13.04.1937
Neðri deild: 37. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 707 í C-deild Alþingistíðinda. (2016)
131. mál, þurrmjólk í brauð
*Flm. (Emil Jónsson):
Hæstv. forseti hefir farið þess á leit við mig, að ég eyddi ekki löngum tíma til þess að tala um þetta mál, frá öðrum málum sem liggja fyrir þessari hv. d., og er sjálfsagt að verða við því. Enda er það hægt, af því að ýtarleg grg. fylgir frv. og grein eftir dr. Jón E. Vestdal.
Tilgangur frv. er tvennskonar. Annarsvegar sá, að auka hollustuhætti í mataræði almennings, — því að sá matur, sem almenningur neytir mest, eru brauðin, — með því að gefa ráðuneytinu heimild til þess að ákveða með reglugerð, að allt brauð, sem selt er í brauðgerðarhúsum, skuli vera skylt að blanda þurrmjólk, er framleidd sé innanlands, og að landbrh. megi ákveða, að þurrmjólkin nemi allt að 1/10 hluta af þyngd þurrefnis brauðsins. Þetta er sérstaklega nauðsynlegt vegna þess, að margir í kaupstöðum landsins, og enda víðar, lifa við svo einhæfan kost, að þeir bíða tjón í mataræðinu, ef í fæðuna vantar ýmis þau efni, sem heilsunni eru nauðsynleg, eins og mineralefni eða steinefni. Úr þessu yrði bætt að verulegu leyti, af þessi íblöndun mjólkur í brauð væri höfð, sem hér ræðir um, og það jafnvel þótt hún væri ekki í eins stórum stíl og í frv. er gert ráð fyrir. En það er 1/10 hluti af þurrefni brauðsins, eins og ég hefi sagt, sem sett er sem hámark. Þetta hámark er miðað við það, að bakarameistarar, sem þetta hefir verið borið undir, segja, að meira af þessu efni sé ekki hægt að setja í brauðin án þess að verð þeirra þurfi að hækka. Liggur það a. n. l. í því, að þeir blanda í sumar brauðtegundir mjólk nú, og a. n. l. í því, að spara mætti sykur og önnur efni í brauðin, með því að nota þetta efni í þau. Hin ástæðan er ekki veigaminni, að með þessu móti mætti fá markað fyrir mikið af mjólk, sem erfitt yrði að fá markað fyrir annarsstaðar. Ef blandað væri í helming alls rúgs, sem fluttur er inn, 1% af undanrennudufti og í helming alls innflutts hveitis 5% af undanrennudufti, þyrfti til þess, eftir öllum líkindum að dæma, undanrennu úr 2,2 millj. lítrum nýmjólkur á ári. Og það er ákaflega mikið mjólkurmagn, eins og sjá má af því, að bera þetta saman við þann markað, sem er fyrir mjólk hér í Rvík.
Þetta tvennt, að auka hollustu í mataræði og auka að miklum mun markað fyrir mjólk, er höfuðtilgangur frv.
Að endingu skal ég taka það fram, að ég er fús til samvinnu um breyt. á frv., ef þurfa þætti og nauðsynlegt væri til þess að málið næði fram að ganga, þannig að frv. gæti verið grundvöllur undir lagasetning um þetta efni.
Legg ég svo til, að frv. verði, að umr. lokinni, vísað til landbn. og vil mega vænta þess, að sú hv. n. taki það fljótt til rækilegrar meðferðar og afgr. það greiðlega.