18.03.1937
Efri deild: 21. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 737 í C-deild Alþingistíðinda. (2066)

53. mál, Háskóli Íslands

*Flm. (Jónas Jónsson):

Hv. 1. þm. Reykv. er vel að því kominn, að prýða afrek sín og skilning á málum háskólans, en hans skilningur gengur ekki lengra en það, að hann sér ekki þörfina til að kjósa rektor háskólans til eins árs í senn. Meðan menn áttu þennan háskóla sem hverja aðra „lumpna“ stofnun, þá stóð á sama, hvort það vandræða ástand héldist eða ekki. Það hefir ekki í 25 ár komið fyrir neina stofnun eins mikill álitshnekkir og kom fyrir háskólann í haust.

Það er fyrsta stóra hneykslið, sem komið hefir fyrir háskólann, eins og hv. 1. þm. Reykv. veit.

Þá er hv. þm. að hrósa sér fyrir að hafa fundið upp happdrættishugmyndina. Í sambandi við það vil ég minna þennan hv. þm. á það, að hans flokksbræður, sem þá voru í meiri hl., þótti frv. hneykslanlegt, og jafnvel þeir, þótt undarlegt megi virðast, álitu þetta vera gróðabrallsfrv. Og Morgunblaðið vitnaði í frv., sem Hannes Hafstein flutti um háskólann. Það er því afarbarnalegt að vera að grobba yfir þessum afrekum.

Þm. var ágætur í sambandi við grútarveginn. En hvernig stóð á því? var það hann eða hans nótar, sem fundu það upp? Þessi hv. þm. stoð uppi á Skólavörðuholti, eins og menn muna, til að grafa fyrir stúdentagarðinum, en þar vildi hinn hafa bæði stúdentagarðinn og háskólann.

Ég þakka hv. þm. fyrir það að hafa minnzt hér á ýms atriði í sambandi við þetta mál. Ég sýndi fram á það, þegar gröfturinn byrjaði í Skólavörðuholtinu, að þetta væri hreinasta vitleysa, að byggja háskólann á þessum stað, og það er yfirlýst, að háskólinn og stúdentagarðurinn voru búnir að kosta 20 þús. kr. í gröftinn þarna í holtinu, en svo kom það í ljós, að staðurinn var afaróheppilegur, lóðin lítil og hugmyndin eftir því bjánaleg. Það er sannast að segja, að þessu var svo breytt. Sú lóð, sem háskólinn hefir nú fengið, kom svo af sjálfu sér, því að sjálfsagt þótti að byggja háskólann, þar sem hann nú er.

Alstaðar þar, sem byggð eru slík hús sem þetta, fara fram margra ára tilraunir með teikningar og líkön, til þess að ekki þurfi að verða árekstur, þegar kannske er búið að leggja fleiri þús. kr. í verkið, þótt hv. þm. þætti ekki nein þörf á því, að leita ráða sérfróðra manna um það, hvar eða hvernig ætti að byggja háskólann. Við Ingibjörg H. Bjarnason settum þetta mál fyrst á stað í þinginu, og ég útvegaði lán, til þess að hægt væri að framfylgja lögum frá 1932. Þá þurfti bara að fá lóð, sem hægt væri að byggja á, því að eins og þm. benti á, eru ákvæði um það í háskólalögunum, að staðurinn, sem byggt er á, sé fenginn með leyfi bæjarstjórnar Reykjavíkur. Knut Zimsen tók vel í þetta, en flokksbræður hans í bæjarstjórninni í Rvík voru í mörg ár að ráða við sig, hvort þeir ættu að láta lóð undir háskólann. Meiri hl. bæjarstjórnar Rvíkur vildi ekkert gera til að styðja þetta. Það var alveg út í hött, að háskólinn þyrfti endilega að vera í vatnsmýrinni, því að hyggilegra var, að hann hefði þá lóð, sem hann hefir nú fengið, en bærinn hefði leikvelli í mýrinni. Götuplanið var þannig hugsað, að byrja átti niður hjá hafnarhúsi, kaupa Hótel Ísland og húsin meðfram Tjarnargötu, sprengja hús og taka „villur“ úr götunni, og fylla út í tjörnina og með því breikka Tjarnargötu. Þarna voru gerðar tvær stórar vitleysur. Í fyrsta lagi að kaupa svona dýran hluta af bænum, og í öðru lagi að minnka tjörnina. En þessi íhalds meiri hluti hafði ekki vit til að fordæma þessa vitleysu. Þá var til ætlazt, að rífa háskólabygginguna frá skemmtigarðinum fyrir þann ávinning, sem þótti liggja í því, að háskólinn hefði umferðargötu að baki sér. En það hefir mikið að segja, hvort háskólinn hefir höfuðgötu fyrir framan sig eða að baki sér. Þetta götuplan er fordæmanlegt vegna fjárhagsins, vegna tjarnarinnar og Tjarnargötu. Þetta plan á að eyðileggja. Þetta kemur aldrei. Bærinn getur ekki keypt Hótel Ísland eða hús B. H. B.

Síðan þetta varð landsmálefni, hefir þessi hv. þm. hvorki haft vit né orð til að fordæma grútarveginn.

Ég hefi þá skoðun um þau orð, sem þessi hv. þm. lét falla í garð stéttar sinnar, að þau hefðu mátt kyrr liggja. T. d. telur þm. það lýsa yfirburðaþekkingu á guðfræði, að hafa ekkert vit á því, sem við kemur málfræði eða sagnfræði.

[Eyða í handr.]. Þá leyfði hann sér að hafa vit á, hvernig ætti að ala upp lögfræðinga. verkfræðinga og aðra starfsmenn fyrir þjóðfélagið. Hv. þm. veit það, að þessi háskóli okkar, sem býr menn undir embætti í litlu landi, getur ekki gefið mönnum tækifæri til að stunda það, sem kallað er vísindi í stærri löndunum, af því, hvað þjóðin er fátæk, og það þýðir ekkert fyrir okkur að ætla í alþjóðlegum vísindum að keppa við stofnanir, sem styðjast við eins geysilega mikið fjármagn og þeir erlendu háskólar gera. Þess vegna er, að það hefir verið sá feiknamisskilningur hjá hv. þm. og hans stéttarbræðrum, þegar þeir hafa haldið, að háskólinn okkar væri vísindastofnun. Það væri gaman, ef hann vildi leggja fram allar ritgerðir, sem rektorar hafa látið frá sér fara síðustu 25 ár, og heyra hann svo halda því fram, að þær væru jafnmerkar vísindalega séð og þær, sem koma frá þeim stóru erlendu háskólum. Ég er ekki að ásaka prófessorinn, en hann ætti að sjá, að háskólinn er aðeins lítill embættismannaskóli, og hlýtur að verða það, og það er enginn kóngakraftur yfir þessu. Allt, sem við þurfum, er að fá góða og ærlega embættismenn út úr þessu, og annað getum við ekki fengið út úr því. Þess vegna er heimskulegt að ætla sér að fara að líkja eftir Sorbonneháskólanum eða háskólanum í London, sem hafa 10—15 þús. meðlimi. Það er barnaskapur hjá hv. þm., et hann heldur, að á þann sama hátt geti það verið hjá okkur, sem getum ekkert nema leitazt við að fá sómasamlega embættismenn með sómasamlegan karakter og sómasamlega almenna menntun. við getum ekki hér í okkar fátækt og fámenni líkt eftir þeim miklu skolum í stórveldum heimsins. Þar eru ekki heldur notuð sömu lausatökin og hv. þm. vill hafa hér hjá okkur og hafa verið hjá þeim spekingum, sem voru með grútarveginum.

Og svo er þetta hneyksli í haust, og það var eins og með strákinn, sem hafði fengið hirtingu. Hann sagði: „Ég skal taka fötin af mér aftur“. Og þá skyldu menn nú halda, að þessir vísu menn notuðu lærdóminn til að verja málstað sinn. En það gerðu þeir ekki. Þeir gáfust alveg upp við það af þeirri mjög svo frambærilegu ástæðu, að þeir vissu, að þeir höfðu þar orðið sér til stórskammar.

Ég skal svo ekki að þessu sinni tala fleira um þetta, en ástæða væri til, og gefst ef til vill tækifæri til þess síðar, að tala um ýmislegt af því gamla framferði, sem þarna hefir átt sér stað, eins og þegar hv. 1. þm. Reykv. komst að þessari stofnun með röngu. Og svo aumir hafa þessir menn verið, að um eina af þessum persónum, sem var fram á hjá þeim, óskuðu þeir, að hann yrði rekinn. Ástandið í þessari stofnun var komið á þetta ömurlega stig.

Ég hugsa, að ekki sé svo ástæða til að tala frekar um málið við þessa umr., en ég vona, að málinu verði vel fylgt eftir till. n., m. a. af hv. 1. þm. Reykv., sem mun sjá, að það er viðurhlutamikið fyrir hann að vera alltaf á móti þessari stofnun, sem hann hefir sitt lífsframfæri af, þó að hann hafi komizt þangað með ranglæti.