigamiklar breytingar á l. Eins og í grg. segir, eru þær fjórar, en ég vildi þó fremur segja, að þær væru fimm. Með 1. brtt. er tryggingaskylda afnumin fyrir gamalmenni eldri en 67 ára. Hefir komið í ljós, að mörg gamalmenni á þessum aldri eru þannig að heilsufari, að þau geta ekki talizt tryggingarhæf. Og þó að sjúkratryggingarnar greiði götu þeirra, sem komnir eru í kór, þá sjá sjúkrasamlögin aðeins um greiðslu til þeirra í hálft ár, og hinn helminginn af árinu yrðu þá sveitarfélögin að taka þetta að sér. Því ætti að afnema tryggingaskyldu þessara gamalmenna, en heimila þeim hinsvegar að tryggja sig í sjúkrasamlögum, ef þau eru ekki haldin alvarlegum, langvinnum eða virkum sjúkdómum. — Þá er í frv. afnumin tryggingarskylda og tryggingarréttindi fyrir þá menn aðra, er haldnir eru alvarlegum, langvinnum eða virkum sjúkdómum. Sjúkratryggingin getur ekki séð fyrir slíkum mönnum, en þar ætti að taka við fyrirkomulag, sem lögfest hefir verið, þó að á ófullkominn hátt sé, en það er ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla.
Þriðja breytingin er í því fólgin, að dagpeningatryggingin er gerð að frjálsri tryggingu. Það hefir komið í ljós, að iðgjöldin yrðu að vera svo há, að fæstir gætu greitt þau, ef dagpeningatryggingin ætti að koma að verulegu gagni. Í Reykjavík geta menn ekki fengið dagpeninga fyrr en eftir 16 vikur með lægstu greiðslu, en fæstir þeirra, sem þurfa á dagpeningum að halda, geta haldið sér uppi af eigin rammleik í svo langan tíma. Þessi skylda hefir því verið afnumin, en hinsvegar er mönnum heimilað að tryggja sér dagpeninga gegn hærri greiðslum.
Fjórða breytingin er í því fólgin, að sjúkrahjálp sú, sem samlagi er skylt að greiða fyrir einn og sama sjúkdóm, er færð niður í 12 vikur úr 26 vikum og niður í 24 vikur úr 32 vikum fyrir mismunandi sjúkdóm á sama ári. Læknisfróðir menn segja, að einn sjúkdómur í ári, sem stendur yfir lengur en 12 vikur. sé fágætt fyrirbæri, nema um sé að ræða sjúkdóma, sem ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla ætti að ná til. Mönnum kann að virðast sem með þessu ákvæði sé stigið spor aftur á bak, en það ætti ekki að vera ef ríkið veitti nægilegt fé til framfærslu þessum mönnum, en þar á framfærsla þeirra að vera að réttu lagi.
Í fimmta lagi er lagt til, að það verði afnumið, að tryggðir menn greiði heimilislækni sínum fjórða hluta kostnaðar utan sjúkrahúsa. Þessar aukagreiðslur hafa mælzt illa fyrir. En þetta ákvæði var sett til að koma í veg fyrir, að menn leituðu læknis að óþörfu. Töldu læknar þetta geta verið öryggisventil gegn ofnotkun þeirra. En til þess að hindra slíka ofnotkun, er gert ráð fyrir, að menn greiði fjórða hluta kostnaðar utan sjúkrahúsa, ef þeir leita annars læknis en heimilislæknis síns. Tel ég þessu sæmilega fyrir komið með því ákvæði.
Þessar höfuðbreytingar eru lagðar til af mönnum, sem vinna hjá vissum stofnunum, sem hafa sinn sérstaka lífeyrissjós, og frv. fer fram á, að þeim verði ívilnað um greiðslu á lífeyrissjóðsgjaldi til sjúkratrygginganna. Það má nefna t. d. Eimskipafélag Íslands og Olíuverzlun Íslands og fleiri hliðstæðar stofnanir, sem hafa lífeyrissjóð fyrir starfsmenn sína, og þeir greiða visst árgjald í þessa sjóði, auk þess sem þeir verða samkv. lögum um alþýðutryggingar að greiða til sjúkratrygginganna. Þessir menn hafa borið sig upp við tryggingarstjórnina og með frv. er þeim ívilnað með greiðslu til ororkubóta.
Brynjólfur Stefánsson tryggingafræðingur telur málinu mjög vel komið með þeim breyt., sem frv. gerir ráð fyrir.
Um atvinnuleysistryggingar er það að segja, að sú eina verulega breyting, sem þar er gerð, er sú, að mönnum, sem eru á launum, sé skylt að greiða 1/2% í sérstakan sjóð, sem síðan úthluti framlagi til hinna einstöku atvinnuleysissjóða, og þeir sjóðir afli sér tekna með framlagi frá atvinnurekendum, sem nemi jafnhárri upphæð og framlög ríkis og bæja eru samanlögð.
Til þessa hefir ekki verið stofnaður neinn atvinnuleysissjóður, og veldur það mestu, að menn hafa ekki getað gert sér vonir um, að hann yrði svo stæltur, að hann kæmi að nokkru gagni.
Vegna nokkurra umkvartana frá hreppum úti á landi og ýmsum kaupstöðum um framkvæmd alþýðutryggingarlaganna á greiðslu ellistyrksgjaldanna, hefir frv. gert ráð fyrir að skipta heildarupphæðinni í 2 hluta: 1) vexti ellistyrktarsjóðanna og helming af framlagi lífeyrissjóðs og 2) hinn helminginn af framlagi lífeyrissjóðs. Með þessu mætti því hækka ellistyrkinn til einstakra manna, ef tillag lífeyrissjóðs er hækkað, og það ætti líka að geta hrokkið til úthlutunar á örorkubótum. Aftur á móti verður að gera kauptúnum og hreppum mögulegt að hafa þann styrk nægilegan til allra, sem ellilaun þurfa.
Ég hefi nú í fáum dráttum lýst þeim höfuðbreytingum, sem ég tel standa mest til bóta; þó eru nokkrar smærri ónefndar, sem eru til nokkurra umbóta. Og ég vildi vænta þess, að þessar breytingar verði samþ. eins og þær nú liggja fyrir.
Ég er fús til þess að ræða um breyt. á frv., sem betur mætti fara, og legg til, að því verði að lokinni umr. vísað til allshn.