19.03.1937
Efri deild: 22. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í C-deild Alþingistíðinda. (2090)
69. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
*Pétur Magnússon:
Mér er það alveg ljóst, að það er ekki ófyrirsynju, að þetta mál er fram komið. Ég veit, að það er rétt hjá hv. flm., að ástandið er að verða þannig víða, að skattheimtan er að verða óviðráðanleg. Ástaðan til þess, að svona er komið, er augljós. Ástæðan er engin önnur en sú, að borgararnir eru, víða a. m. k., orðnir ofhlaðnir af sköttum. Skattabyrðin er orðin þyngri heldur en þeir fá undir risið.
Þegar þess er gætt, að ástæðan til erfiðleikanna er þessi, og það hygg ég, að verði ekki véfengt með rökum, þá liggur það í augum uppi, að sérhver ný leið til tekjuöflunar er í raun og veru ekki annað en hrossalækning á meinsemdinni. Hverjar leiðir, sem farnar eru til þess að ná fé eða sköttum af borgurunum, eru það vitanlega sömu mennirnir, sem gjöldin verða að bera. Það eru skattgreiðendur landsins, sem verða að bera byrðarnar, inna af hendi þær nauðsynlegu greiðslur, sem hið opinbera þarf að fá, hvort heldur það er ríki, bæjar- eða sveitarfélög. Ef þess vegna á að fá nokkra raunverulega bót á þessu ástandi, þá verður óhjákvæmilega að stefna að því, að heildarskattabyrðin verði lækkuð. Hinsvegar er mér ljóst, hversu miklir erfiðleikar eru á því, eins og ástandið er. Eins og búið er að atvinnuvegum landsins, eru náttúrlega ekki miklar vonir um, að unnt sé að lækka heildarskattabyrðina, meðan atvinnuleysið vex ár frá ári, og meðan búið er að framleiðslunni í landinu á þann hátt, sem verið hefir síðasta áratuginn, þá er það augljóst, að m. a. fátækraframfærið hlýtur að fara varandi, eins og raun er á orðin, og yfirleitt lítil von um, að ástandið breytist þannig, að unnt sé að lækka skattana.
Það, sem þarf að gera í þessu efni, er fyrst og fremst að skapa annað viðhorf í atvinnuvegum landsins. Með því móti einu verður ráðin nokkur varanleg bót á þessari meinsemd. Þá fyrst, þegar atvinnuvegirnir verða reknir með hagnaði, en ekki með tapi, og fólkið getur haft nægilega vinnu, er von um, að breyt. geti orðið á þessu. Eins og ástandið er nú, er jafnvel ekki lítill hluti af vinnuaflinu, í stað þess að vera lyftistöng fyrir atvinnuvegina, orðið niðurdrep. Það á við um alla vinnu, sem unnin er sem atvinnubótavinna. Ég er því ekki í neinum vafa um, að það er viðfangsefni fyrir löggjafann og ríkisstj., að koma á þessari breytingu. Þá fyrst verður ráðin veruleg bót á þessu ástandi, sem allir eru sammála um, að sé óviðunandi. Þrátt fyrir að ég er sannfærður um, að það er þetta viðfangsefni, sem fyrir liggur, þá dettur mér ekki í hug að neita því, að ástæða sé til að grípa til einhverra bráðabirgðaráðstafana, finna einhverjar leiðir til þess að gera því opinbera kleift að risa undir þeim gjöldum, sem á því hvíla, hvort sem það eru bæjar- eða sveitarfélög. Að því leyti er og góðra gjalda vert að leitast við að finna nýjar leiðir í þessu efni. — Sú leið, sem hv. flm. hefir valið í þessu frv., er að láta bæjar- og sýslufélögin — sem óbeinlínis verða sveitarfélögin, því að um leið og sýslufélögunum eru skapaðar þessar tekjur, er ætlazt til, að þau þurfi minna að heimta af sveitarfélögunum — fá nokkurn hluta af tollunum eða hækka tollana fyrir þessar stofnanir.
Eins og okkur er öllum kunnugt, var farin sú leið framundir síðustu ár, þangað til fyrir 15 eða 16 árum, að láta sveitarfélögin hafa tekjuskattinn svo að segja óskertan, en láta ríkið að mestu leyti afla sinna tekna með óbeinum skottum. Nú virðist sú stefna hafa fengið allmikil ítök — því að það er ekki í fyrsta skiptið, sem lagt er inn á þá braut — að skipta tollunum á milli ríkisins og bæjar- og sveitarfélaganna. En hver er nú ástæðan til þess, að lagt er inn á þá braut? Það sýnist mér ekki orka tvímælis, að hún er vitanlega sú, að tekjuskatturinn, eins og hann er nú, er orðinn of hár. Þetta er reynslan búin að sýna. Hún hefir sýnt það á tvennan hátt. Fyrst og fremst með því, að þrátt fyrir gífurlega hækkun á tekjuskattinum, sem gerð hefir verið þing eftir þing síðari árin, hefir heildarupphæð hans lítið eða ekkert hækkað. Það hefir verið sýnt fram á, að tekjuskatturinn 1933 var lítið hærri heldur en 1928, þrátt fyrir að skattstiginn hefir á þessum tíma verið hækkaður á annað hundrað prósent. Það bendir ótvírætt í þá átt, að komið sé upp fyrir það leyfilega takmark með tekjuskattinn, þegar hann hættir að vaxa í sömu hlutföllum og stiginn er hækkaður. En annað má þó segja, að hafi skorið úr um þetta. og það er sú staðreynd, sem hv. flm. vakti athygli á, að það reyndist ógerlegt að innheimta hann. Skattavöldin hafa ekki getað, þrátt fyrir allmikla harðneskju, náð inn þessum sameiginlega tekjuskatti. Og þegar maður gætir þess, hversu skattstiginn sameinaður er orðinn, þá er það ekkert undrunarefni. Ég fékk í morgun upplýsingar um það hjá einum niðurjöfnunarnm. í Reykjavík, að eftir þeim skattstiga, sem fylgt er við útsvarsálagningu í Reykjavík, er sameinaður skattur til ríkis- og bæjar orðinn 98% af 28 þús. kr. tekjum, en hann gat þess um leið, að hinn efaðist ekki um, að útkoman yrði sú, að það yrði að hækka þennan skatt frá því sem nú er. Leiðir þá af því, að skattur af þessum tekjum, 28 þús. kr., sem á okkar mælikvarða eru að vísu hátekjur, fer upp fyrir 100%. Það sér hver maður, sem vill sjá það, að slík skattatilhögun getur ekki staðizt. Ég ætla ekki að rekja þetta nánar; það er svo augljóst mál, að ekki þarf um það að ræða. Að þessu athuguðu er það sízt undarlegt, þótt erfitt reynist að innheimta þennan tekjuskatt. En nú vil ég spyrja: hver er heildarvinningurinn við það að fara inn á þessa braut, að skipta tollunum milli ríkisins og sýslu- og bæjarfélaganna og skipta líka tekjuskattinum á svipaðan hátt? Hver er vinningurinn fram yfir gamla fyrirkomulagið, að láta bæjar- og sveitarfélögin afla sinna tekna með tekjuskatti eins og þau gerðu og hafa líka fasteignaskattinn og smávegis tekjur af ýmiskonar starfrækslu, en láta svo ríkið búa eitt að óbeinu sköttunum, þá fyrst og fremst tollunum? Mér sýnist þetta þvert á móti vera erfiðara í framkvæmdinni heldur en gamla fyrirkomulagið, og ef menn eru orðnir sannfærðir um það, sem ég heyrði, að hv. flm. er sannfærður um, að þessi sameinaði tekjuskattur sé orðinn svo hár, að ekki sé unnt að innheimta hann, þá sýnist auðveldara að lækka tekjuskattinn, sem ríkinu er ætlað að ná, og gera bæjar- og sveitarfélögunum á þann hátt mögulegra að ná fyrir sínum gjöldum með tekjuskatti. — Það voru aðallega þessi sjónarmið, sem ég vildi láta koma fram, áður en málið færi lengra. En einstök atriði í frv. þykir mér þó rétt að gera lítilsháttar að umtalsefni.
Það er gert ráð fyrir því í 9. og 10. gr. frv., að ríkisstofnanir greiði skatt til sveitar- og sýslufélaga, samtals 10% af nettótekjum sínum. Ég verð að segja það, að þegar litið er á þann skatt, sem verður að greiða af verzlunum yfirleitt, þá sýnist mér, að þessi skattur sé óeðlilega lágur, jafnvel þó að það sé ríkið, sem hér á hlut að máli. Meðal hinna svokölluðu hátekjumanna eru verzlanirnar langfjölmennastar, og þegar þess er gætt, að þessar hátekjustofnanir, hvort sem það eru einstakir menn eða félög, verða að greiða skatt, sem getur orðið um 100% eða þar yfir, þegar komið er upp fyrir 28 þús. kr. tekjur, þá er ekki eðlilegt, að þessar sérstöku tegundir verzlana sleppi svo vel við skattgreiðslu til bæjar- og sveitarfélaga. Þetta er e. t. v. ennþá óeðlilegra, þegar þess er gætt, að a. m. k. enn sem komið er, er á aðalmunaðarvörunum — miðlungi nauðsynlegum varningi — komin einkasala. Á ég þar fyrst og fremst við áfengis- og tóbaksverzlanirnar.
En náttúrlega eru til ríkisverzlanir, sem verzla með nauðsynjavörur, eins og t. d. bifreiða- og raftækjaeinkasalan, en a. m. k. að því er snertir þessar tvær verzlanir, áfengis- og tóbaksverslanirnar, er óeðlilegt, að svo miklu minna gjald skuli borgað til bæjar- og sveitarfélaga af þeirra vörum heldur en af öðrum vörum, sem eru miklu nauðsynlegri heldur en þær, sem þar er um að ræða. Auðvitað kemur þessi skattur sem verðhækkun á vörunum, en ég get ekki séð, hvaða vörur það eru, sem er þó réttmætara að leggja á skatta, sem verka sem verðhækkun, heldur en þessar munaðarvörur eins og vín og tóbak. Óhugsandi væri þó ekki, að einhver mismunur væri á sköttum á ríkisstofnunum, og mér sýnist að það ættu ekki að vera neinar hindranir fyrir, að svo væri gert, ef nauðsyn þætti að stilla sköttunum mjög í hóf.
Ég vildi því beina til þeirrar n., sem fær þetta mál til athugunar, hvort ekki væri ástæða til að breyta þessu ákvæði.
Þá vildi ég aðeins drepa á þessa skiptingu, sem gert er ráð fyrir á tekjunum samkv. 1. gr. frv. Það er gert ráð fyrir, að 2/3 hlutum skipti bæjar- og sýslufélög á milli sin eftir fólksfjölda, 1/3 renni í sérstakan sjóð, sem úthluta á eftir sérstökum reglum, aðallega til þeirra bæjarsýslufélaga, sem hafa við fjárhagsörðugleika að búa. Ég verð að játa, að mér virðist ekki eðlilegt að hafa þessi skipti eins og hér er lagt til. Mér sýnist að vísu eðlilegt, að meiri hlutanum, t. d. 2/3 af þessum tekjum, sé skipt eftir fólksfjölda, sem má gera ráð fyrir, að sé a. m. k. í einhverri líkingu við neyzlu á þessum vörum. Það virðist vera meira réttlæti í því, að tekjunum sé skipt eftir því, hvaðan greiðslurnar koma, þannig að íbúar hvers bæjar og sýslu njóti teknanna í líku hlutfalli og varanna er neytt. Hitt skal ég játa, að geti verið heppilegt, að hafa einhvern varasjóð, ef í nauðirnar rekur. Hinsvegar sýnist mér það ekki eðlilegt ákvæði, að það eigi að nota þennan varasjóð til þess að greiða að fullu eða lækka lán bæjar- og sveitarsjóða. Ég held fyrir mitt leyti, að eins og ástandið er, sé meiri þörf á að auka ábyrgðartilfinninguna hjá bæjar- og sveitarfélögunum í þessum málum. Mér finnst fremur ástæða til að gefa bæjar- og sveitarfélögum aðhald um að halda fjárreiðum sínum í lagi heldur en að gefa þeim undir fótinn um það, að öllu sé óhætt, því að það verði hlaupið undir bagga með þeim, ef eitthvað á bjátar. Það er ómögulegt að neita því, að ábyrgðarleysið er orðið allt of mikið í þessum efnum. Það þarf að ráða bót á því, og ég held, að þetta sé ekki leiðin til þess að ráða bót á því ábyrgðarleysi, sem víða er farið að gera vart við sig. Hitt finnst mér mjög eðlilegt og sjálfsagt, að ef eitthvert hérað hefir orðið fyrir skakkaföllum af óviðráðanlegum orsökum, þá sé reynt að hlaupa undir bagga með því. Þetta getur borið að á ýmsan hátt, svo sem af völdum óviðráðanlegra náttúruafla, og svo á þann hátt, sem efst mun nú í hugum landsmanna, en það er sem veikindi í búfénaðinum. Það er ómögulegt að neita því, að þegar slíkt ber að höndum, þá er gott að hafa tryggingarsjóði til að hlaupa undir bagga. Með því er að nokkru endurvakin sú hugsun, sem vakti fyrir þeim, sem stofnuðu viðlagasjóðinn gamla. Það er náttúrlega alveg rétt hjá hv. flm., að þær tekjur, sem hér er ætlazt til, að verði aflað með þessari aðferð, hossa náttúrlega ekki hátt í þær þarfir, sem vitanlegt er, að eru til staðar hjá bæjar- og sveitarfélögum. Þetta getur náttúrlega verið bráðabirgðahjálp, en annað álít ég það ekki vera. Hinsvegar, ef það gæti komið í veg fyrir, að allur atvinnurekstur manna stöðvist, þá er náttúrlega nokkuð fengið.
Ég skal svo ekki fara um þetta mál fleiri orðum að sinni. Það má enginn skilja þessi orð mín svo, að ég ætli að leggjast á móti því, að málið verði athugað í n., ég vildi aðeins benda á, að þetta er ekki annað en fálm og engar líkur til, að með því verði ráðin bót á því, sem mest þörfin er að ráða bót á.