09.04.1937
Neðri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í C-deild Alþingistíðinda. (1995)

123. mál, alþýðutryggingar

*Flm. (Gísli Guðmundsson):

Við hv. þm. Barð. höfum leyft okkur að gera till. um breytingar á 11. og 81. gr. l. um alþýðutryggingar. Brtt. við 11. gr. l. lýtur að því, að foreldrar fái bætur fyrir börn sín, er dáið hafa af slysum, þótt þau hafi ekki verið á framfæri hins látna, er slysið vildi til.

Brtt. við 81. gr. lýtur að því, að vöxtum af ellistyrktarsjóði sveitarfélaga skuli úthlutað af viðkomandi sveitarfélagi, og teljist þau ellilaun, sem þannig er úthlutað, hvorki með framlagi lífeyrissjóðs né bæjar- eða sveitarsjóðs.

Ég held, að nokkur vafi hafi ríkt um það, hvernig skilja bæri ákvæði l. um þetta atriði, og hafa ýmsir sýslumenn skilið þetta á ólíka vegu. Vil ég, að þetta sé svo skýrt ákveðið í l., að ekki verði um villzt.

við flytjum báðar þessar till. í samræmi við ályktun síðasta Framsóknarþings, sem háð var í vor hér í Reykjavík. Á þessu þingi var Framsóknarflokkurinn á einu máli um það, að rétt væri að beita sér fyrir þessum breytingum.