03.03.1937
Efri deild: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í C-deild Alþingistíðinda. (2048)
44. mál, drykkjumannahæli
Flm. (Guðrún Lárusdóttir):
Herra forseti! Þegar litið er á það, að við höfum enga reynslu og ekki eftir neinu að fara með svona mál, þá er afsakanlegt, þó að fram kunni að koma einhverjir agnúar, sem menn reka sig á, en ég vænti þess, að hér séu þeir ekki meiri en svo, að hægt sé að, sníða þá af með góðum vilja og viðleitni.
Ég vil aðeins víkja örfáum orðum að því, sem hæstv. forsrh. sagði um framfærslun., að þær séu of miklir aðiljar í þessu máli. Það er öðru máli að gegna með þetta heldur en venjuleg lögreglumál, því að hér er ekki um neinar sakir að ræða aðrar en þær, að vera sjúkur af ástríðu, sem hefir í för með sér bjargræðisleysi og ýmiskonar böl, bæði fyrir sjálfan sjúklinginn og aðra. Oftar munu þeir menn koma upp í hendur þeirra, sem með framfærslumálin fara, leita styrktar heimilum sínum, eða aðrir fyrir þeirra hönd, auk margskonar annara vandræða, sem ávallt bitna á heimilum drykkjumanna. Það var með þetta fyrir augum, að ég samdi þessa frvgr., og þessari sömu reglu fylgja aðrar þjóðir, sem hafa drykkjumannahæli. Þær blanda ekki dómsvaldinu inn í málið, heldur láta framfærslun. hafa afskipti af málunum að mestu leyti. Annars tel ég þýðingarlaust að eltast við einstakar greinar frv. við þessa umr. og hefi beztu von um, að hv. nefnd, sem fær frv. til meðferðar, vinni að því með vandvirkni og samvizkusemi, eins og málið verðskuldar.