06.03.1937
Efri deild: 15. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í C-deild Alþingistíðinda. (2059)
48. mál, uppeldisheimili fyrir vangæf börn og unglinga
*Avmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Mér þótti vænt um þau ummæli hv. flm., að hún kysi jafnan að hafa mig með sér við afgreiðslu mála. Ég get vitanlega sagt hið sama, að ég kysi mjög gjarnan að mega vænta hennar fylgis sem oftast, en því miður vill nú oft fara svo, að okkur ber dálítið á milli.
Mér skildist hv. flm. átelja stj. fyrir að láta undir höfuð leggjast að sjá um nauðsynlegan undirbúning þessa máls. Ég gerði nokkra grein fyrir þessu í fyrri ræðu minni, en ef til vill ekki nægilega skýrt. Það hefir ekki verið völ á sérfræðingi hér heima á þessu sviði fyrr en á síðastliðnu hausti. Ég hefi talað við barnaverndarnefndina hér í bænum og barnaverndarráð, og báðar þessar stofnanir hafa talið, að rétta byrjunin væri að láta sérfræðing rannsaka ástand og eiginleika barnanna, því að mismunandi aðgerða þarf við eftir því, hvernig háttsemi barnanna er og tilhneigingar. Það er víst, að ekki nema nokkur hluti þeirra barna, sem hér koma til greina, eiga heima á barnahælum. Hvað heppilegast er að gera við hin, má deilu um. Það hefir verið talað um að koma börnunum fyrir í sveit, en það mun vera rétt hjá hv. flm., að ekki er heldur á þann hátt hægt að leysa vandræði þeirra allri.
Hv. þm. segir, að það sé ekki nóg að rannsaka; það verði eitthvað að framkvæma. En við þurfum þó fyrst að vita, hvað við eigum að gera. Slík rannsókn, sem ég drap á áðan, er nauðsynleg undirstaða. Við höfum hér talsvert af lögum, þar sem framkvæmdirnar eru bundnar því skilyrði, að þær komi ekki til, fyrr en fé er veitt til þeirra á fjárlögum. Ég er leiður á því, að slíkum lögum sé fjölgað, því að það hefir oft sýnt sig, að þau verða ekki annað en pappírslög, og þegar sett verða lög um það efni, sem hér er um að ræða, þá vil ég, að þau verði annað og meira en pappírsgagn.
3. gr. frv. er sjálfsagt að athuga, ef í henni á að felast það, sem hv. flm. telur, og vona ég, að hv. n. geri það.
Það er misskilningur, ef hv. flm. vill skilja orð mín svo, að ég beini því að fátæku fólki, að börn þess séu hnuplgjarnari en börn annara. Ég hefi ekkert slíkt talað. En ég vildi benda á, að meginundirrót margs af því illa, sem hv. flm. talaði um, væri of misjöfn lífskjör. Hv. þm. nefndi dæmi um telpu í tötrum og aðra í fögrum kjól, sem mér skildist hún telja óheppilegt, og taldi það kost á barnahælum, að þar gengju börnin öll í eins fötum og borðuðu sama mat. Um þetta er ég henni sammála, og með þessum orðum viðurkennir hún það, sem ég sagði áðan, að það eru oft hin misjöfnu lífskjör, sem leiða börnin inn á hinar óheppilegu brautir. Það þarf ekki alltaf að vera fyrir það, að börnin séu svöng. Því miður er mikið af þessu hnupli barnanna til þess að afla sér góðgætis, tóbaks og þessháttar hluta, af því að þau sjá aðra krakka betur megandi með nóg af þessu og langar að hafa það líka. Hafi ekki svipað vakað fyrir hv. flm., er hann var að tala um hinar misjöfnu flíkur barnanna, þá veit ég ekki, hvað hann hefir meint. — Ég er hv. flm. sammála um, að þessi hætta hlýtur að aukast með stækkandi borgum og auknu þéttbýli. En ég er henni ósammála um, að skýrslur síðustu ára beri vott um tiltölulega meiri spillingu en verið hefir, þótt ég vilji á engan hátt draga úr því, hve alvarlegt málefni hér liggur fyrir.